Fréttatíminn - 11.03.2016, Síða 92
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
„Mamma var þýsk en kom til Íslands
að vinna sem vinnukona þegar hún
var átján ára. Hún fór að vinna í vit-
anum á Siglunesi, varð ástfangin af
vitaverðinum, pabba mínum, og átti
með honum sjö börn,“ segir Marsibil
Erlendsdóttir sem er fimmta barn
vitavarðanna í Siglunesi.
Þegar Marsibil var átta ára var
faðir hennar fluttur um set, á Dala-
tanga, þar sem hún ólst upp og
hefur búið meira og minna síðan.
„Það var gott að alast upp hérna. Við
krakkarnir þurftum að deila her-
bergi og gengum í fötunum af hvert
öðru en það var bara fínt. Þetta er
auðvitað algjör klikkun nú til dags,
að börn þurfi að eiga sér herbergi og
sér sjónvarp og sér allt, þau verða
bara biluð í hausnum af þessu.“
„Ég fór fyrst í skóla þegar ég var
tíu ára, inn í Mjóafjörð, og var þar
í þrjá vetur. Svo fór ég á Eiða og
var þar í þrjá vetur,“ segir Marsibil
sem gekk síðar einn vetur í Bænda-
skólann á Hólum en flutti svo aftur
heim á Dalatanga til að leysa föður
sinn af. Stuttu síðar fór hún að búa
með manninum sínum, þá 21 árs
gömul. „Það var nú þannig að hann
var loftskeytamaður og við kynnt-
umst í gegnum síma. Þá sendi ég
alltaf veður í gegnum síma og þá
kynntist ég Heiðari, við vorum
alltaf að kjafta hægri og vinstri
svo þetta var voða rómantískt. Við
vorum vinir til að byrja með, hitt-
umst fyrst á Eskifirði en svo var
ég hjá honum heilt sumar fyrir
sunnan og þá ákváðum við að flytja
saman austur og byrja búskap með
kindur í húsinu hliðina á mömmu
og pabba.“
Ungu hjónin áttu tvö börn og
höfðu stunduðu búskap í fimmtán
ár þegar Marsibil tók við starfi föður
síns. Á Dalatanga er veðurathugun
allan sólarhringinn og veðurupplýs-
ingar þurfa að berast á þriggja tíma
fresti, sem þýðir að Marsibil hefur
ekki sofið lengur en þrjá tíma síðan
hún tók við starfinu, fyrir tuttugu
og þremur árum. „Ég er alltaf með
hreinan galla hérna við útidyrnar
sem ég stekk bara í á náttfötunum.
Þetta venst eins og önnur vinna.
Þetta er ekkert mál. Ég sofna alltaf
um leið aftur nema það sé eitthvert
vesen með rafmagnið,“ segir Marsi-
bil. Hún segir annars ekkert hafa
komið upp á þessi ár sem mætti telja
erfitt, nema þá kannski tíminn sem
Heiðar, maðurinn hennar, var með
alzheimer. „Það var ægilegt stress og
vesen svo ég svaf lítið þá.“
„Yfirleitt fer ég á lappir um hálf
átta og fer að setja út hundana, svo
gef ég hestunum og kindunum og
svo fer ég að mjólka. Svo stússast ég
eitthvað fram að hádegi. Í dag fór
ég í langan útreiðartúr inn í Skriður
eftir hádegi og svo fór ég að temja
hunda. Ég hef alltaf verið með hesta,
kindur, geitur, kýr og hunda en þeg-
ar Heiðar dó, fyrir tveimur árum,
seldi ég kvótann og hef verið að
draga saman síðan. En nú er dóttir
mín komin aftur heim og vill helst
fá kindurnar aftur, henni finnst
svo fínt að vera hér. Enda er gott
að vera hér. Það er nóg um að vera
allan daginn. En taktu eftir að sumir
öfunda mig svakalega á meðan aðrir
segja að ég sé snarklikkuð. Það er
bara þannig.“
92 | fréttatíminn | Helgin 11. mars–13. mars 2016
MARS
Marsibil ólst upp á Siglunesi við Siglufjörð þar sem faðir hennar var vitavörður, og síðar á Dalatanga
þangað sem fjölskyldan flutti þegar Marsibil var átta ára. Hún tók við starfi föður síns fyrir tuttugu og
þremur árum. Dalatangi er ysta nes á fjallgarðinum milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar.
