Fréttatíminn - 15.04.2016, Blaðsíða 32
Erfiðar ömmur
Kæra móðir – takk innilega fyrir
spurninguna þína. Ég veit að þú
ert ekki sú eina í þessum heimi
sem hefur lent í þessum aðstæðum
eða svipuðum. Málið er að mæður
sem hafa alið upp barn finnst
mörgum hverjum, ef ekki flestum,
þær verða sérfræðingar og jafnvel
snillingar í þeim málum og það
má til sanns vegar færa. Í ljósi þess
finnst mörgum þær fá leyfi til að
gefa ráð og hafa skoðanir um alla
hluti er kemur að barnauppeldi.
Vandinn er auðvitað að við erum
ekki alltaf bestu dómarar í eigin
sök. Þó eitt hafi hentað einu barni
þá er alls ekki víst það sama henti
því næsta. Fyrir alla þá sem hafa
skilað góðu verki og hafa komið
barni til manns er eitthvað sem
allir geta verið stoltir og því viljum
gjarnan miðla af því hvað við
gerðum og hvernig – en gleymum
að þetta er dulbúin stjórnun.
Erfiðar tengdó
Auðvitað er bara gott eitt sem býr
að baki hjá tengdamóður þinni
en það gerir einmitt málið aðeins
flókið. Áhyggjur þínar eru rétt-
mætar því það skiptir öllu máli
fyrir barnið að fá ekki misvísandi
skilaboð um það sem má. Þá er al-
veg ljóst að þið foreldrar leggið lín-
urnar með það. Frá fæðingu eruð
þið að mynda tengsl við barnið og
við finnum mjög fljótt hvað virkar
og hvað virkar ekki. Það er enginn
betri til að meta það en foreldrar
barna hvað hentar barninu best.
Sjálfstraust í uppeldi skiptir
miklu máli og það fáum við
með því að trúa á það sem við
erum að gera og vinna að því
og þá þarf sátt við tengdó.
Sannleikurinn er eina leiðin
Í þessu sambandi þá er sann-
leikurinn eina vopnið. Þú þarft
að byrja á því að ræða þetta við
manninn þinn og sammælast
um þá leið sem þið farið. Eins og
við vitum þá getur verið erfitt að
segja það sem í hjarta okkar býr
en það er hægt að gera það á mjög
uppbyggjandi hátt. Það sem þú
gætir t.d. sagt við tengdamóður
þína er að þú metir mjög mikils
áhuga hennar og aðstoð og þú
vitir að hún vilji þér og ykkur allt
það besta. Hins vegar teljir þú að
það henti fjölskyldu ykkar að gera
hlutina á þann veg sem þið hafið
ákveðið. Segðu henni að fyrir
drenginn ykkar sé mjög mikilvægt
að fá skýr skilaboð og hann eigi
það skilið. Segðu henni jafnframt
að það skipti þig miklu máli að fá
stuðning hennar við þá ákvörðun.
Ekki óttast sársaukann sem erfiðu
samtali fylgir, þetta mun verða til
þess að treysta ykkar bönd og hún
mun meta þig fyrir einlægni þína.
Magga Pála
Uppeldisáhöldin
Sendið Möggu Pálu spurningar á
maggapala@frettatiminn.is og
hún mun svara í næstu blöðum.
Erfið tengdó?
Hæ frábæra Magga Pála! Takk fyrir allt.
Sonur minn er í einum af Hjallastefnuleikskólunum þínum
og nýtur hvers augnabliks og við hjónin erum mjög ánægð.
Ég vildi spyrja þig um fjölskyldumál sem snýst samt um
uppeldi sonarins. Þannig er mál með vexti að ég og tengda-
mamma mín höfum mjög ólíkar áherslur í uppeldinu og
það verður stundum erfitt. Fyrst verð ég að segja að tengda-
mamma er alveg frábær og mikil hjálp fyrir okkur og við
viljum að hún sé ríkur hluti af æsku hans. En er það heppi-
legt þegar annar aðaluppalandinn reynir að vera strangur og
fylgja reglum (mamma og pabbi) en hinn (amma) lætur allt
undan og dekrar? Ég er líka að tala um á heimilinu okkar,
í matartíma og varðandi að horfa á sjónvarp að þá kemur
það fyrir að ég segi nei og þá horfir litli guttinn spyrjandi á
ömmu sína sem segir já. Mér finnst ekki heppilegt að gefa
svona ólík skilaboð en hvað segir þú um þetta? Og eins með
að strákurinn fái að heyra að ömmu hans finnist ég til dæmis
ekki elda nógu sniðugan mat sem hentar ekki börnum, ég
er alin upp í útlöndum og vandist allt öðruvísi matargerð
en tíðkast hér heima, en mér finnst að barnið mitt eigi bara
að venjast á sama mat og foreldrarnir borða. Það skal tekið
fram að í leikskólanum borðar strákurinn góðan og hefð-
bundinn íslenskan mat svo hann er ekki að missa af neinu.
Ég hlakka til að vita hvort þú getir gefið mér einhver góð ráð
varðandi þessi mál. Með bestu kveðju! Ráðvillt mamma
SDS-MAX Brotvél
með sogbúnaði
Model HM1203
Afl 1510 W
Höggtíðni 950-1900/mín
Höggkraftur 19,1 J
Titringur 15,5 m/sek2
Þyngd 9,7 kg
SDS-PLUS bor- og brotvél fylgir með í kaupum
Kr. 138.000,-
með VSK
ÞÓR FH
REYKJAVÍK:
Krókháls 16
Sími 568-1500
AKUREYRI:
Lónsbakka
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
32 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 15. APRÍL–17. APRÍL 2016