Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 11.03.2016, Page 36

Fréttatíminn - 11.03.2016, Page 36
Signý Björk Ólafsdóttir, 46 ára, var þegar orðin fimm barna móðir 28 ára gömul. Hún byggði sér 300 fermetra hús í Grafarvoginum og tók hressilega þátt í góðærinu. 2010 varð hún gjaldþrota og flutti með unglingana sína þrjá í leiguhúsnæði en síðustu átta mánuði hefur hún gist á hermannabedda hjá frænku sinni. Alda Lóa Leifsdóttir aldaloa@frettatiminn.is Fyrir átta mánuðum missti Signý Björk Ólafsdóttir húsnæðið sitt í Breiðholti þegar leigusamningur- inn rann út og leigusalinn seldi ofan af henni íbúðina. Þá fékk Signý inni hjá Hönnu frænku sinni sem á dótturina Álf- rúnu, 10 ára. Þær Signý og Hanna eru mjög samrýmdar og standa þétt saman í lífsbaráttunni í litlu íbúðinni í Álfaborg í Grafarvogin- um. Þær hafa verið nánar í mörg ár, ferðast saman og gengið á Hvanna- dalshnjúk og púsla alltaf á þriðju- dagskvöldum þegar elsta dóttir Signýjar kemur í heimsókn. Börn barna eru gæfubörn „Ég eignaðist mitt fyrsta barn, elstu dóttur mína, þegar ég var 16 ára og var orðin fimm barna móðir 28 ára. Sú elsta er rosalega sjálfstæð og ennþá barnlaus,“ segir Signý og hlær þannig að þakið ætlar að rifna af. „Konurnar í minni ætt eru alltaf jafn hissa þegar þær verða óléttar, það mætti halda að við gleymum jafnóðum hvernig börnin verða til. Úps, alltaf jafn óvænt þegar nýtt barn kemur í heiminn.“ Signý segir að amma hennar hafi orðið ólétt 16 ára, mamma hennar 17 ára, sjálf var hún 15 ára og næstelsta dóttir Signýjar varð ólétt af sínu fyrsta barni 18 ára. Fæðingarorlof í Svíþjóð „Ég var búin að eiga þrjú elstu börnin mín þegar ég prófaði að flytja til Svíþjóðar með barns- föður mínum sem fór að vinna þar. Í Svíþjóð uppgötvuðu þeir að ég ætti inni fæðingarorlof hjá sænska ríkinu með börnunum sem ég kom með inn í landið, af því á Íslandi er fæðingarorlof aðeins hálft ár, á meðan það eru tvö ár í Svíþjóð. Þannig að ég fór beint í fæðingaror- lof þessi tvö ár sem ég var úti. En svo þegar ég eignaðist mitt fjórða barn í Svíþjóð og kom hingað heim, þá átti ég ekki rétt á neinu fæðing- arorlofi hérna. Ég var réttlægri sem Íslendingur með því að fara út.“ Fyrirmynd Búra er hinn danski Havarti-rjómaostur sem athafnakonan Hanne Nielsen þróaði um miðja nítjándu öld á býli sínu „Havarthigaard“ fyrir norðan Kaupmannahöfn. Framleiðsla á Búra hófst árið 1980. Hann er mjúkur og smjörkenndur ostur með vott af ávaxtasætu, ljúfum sítrustóni í lokin og langvarandi eftirbragði. Rjómakennd einkenni ostins parast vel með sætum, örlítið sýrðum ávöxtum, berjum og kryddsultum. BÚRI LJÚFUR www.odalsostar.is Ég held að strákarnir mínir séu búnir að gefa upp alla von um menntun, þeir eru hörku- duglegir en þeir eiga nóg með leigu og mat ofan í sig. Úr góðærishöll á hermannabedda Fátækt Það er ekki bara skömmin sem vill fela fátæktina í samfélaginu heldur ríkir hagsmunir líka. Við erum sannfærð um að fátæktin sé ekki samfélagslegt mein heldur sök hins fátæka. Fréttatíminn heldur áfram að skoða líf og veröld hinna fátæku. Síðustu átta mánuði hefur Signý gist á hermannabedda í stofunni hjá Hönnu frænku sinni. Myndir | Alda Lóa 36 | fréttatíminn | Helgin 11. mars–13. mars 2016
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.