Lífsreynslan
Hefur búið í vita allt sitt líf
Djöflarokksveitin Misþyrming spilar á
Húrra á föstudag klukkan 21. Misþyrming
hefur verið á miklu flugi í svartmálmssen-
unni síðan plata hennar, Söngvar elds og
óreiðu, kom út á síðasta ári. Það er mikil
orka í hljómsveitinni og þykja hljómsveit-
armeðlimir ótrúlega þéttir á tónleikum.
Á tónleikunum kemur sveitin fram ásamt
gestum, en á huldu var, þegar þetta var
skrifað, hverjir verða.
Mynd | Stuart Richardson
Misþyrming
lofar engri
miskunn á
Húrra
Mynd | Rakel Erna Skarphéðinsdóttir
vitar eru á Íslandi
og sjö vitaverðir.
125
Á Dalatanga er veðurat-
hugun allan sólarhringinn,
sem þýðir að Marsibil hefur
ekki sofið lengur en þrjá
tíma í einu síðan hún tók
við starfinu, fyrir 23 árum.
23
kviknaði ljós í
Reykjanesvita, fyrsta
vita á Íslandi.
1878
Foreldrar Marsibilar voru
vitaverðir og nú starfar
hún og systir hennar
báðar sem slíkir.
Heimur boylesque kynntur Íslendingum
Luminous Pariah er engu líkur
„Auk þess að vera fallegasta mann-
eskja sem ég hef séð, nær hann að
leika sér með kynþokka og húmor
og vera gríðarlega fær að nota
líkamann sinn á sama tíma,“ segir
Margrét Erla Maack um boylesque-
stjörnuna Luminous Pariah. Boyles-
que er eins konar burlesque-dans
stráka.
Luminous heldur í kvöld, föstu-
dag, námskeið í Kramhúsinu fyrir
þá sem áhuga hafa á list burlesque,
dragi eða sviðslistum almennt.
Margrét sá Luminous fyrst á bur-
lesque-hátíð í Seattle og var svo
agndofa að hún fór rakleiðis til
hans og bað hann að koma til Ís-
lands. Í fyrra lét hann verða af því
og kom fram með Skinnsemis-hópn-
um og á opnunarhátíð Gay Pride.
Námskeiðið heldur Luminous fyrir
dragdrottningar, sviðslistafólk,
áhugasama karla og konur og allt
þar á milli.
Luminous kom einnig fram á
Hits&Tits-kvöldi Margrétar og
Ragnheiðar Maísólar í gær, ásamt
listamönnum á borð við Lalla töfra-
mann, harmonikustrippara og með-
limi Sinfóníuhljómsveitarinnar sem
spilaði á sög. Óhætt er því að segja
að fólk á borð við boylesque-stjörn-
una auðgi sviðslíf Íslands. Margrét
segir senu óhefðbundinna skemmt-
ana stækka óðum. „Luminous kem-
ur með svo stóra tösku af búningum
og fylgihlutum að Elizabeth Taylor
gæti verið hreykin af því. Sviðs-
framkoma hans er engri lík.“
SÍMI 5 700 900
KRINGLUNNI 2. HÆÐ | HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI | SPÖNGINNI,
GRAFARVOGI | SMÁRALIND, 1 HÆÐ.
ÞAÐ ERU
KRÓNUDAGAR
Gildir til
26. mars
Valdar SELESTE umgjarðir á aðeins 1 kr.
við kaup á glerjum!
Tveggja ára ábyrgð á umgjörðum
og frí gleraugnatrygging fylgir með.
1
kr.
1
kr.