Fréttatíminn - 15.04.2016, Blaðsíða 16
Það leikur draugur lausum
hala á Vesturlöndum,
draugur popúlismans. Um
alla Evrópu eru gömlu
stjórn málaflokkarnir
að tapa stjórnartaum-
unum til nýrra hreyfinga,
hvort heldur eru hægri
róttæklingar, Front National
í Frakklandi, eða vinstri
róttæklingar, Podermos á
Spáni.
Mímir Kristjánsson
ritstjorn@frettatiminn.is
Í Bandaríkjunum eru teikn á lofti
um að frambjóðandi sem flokks-
eigendur styðja ekki, eigi raun-
verulegt tækifæri á því að verða
forseti. Í Demókrataflokknum
vekur velgengni Bernie Sanders
gegn Hillary Clinton athygli meðan
hægri popúlistinn Trump hefur
brotið andstöðu innan Rebúblik-
anaflokksins á bak aftur.
Fleyið sem vaggar á öldum
popúlismans uppi á Íslandi er
sjóræningjaskúta Birgittu Jóns-
dóttur. Píratar hafa trónað efst í
skoðanakönnunum óslitið í meira
en ár og eru nú nær jafnstórir
og gömlu flokkarnir, Sjálfstæðis-
flokkur og Framsóknarflokkur, til
samans. Margir Íslendingar hugsa
um Pírata sem dæmigert íslenskt
fyrirbæri, afleiðingu þeirrar djúpu
fyrirlitningar sem Íslendingar hafa
á stjórnmálamönnum eftir efna-
hagshrunið 2008. En Píratar eru
klassískur popúlistaflokkur, bara
einn margra í heilum sjórængja-
flota sem er að takast að bylta öll-
um stjórnmálum í Vestur-Evrópu.
Birgitta Jónsdóttir á meira sam-
eiginlegt með Bernie Sanders en
Sigmundi Davíð. Raunverulega
á hún meira sameiginlegt með
Donald Trump þótt hana langi
varla að heyra það. Ég vil þó undir-
strika að ég horfi á popúlismann
sem jákvætt afl, mjög nauðsynlegt
verkfæri sem fólkið notar til að
fullvissa sig um að þjóðkjörnir
fulltrúar séu að vinna vinnuna
sína. Popúlistabylgjan núna er
svar fólksins við því að stjórnmála-
menn hafi sett landið sitt á sölu.
Hann er til í mörgum gerðum, allt
frá þeirri fremur geðþekku, líkt og
Birgitta Jónsdóttir og Píratarnir,
og allt að alþýðlegum fasisma Do-
nalds Trump.
Samnefnarinn milli allra þess-
ara hreyfinga er þó að þær eru far-
vegur fyrir fólk til að taka stjórnar-
taumana frá valdastéttinnni, sem
hefur haldist illa á þeim.
Það sem er áhugavert, er að
gömlu hægri og vinstri hugtökin
eru nú í bakgrunni eldri og mikil-
vægari skilgreiningar, sem á rætur
sínar að rekja aftur til frönsku
byltingarinnar. Spurningin sem
brennur á vörum fólksins á götum
Aþenu, í heitu pottunum i Reykja-
vík og kosningafundum í Wis-
consin og Ohio er þessi: Á valdið
að vera hjá meirihluta fólksins eða
lítilli elítu sem veit betur en fólkið
sjálft um hvernig framtíðin á að
líta út. Á átjándu öld var elítan að-
allinn og klerkastéttin en á okkar
dögum eru það bankamenn,
stjórn málamenn og embættis-
menn.
Það er sérlega alvarlegt að
stjórn málamennirnir, sem eiga
að vera fulltrúar fólksins, hafa
vanrækt skyldur sínar í mörgum
löndum og staðið saman sem einn
maður í kringum sameiginlega
hagsmuni, í baráttu við fólkið.
Hvergi hafa þessar átakalínur ver-
ið jafn skýrar og á Íslandi á árun-
um eftir hrunið. Skilin milli hægri
og vinstri eru nánast ógreinileg,
línan liggur milli þeirra sem telja
að stjórnmálamenn eigi að fá að
starfa í friði í bakherbergjum og
þeirra sem krefjast þess að fólkið
fái meira milliliðalaust vald í hend-
ur yfir framtíð landsins.
Við sáum þetta í stríðinu um
Icesave 2010. Þá vildi vinstri hreyf-
ingin, með Samfylkinguna og
Jóhönnu Sigurðardóttur í broddi
fylkingar, berja í gegn samning
yfir hausamótunum á fólki. Þegar
forsetinn neitaði að skrifa undir
lögin frá Alþingi, hvöttu kjörnir
fulltrúar, fólkið til að vera heima
í stað þess að greiða atkvæði í
þjóðaratkvæðagreiðslunni. Ríkis-
stjórnin vann því einbeitt að því
að koma í veg fyrir að hlustað yrði
á vilja þjóðarinnar.
Svo var það stjórnarskráin. Al-
þingi féllst á það, nánast í óðagoti
árið 2008, að skrifa nýja stjórnar-
skrá. Það var mikilvægur sigur
fólksins. En síðan það var hefur
Alþingi, núna með Framsókn og
Sjálfstæðisflokk í broddi fylkingar,
gert sitt ýtrasta til að koma í veg
fyrir að vilji fólksins heyrist.
