Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 15.04.2016, Side 42

Fréttatíminn - 15.04.2016, Side 42
Guðfinna Kristinsdóttir, 24 ára, og Hrannar Örn Karlsson, 25 ára, keyptu sér eigið húsnæði í Miðtúni fyrir tveim árum. Bæði hafa þau kynnst leigumarkaðnum í gegnum mæður sínar í uppvexti sínum og bæði óska þau sér öryggis í þeim efnum. Þau eru týnda kyn- slóðin á þrítugsaldri sem í þeirra tilfelli hefði aldrei getað átt fyrir útborgun í eigin húsnæði nema vegna tjóns og missi í eigin lífi. Alda Lóa Leifsdóttir altaloa@frettatiminn.is Kynntust í hópi tölvunörda Þrátt fyrir ungan aldur eiga þau Guðfinna og Hrannar eigið húsnæði í Miðtúni og sleðahundinn Tyrael en nafnið hans er fengið úr tölvuleiknum Diablo. Í leiknum er Tyrael engill viskunnar en þessi skír- skotun í engil er persónulegri fyrir Hrann- ar og Guðfinnu af því að sama ár og þau fengu hundinn, 2013, dó Elísabet, móðir Hrannars vegna veikinda. Hún var nítján og hann tuttugu ára þegar fóru að umgangast hvort annað í gengum vinahóp þeirra við Tækniskólann. Hópurinn var samsafn af fólki sem hefur sameiginlegan áhuga á tölvutækni, tölvu- leikjum og bíómyndum. Hrannar lærði tölvunarfræði og Guðfinna hönnun við Tækniskólann. „Ég veit ekki hvernig við byrjuðum að tala saman þannig að það endaði í sam- bandi. Þetta þróaðist vægast sagt mjög hægt,“ segir Guðfinna. „Ég hef áhuga á tækni og tölvum en ég er miklu minna í því heldur en hann og vinir hans. En ég náði alltaf að spjalla við þá um tölvuleikina,“ segir hún og Hrannar bætir við: „Það er kannski ekki endilega hobbíið sem tengir okkur heldur er það frekar hvernig við lít- um á lífið.“ Guðfinna segir að það sem að- greini þau sé að hún sé kvíðin yfir minnstu atriðum en Hrannar alltaf pollrólegur og algjör klettur í sambandinu. Lærðu ung að vinna fyrir sér Við nánari athugun er það fleira sem þau eiga sameiginlegt og kannski ekki tilviljun að þau búa saman í dag. „Ég byrjaði að vinna 11 ára við að steikja kleinuhringi og raða í hillurnar þegar mamma rak Esso bensínstöð í Reykholti. Ég fékk smá laun og út frá því lærði ég að vinna og byrjaði 14 ára að vinna á Motel Venus með skólanum í Borgarnesi en pabbi rak Mótelið. Við bjugg- um þar og ég hjálpaði til við að koma upp kvöldmatnum fyrir gestina. En svo vann ég líka á sumrin á Hótel Eddu í Neskaupstað.“ Draumurinn er að flytja til útlanda og lifa almennilegu lífi Fyrirmynd Búra er hinn danski Havarti-rjómaostur sem athafnakonan Hanne Nielsen þróaði um miðja nítjándu öld á býli sínu „Havarthigaard“ fyrir norðan Kaupmannahöfn. Framleiðsla á Búra hófst árið 1980. Hann er mjúkur og smjörkenndur ostur með vott af ávaxtasætu, ljúfum sítrustóni í lokin og langvarandi eftirbragði. Rjómakennd einkenni ostins parast vel með sætum, örlítið sýrðum ávöxtum, berjum og kryddsultum. BÚRI LJÚFUR www.odalsostar.is Fjárhagslega ábyrg og unnu með skóla Þegar pabbi og mamma skildu og við mamma og litla systir mín fluttum í bæinn vann ég í Eldsmiðjunni með Hagaskóla og svo Tækniskólanum. „Ég er alin upp þannig að ég sá um mig sjálf og tók aldrei lán. Ég keypti fyrsta bílinn minn sjálf og borgaði bílprófið og keypti allar skólabækurnar fyrir eigin peninga.“ Hrannar skýtur inn í: „Sama hér, eina lánið sem ég hef tekið er íbúðarlánið okkar.“ Guð- finna segir að mamma Hrannars hafi verið öryrki og einstæð með rosalega lágar tekjur og hafi kennt honum og bróður hans að taka ekkert auka lán né að vera með auka greiðslu- byrði, heldur þvert á móti að lifa ódýrt á því sem væri í boði. Hrannar tekur undir þetta og segir að það hafi ekki verið fá skipti sem hann hafi borðað núðlur í matinn.“ Mæður þeirra eru bakhjarlarnir Annað sem einkennir bakgrunn þeirra Guð- finnu og Hrannars er að bæði uxu þau úr grasi hjá mæðrum sem störfuðu ýmist við umönnunar- og/eða verslunarstörf en störf- Myndir | Alda Lóa Guðfinna og Hrannar með sleðahundinn Tyrael fyrir framan heimili sitt og fjárfestingu. Týnda kynslóðin Ungt fólk hefur dregist efnahagslega aftur úr öðrum aldurshópum. Það hefur lægri laun og fær minni stuðning en fyrri kynslóðir. Margt ungt fólk reynir að lifa íslenska drauminn; vinnur mikið og skuldar mikið í von um að þetta reddist. Fréttatíminn mun fjalla um týndu kynslóðina á næstu vikum. TEKJUR -10% -54.580 kr. BÆTUR -34% -7305 kr. EIGUR -12% -1.635.499 kr. EIGIÐ FÉ -39% -1.607.853 kr. 25–39 ára frá aldamótum til 2014 Unga fólkið situr eftir Ungt fólk á Íslandi hefur setið eftir í efnahagslegu til- liti. Á meðan kjör miðaldra og eldra fólks eru í dag nokkuð betri en um þau voru um aldamótin eru kjör ungs fólks umtalsvert lakari, tekjur lægri og eignastaða verri. Þessi skil á milli efna- hagslegrar stöðu kynslóð- anna skýra rof á pólitíska sviðinu og krónískan land- flótta. Minni tekjur, lægri bætur Frá aldamótum hafa tekjur ungs fólks dregist saman á meðan tekjur eldra fólks hafa aukist, fjárhagsleg staða unga fólksins hefur versnað á meðan staða eldra fólks styrkist og yngra fólkið hefur fengið minni stuðning út úr skattkerfinu á sama tíma ríkið hefur aukið stuðning við eldra fólk. Hækkun íbúða- verðs hefur haldið ungu fólki frá kaupum og leiguverð hefur keyrt niður kaupmátt. Fleiri gefast upp Það er með öðrum orðum mun erfiðara að vera ungur í dag en um síðustu aldamót. Og skal þá engan undra að ungt fólk hafi gefist upp á stjórnmálaflokkunum sem hafa byggt upp og viðhaldið kerfinu sem vinnur gegn því. Og það er skiljanlegt að margt af unga fólkinu kjósi að fóta sig fremur í nágranna- löndunum þar sem er ríkari stuðningur við námsmenn, börn og unga foreldra. 42 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 15. APRÍL–17. APRÍL 2016

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.