Fréttatíminn - 11.03.2016, Blaðsíða 60
60 | fréttatíminn | Helgin 11. mars–13. mars 2016
Kynningar | Heimili og hönnun
Unnið í samstarfi við Litaver
Litaver býður upp á mikið úrval teppa fyrir hótel, gistiheimili, skrifstofur, stofnanir og að sjálfsögðu heimili. Bram
Zomers, verslunarstjóri litavers,
segir að framleiðsla á teppum hafi
tekið stakkaskiptum undanfarin ár.
„Helsta breytingin sem hefur orðið
er að nú eru vistvæn efni notuð í
framleiðslu á teppum. efnin eru
orðin þannig að þau eru nánast úr
100% endurunnu efni og framleidd
þannig að það er hægt að endurnýta
þau og endurvinna. Þetta er allt gert
með umhverfið í huga og þau eru
einnig ofnæmisprófuð og allt í hæstu
stöðlum,“ segir Bram.
Nánast hvaða mynstur sem er
Önnur nýjung í teppageiranum er sú
að tækninni í framleiðslunni hefur
fleytt áfram. „Tæknin er orðin þannig
að það er hægt að framleiða nánast
hvaða mynstur og lit sem er og þá
eftir óskum viðskiptavinarins. Það
er hægt að gera alls konar mynstur,
jafnvel grafísk mynstur, þess vegna
beint af ljósmyndum,“ segir Bram og
bætir við að þessi lausn sé kannski
ekki hagkvæmust fyrir litla fleti en
starfsmenn litavers geri allt til þess
að koma til móts við viðskiptavinina.
Hótelin fara út fyrir kassann
Bram segir Íslendinga fremur íhalds-
sama þegar kemur að teppum á
heimilum en hótelin séu farin að
þora að fara út fyrir kassann. „Hót-
elin eru meira í því að setja svip
á hótelganginn með því að nota
skæra liti eða óhefðbundin mynstur.
inni á heimilum eru ríkjandi hlýir
litir í brúnum og grábrúnum tónum.
Þetta svarthvíta sem hefur verið
vinsælt er að fjara út.“
Í litaveri er að finna gott úrval
af gólfdúkum, gólfteppum, stökum
teppum, dreglum, málningu,
veggfóðri og skrautlistum. starfs-
menn verslunarinnar leitast við að
aðstoða viðskiptavini með sérpönt-
unarþjónustu á öllum vörum og
sérfræðiþekkingu sinni á þessum
vöruflokkum.
Vistvæn framleiðsla
og fjölbreytt mynstur
Framleiðsla á teppum hefur tekið gríðarlegum framförum undanfarin ár.
Bram Zomers er verslunarstjóri Litavers.
Teppin í Litaveri eru framleidd á
vistvænan hátt