Fréttatíminn - 15.04.2016, Blaðsíða 86
Unnið í samstarfi við
Hjolathjalfun.is
„Þú átt ekki að þurfa að fara á æf-
ingu, þú átt að vilja fara á æfingu“
segir María Ögn Guðmundsdóttir,
hjólaþjálfari og eigandi vefsíð-
unnar hjolathjalfun.is. „Það er svo
skemmtilegt að stunda hreyfingu
utandyra og í góðum félagsskap.“
María Ögn hefur síðustu ár ein-
beitt sér að hjólaþjálfun, hjólreiða-
tengdum námskeiðum og fræðslu.
Fjölbreytt námskeið eru í boði á
vegum Hjólaþjálfunar, meðal annars
götuhjólanámskeið, fjallahjólanám-
skeið og viðgerðarnámskeið. Eins er
boðið upp á einkaþjálfun, fyrirlestra
og hópefli fyrir vinnufélaga eða
vinahópa. „Markmiðið með opnu
námskeiðunum er að fólk verði
öruggara á hjólinu. Í einkatímum
er svo misjafnt hvort ég þjálfa fólk
í hjólatækni eða hjólreiðum. Einnig
tek ég að mér að þjálfa hópa sem
hyggja á þátttöku í keppnum eins
og WOW Cyclothon eða KIA Gull-
hringnum, svo eitthvað sé nefnt,“
segir María.
María Ögn hefur lagt mikla
áherslu á að fá konur til þess
að stunda hjólreiðar. „Ég hef
haldið ófáa viðburði tengda hjól-
reiðum undanfarin ár og lagt mikinn
metnað í að auka þátttöku íslenskra
kvenna í íþróttinni.“
Hjólaþjálfun býður upp á tvo
stóra viðburði árlega sem eingöngu
eru ætlaðir konum, í maí eru
götuhjólin tekin fram og í október
er farið á fjallahjólin í drullunni.
Að sögn Maríu Agnar hefur þessi
hvatning skilað sér gríðarlega vel
til kvenna og hefur konum fjölgað
mikið í hjólreiðum undanfarin ár.
„Mér hefur tekist að koma því skila
að það er vel hægt að taka vinkonu-
spjallið og saumaklúbbinn bara úti á
hjólinu,“ segir María og hlær.
Nánari upplýsingar um Hjóla-
þjálfun og dagskrá yfir alla viðburði
tengda hjólreiðum á Íslandi má
finna á hjolathjalfun.is
Sólarvörn fyrir fólk
á ferðinni
Proderm er sænsk sólarvörn sem er sérstaklega þróuð fyrir viðkvæma
húð og verndar gegn sterkum sólargeislum við erfiðustu kringumstæður
Andreas Danielsson, fyrirliði
hjólreiðalandsliðs Svíþjóðar,
notar Proderm sólarvörn líkt og
landsliðið allt.
Unnið í samstarfi við Celsus
Proderm er sex tíma sólarvörn sem er mikið notuð við íþróttaiðkun, í siglingakeppnum, hjólreiða-
keppnum, blaki og af sundfólki. Við
hjólreiðar er mikilvægt að vernda
húðina vel og brenna ekki. Hjól-
reiðamenn gefa Proderm mikið lof.
Í löngum hjólaferðum er mikilvægt
að sólarvörnin haldi og það
gerir Proderm.
Vörn sem endist og endist
Eygló Ósk Gústafsdóttir
sundafrekskona, og fleira
sundkeppnisfólk sem
einnig notar Proderm
til margara ára, segir að
með Proderm brenni
húðin ekki þó æft sé
tímunum saman í
sundlaug í glampandi
sól. Húðin verði mjúk
og rakafyllt, fallega
brún og laus við þurrk.
Engir taumar eða hvít
himna myndast við
notkun varnarinnar.
Í keppnum er mikils
virði að vera með góða
sólarvörn eins og Pro-
derm sem myndar eins
konar varnarhimnu í
hornlagi húðarinnar.
Vörnin rennur ekki af
húðinni og þolir vel
saltan sjó.
Keppnisfólk
notar Proderm
Andreas Dani-
elsson, fyrirliði
hjólreiðalandsliðs
Svíþjóðar, hefur
góða reynslu af
notkun Proderm.
„Ég hjóla tím-
unum saman í sólinni og þarf sólar-
vörn sem ekki rennur af húðinni
í ströngum æfingum. Proderm er
eina sólarvörnin sem virkar
fyrir mig. Ég útbý allt mitt
hjólreiðakeppnisfólk með
Proderm á sólríkum keppnis-
dögum. Fyrstu kynni mín af
vörninni voru í stórri keppni
og Proderm var eina vörnin
sem ekki rann af enninu
niður í augu. Við keppum
um allan heim og nýlega
í Nepal, þar sem sólin
er gríðarsterk, var besta
tegund af sólarvörn
algjör nauðsyn.“
Hentar öllum
húðgerðum
Sólarvörnin frá Proderm
inniheldur ekki fitu og
veitir ekki glansáferð.
Vörnin smýgur hratt
inn í húðina og sérlega
þægilegt er að bera á
sig mjúka þétta froðuna
sem er afar drjúg.
Proderm er einnig til-
valin fyrir fjölskyldufólk
og fyrir börn. Vörnin fær meðmæli
frá húðlæknum og hentar öllum
húðgerðum. Proderm er laus við öll
ilmefni, paraben eða nanotækni og
grunnformúlan er læknisfræðilega
skráð. Proderm sólarvörnin fæst í
apótekum, Hagkaupum, Fjarðar-
kaupum, Nettó, Grænni heilsu og
Fríhöfninni.
Skemmtilegt að stunda
hreyfingu utandyra og í
góðum félagsskap
María Ögn býður upp á hjólaþjálfun og hefur lagt áherslu á að fá konur
til þess að stunda hjólreiðar
María Ögn býður upp á hjólaþjálfun, hjólreiðatengd
námskeið og fræðslu.
Mynd/Hari
Rafmagnshjól.is • Fiskislóð 45 • Sími 534 6600
Hollensk
rafmagnshjól
vönduð og margverðlaunuð
HjólaleigaIcelandbike.com 694 8956
2016_auglysing_frettatiminn_reykjavikbiketours-1.indd 1 13.4.2016 12:41:02
REYKJAVÍK, Dvergshöfða 2 | Sími: 535 9000 | www.bilanaust.is
KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata | HAFNARFJÖRÐUR,
Dalshrauni 17 | REYKJANESBÆR, Krossmóa 4 | EGILSSTAÐIR,
Lyngási 13 | SELFOSS, Hrísmýri 7 | AKUREYRI, Furuvöllum 15
nordrive.bilanaust.is
HJÓLUM
OG NJÓTUM!
14 | fréttatíminn | HElGIN 15. APrÍl–17. APrÍl 2016
Kynningar | Hjól