Fréttatíminn - 11.03.2016, Qupperneq 72
Mynd | Rut
Eskihlíð 6
Hvað er í matinn?
„Ég gerði mér pasta með pestói, ólívum,
hnetum og basilíku. Það var mjög gott.“
Erna Margrét Erlendsdóttir, 6b, 2. t.v.
„Ég nennti ekkert að elda í gær og fékk
mér bara hrökkbrauð með rækjusalati.“
Anna S. Ingvarsdóttir, 6a, 1. t.v.
„Grísakjötspottréttur.“
Herbert V. Baldursson, 6b, 3. t.v.
„Ég var nú ekki heima en kærastan
var með ekta íslenskan heimilismat
fyrir krakkana, steiktan fisk í raspi.“
Kjartan Sturluson, 6a, 2h, t.h.
„Ég gerði Grýtu, sem er
einskonar pottréttur.“
Baldur Ingi Jónasson,
6 3, t.v.
„Lasagna, sko alvöru
heimagert lasagna.“
Helga Salóme Ingimars-
dóttir, 6 3. t.h.
„Burritos.“
Kristjana Björk Magnús-
dóttir, 6. 4 t.h.
„Hér var kjúklingaréttur í ofni.“
Magnús Ásbjörnsson, 6, 1. t.v.
„Ég nennti ekki að elda og sótti
tælenskan mat, geri það stundum.“
Hreinn Bernharðsson, 6a, 4, t.h.
Uppskriftin
Natthawatt Voramool ætlaði
að stoppa stutt á Íslandi fyrir
tíu árum en varð ástfanginn,
gifti sig og rekur í dag feiki-
vinsælan veitingastað, Ban
Kúnn í Hafnarfirði.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
„Ég er fæddur og alinn upp í Tæ-
landi þar sem fjölskyldan mín
rak veitingastað, svo ég vann sem
kokkur áður en ég flutti til Íslands,“
segir Natthawatt Voramool sem
kom hingað í fyrsta sinn sem ferða-
maður með fjölskyldu sinni fyrir
tíu árum. Ferðin reyndist örlagarík.
„Ég hitti Svavar á kaffihúsi í miðbæ
Reykjavíkur í þessari ferð og í dag
erum við giftir,“ segir Natthawatt
og hlær. „Ég er hér fyrir ástina.“
Ákvað að opna stað
innan þriggja ára
„Við búum í Hafnarfirði og til að
byrja með vann ég við að sjá um
gamalt fólk á Hrafnistu. Ég var allt-
af að elda tælenskan mat heima og
vinir Svavars sem komu í heimsókn
voru alltaf að hæla mér fyrir mat-
inn,“ segir Natthawatt. Vinsældir
réttanna hans jukust jafnt og þétt
og fyrr en varði var hann farinn að
sinna pöntunum fyrir veislur og
fyrirtæki. „Ég ákvað að ég skyldi
opna stað eftir þrjú ár og byrjaði að
undirbúa það smátt og smátt. Ég
er ekki mjög hrifinn af því að taka
svona stóra ákvörðun í einu skrefi.
Ég safnaði hlutum í eldhúsið, í
skreytingar, flísar og ýmislegt sem
þurfti og eftir þrjú ár var ég kom-
inn með gott safn. Svo opnuðum
við Svavar Ban Kúnn, sem þýðir
heimili á tælensku, hér á Völlunum
fyrir tveimur árum.“
Að elda er að gefa
Hróður eldamennsku Natthawatt
hefur borist langt út fyrir Hafnar-
fjörð en samkvæmt heimildum
blaðamanns gerir fólk sér ferð
úr Reykjavík og Mosfellsbæ til að
bragða réttina sem allir eru eldaðir
frá grunni. „Í tælenskri matargerð
er mikilvægt að nota rétt krydd og
að hráefnið sé ferskt, aldrei neitt
frosið. Ég kaupi kjúklinginn frá
íslenskum framleiðanda og
nautakjötið fæ ég allt hér í
Fjarðarkaupum. En það sem
er sérstakt við matinn hjá
okkur er að við eldum hann
frá hjartanu. Sumir elda bara
og elda en leggja ekkert í elda-
mennskuna. Að elda mat er að
gefa öðrum hluta af sér, þess vegna
verður maður að gera það vel.“
Eftir að staðurinn tók yfir
mestan hans tíma eldar Natthawatt
sífellt minna heima hjá sér en oftast
verður þó tælenskt fyrir valinu. „Ef
mig langar í íslenskan mat þá bið ég
Svavar um að elda fyrir mig. Mér
finnst allur íslenskur matur góður,
allt nema skata.“
Natthawatt Voramool rekur tælenska veitingastaðinn Ban Kúnn í
Hafnarfirði ásamt eiginmanni sínum, Svavari G. Jónssyni.
Á Íslandi fyrir ástina
Eggjanúðlur fyrir
fjóra
1 pakki eggjanúðlur (400 g)
4 egg
480 g kjöt að eigin vali (t.d.
kjúklingur, nautakjöt, svína-
kjöt eða rækjur)
Blandað grænmeti að eigin vali
(t.d. hvítkál, blómkál, gulræt-
ur, brokkolí eða vorlauk)
2 msk sykur
1 tsk salt
2 msk ostrusósa eða soya sósa
(ostrusósa passar betur og
fæst í öllum tælenskum og
asískum búðum)
150 ml vatn með kjötkrafti
4 msk olía til steikingar
Sjóðið eggjanúðlur í 5-6 mínút-
ur. Skolið vel upp úr köldu vatni
þegar þær eru tilbúnar og sigtið
allt vatn í burtu.
Steikið kjöt á pönnu
upp úr olíu. Takið
kjötið af pönn-
unni þegar það
er tilbúið og
steikið egg.
Þegar eggin
eru tilbúin
bætið þá
kjötinu við og
blandið saman.
Bætið vatni með kjöt-
krafti út í. Bætið við sykri og
salti og annaðhvort ostrusósu
eða soya. Blandið vel saman og
bætið núðlunum við og blandið
aftur saman. Að lokum er
grænmetinu bætt við, blandað
í 1-2 mínútur og þá er rétturinn
tilbúinn.
Hádegismatseðillinn á Ban
Kúnn kostar 1650,- kr. og
kvöldmatseðillinn 1700,-kr.
* E f g r e i t t m e ð N e t g í rój ú n í & s e p t . - o k t .
LOS ANGELES
26.999 kr.f rá *
* E f g r e i t t m e ð N e t g í róm a í - j ú n í & s e p t . - o k t .
MONTRÉAL
14.999 kr.f rá *
* E f g r e i t t m e ð N e t g í rój ú n í & s e p t e m b e r
NICE
17.999 kr.f rá *
72 | fréttatíminn | Helgin 11. mars–13. mars 2016