Þrátt fyrir tilviljunarkennt úrtak
úr þjóðskrá sem var kallað á sér-
stakan þjóðfund, Stjórnlagaráð,
sem var kosið af fólkinu og að tveir
þriðju þjóðarinnar hefði samþykkt
stjórnarskrárákvæðin í sérstakri
þjóðaratkvæðagreiðslu hefur Al-
þingi ekki samþykkt nýja stjórnar-
skrá. Enn og aftur eru átakalín-
urnar milli stjórnmálamanna og
almennings.
Við sáum hlægilegt dæmi
um sama hlut þegar ríkisstjórn
Sigmundar Davíðs dró til baka
umsóknina um aðild að Evrópu-
sambandinu og neitaði íslensku
þjóðinni um að fella aðildarum-
sóknina í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Það sýnir meira en nokkuð annað
hversu miklar áhyggjur stjórnmála-
stéttin hefur af því að fólkið fái
sjálft að ráða. Meira að segja þegar
þjóðin er sammála valdhöfum.
Ekki þykir ráðlegt að setja fordæmi
fyrir því og venja fólk á að taka þátt
í að stýra þjóðarskútunni.
Það er í svona málum sem Pírat-
ar standa með almenningi. Flokk-
urinn hefur enga aðra skoðun á
ESB en að þjóðin eigi að fá að kjósa
um málið. Píratar vilja einnig sam-
þykkja nýja stjórnarskrá. Þetta er
klassískur popúlísmi, eins og við
þekkjum um alla Evrópu og frá
kosningabaráttu Trump og Sand-
ers í Bandaríkjunum.
Birgitta Jónsdóttir er vel
meðvituð um að það er ekki
hugmyndafræði Pírata sem
gerir það að verkum að þeir
mælast með 38 prósent í
könnunum. Í Noregi hefur
systurflokkurinn, með sömu
hugmyndafræði, vart 38 at-
kvæði. Píratar sækja fram af
því þeir eru andstjórnmála-
flokkur, flokkur andstjórn-
málamanna og Birgitta
Jónsdóttir er andstjórnmála-
maður líkt og Bernie Sand-
ers og Donald Trump.
Vaxtarskilyrði popúl-
ismans eru sérlega góð
á Íslandi. Stór norræn
rannsókn, sem nýlega
var kynnt, sýnir að
þrjátíu prósent Norð-
manna og tuttugu og
fimm prósent Dana
bera mikið traust
til þjóðþinga sinna,
á Íslandi eru það
fimm prósent.
Meðan popúlista-
flokkar annars
staðar streitast
við að verða
nógu stórir til
að mynda rík-
isstjórn, er erf-
itt að sjá fyrir
sér íslenska
ríkisstjórn án
Pírata eftir
kosningar.
Einar Már
Guðmunds-
son skrifar í
Hvítu bókinni
að Ísland hafi
verið tilrauna-
stöð nýfrjáls-
hyggjunnar
á árunum
fyrir hrun.
Velgengni
Pírata gerir
það að verk-
um að Ísland er aftur að verða
tilraunastöð, í þetta sinn fyrir
popúlista. Hvað gerist þegar pop-
úlistaflokkar ná völdum. Getur
andstjórnmálamaðurinn orðið for-
sætisráðherra án þess að verða um
leið hluti af stjórnmálastéttinni?
Birgitta Jónsdóttir hefur fram að
þessu aftekið að taka við starfinu
sem næstum fjörutíu prósent Ís-
lendinga biðja hana um að gegna.
Verða Píratar bara hluti af
kerfislægri stjórnmálastétt eða
getur flokkurinn áfram orðið
verkfæri fólksins í baráttunni
við Alþingi, verandi stærsti
flokkurinn í Alþingishús-
inu.
Vinni Píratar í alþing-
iskosningunum munu
popúlistaflokkar um
allan heim fylgjast
spenntir með.
Mímir Krist-
jánsson er
blaðamaður
á Klasse-
kampen í
Noregi.
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
SMELLTUÁ KÖRFUNANETBÆKLINGUR Á WWW.TOLVUTEK.IS MEÐ GAGNVIRKUM KÖRFUHNAPP
3840x21604K-UHDIPS SKJÁR MEÐ178° SJÓNARHORNI
BAKLÝSTLYKLABORÐ Í FULLRI STÆRÐ
Öflug leikjafartölva úr úrvalsdeild
Acer með Soft-touch metal finish,
15” 4K IPS skjá, ofur öflugu leik-
jaskjákorti og Dolby 4.0 hljóðkerfi.
219.900
NITRO
NÝTT
VAR AÐ
LENDA
4BLS
BÆKLINGURSTÚTFULLUR AF NÝJUM SJÓÐHEITUM VÖRUM!
Birgitta Trumpsdóttir
Birgitta Jónsdóttir er vel meðvituð um að það er ekki
hugmyndafræði Pírata sem gerir það að verkum að
þeir mælast með 38 prósent í könnunum.
16 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 15. APRÍL–17. APRÍL 2016