Fréttatíminn - 15.04.2016, Blaðsíða 37
Módel: Hrönn Johannsen
Gleraugu: Lindberg
– NÝTT MERKI HJÁ OPTICAL STUDIO
MÓDEL: HRÖNN JOHANNSEN
GLERAUGU: BOTTEGA VENETA
Kolvetnaskert
og próteinríkt
með suðrænu
bragði
– Nú fáanlegt
í 500 g umbúðum
Náttúrulegur
sætugjafi
Brann út við gjaldþrot
Fyrir nokkrum árum ráku Bogi
og Nok einnig kaffihús á Álftanesi
en það æxlaðist þannig að Bogi
fékk augastað á eyðitanga þar sem
var hvorki rafmagn né vatn og
bað hreppstjóra Álftaness að fá að
byggja hjónunum heimili. Þar ráku
þau veitingastaðinn Gullna hliðið
um skeið en í hruninu misstu þau
hann í skuldir og Bogi lýsti sig
gjaldþrota.
„Ég brann alveg út eftir gjald-
þrotið. Varð eins og gullfiskur,
mundi ekkert og gerði ekkert. En
konan og strákarnir björguðu mér
alveg, ég var hættur að geta unn-
ið.“ Í framhaldinu ákváðu hjónin
að byrja upp á nýtt, og keyptu litla
lóð í Garði og gerðu upp húsið sem
þau búa í nú. Fljótlega eftir að þau
fluttu þangað fór Bogi að velta fyrir
sér hvernig hann gæti komið sér
aftur á lappirnar, en ákvað að fara
sér hægar í þetta skipti.
Löggan lokar á þarabaðið
Hann kom upp þarabaði í bílskúrn-
um og seldi að því aðgang, en hann
hafði reynslu af rekstri slíks baðs
frá Álftanesinu. Fljótlega var þó
lögreglan mætt til að loka baðinu
vegna leyfisleysis baðsins, en Bogi
dó ekki ráðalus. „Ég fór þá að selja
venjulega steina af bílaplaninu hjá
mér og fyrir hvern keyptan stein
fékk maður aðgang að baðinu og
það mátti alveg.“ Þessi aðferð var
þó ekki langtímalausn svo Bogi
hætti með þarabaðið.
Fyrir tveimur árum keypti Nok
svo tveggja hæða rauðan strætó,
svipaðan þeim sem keyra um
stræti Lundúna. Þau langaði til að
stofna óhefðbundinn veitingastað í
vagninum, elda pad thai og syngja
í karíókí.
„Heilbrigðiseftirlitið gaf ekki
leyfi fyrir staðnum, fyrst vegna
FRÉTTATÍMINN |