Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 15.04.2016, Blaðsíða 66

Fréttatíminn - 15.04.2016, Blaðsíða 66
Rithöfundurinn og forsetafram- bjóðandinn Andri Snær Magnason er staddur í lyft- unni hans Spessa, ljósmyndara í gömlu Kassagerðinni á Laugar- nesi. Á ferðalaginu upp fjórar hæðir hússins segir hann frá sín- um hæðum og lægðum í ástinni og Lególandi. „Sem barn dreymdi mig alltaf um Lególand, það var eins- konar Mekka æskunnar. Ég fékk þann draum ekki uppfylltan fyrr en ég hafði formlega yfirgefið áhyggjuleysi æskunnar. Ég var með tveggja ára syni mínum sem var of lítill í tækin svo við fórum saman í kubbaherbergið, eða svo- kallað Draumaland æskunnar.“ Skömmu áður en Andri Snær fór í Lególand með fjölskyld- unni bárust honum þær fréttir að vinur hans hefði svipt sig lífi. Vinur sem lifði hliðstæðu lífi og hann sjálfur. „Við gengum báðir í Árbæjarskóla og vorum vinstri bakverðir hjá Fylki. Síðar fórum við báðir í Menntaskólann við Sund, eignuðumst kærustur sem hétu Magga og áttum báðir okkar frumburð vorið 1997. Ekki nóg með það heldur eru mæður okkar alnöfnur og systur okkar heita Hulda, báðar fæddar í maí 1968. Ég stóð þarna í Draumalandi æskunnar og ábyrgð fullorðinsár- anna helltist yfir mig.“ Á þessu augnabliki ferðaðist Andri aftur í tímann til tvítugsár- anna. Hann lýsir tilfinningunni þegar allt var mögulegt og út- ópíunni þegar allar dyr standa opnar. „Árin eftir það lokar maður dyrum og tekur ákvarð- anir sem oft á tíðum hræða mann. Annarsvegar er lífið stutt og hinsvegar var hugmyndin um ævistarf óbærileg, að vera eitt- hvað eitt næstu 50 árin. Áhyggj- urnar að geta ekki framfleytt fjölskyldunni, að mistakast, verða hugmyndasnauður og brenna út. Ég var staddur í Draumalandi æskunnar þegar ég yfirgaf hana formlega.“ Hvað varðar hæðir í lífi Andra eru þær sem veita hugarró þær hæstu. „Þessar meðvituðu hæðir, líkt og þegar ég vann stærstu menningarverðlaun Þýskalands og þegar við fylltum Þjóðleik- húsið á mánudaginn, það eru miklir sigrar en þeim fylgir gjarnan stress og óróleiki. Ein af þessum hæðum sem fylgir hugarró, hamingja og einskær kærleikur, var þegar við Magga, konan mín, fórum saman til Brig- hton. Ég var að taka á móti litlum verðlaunum, ekkert viðtal, engin ræða. Við einfaldlega nutum þess að vera saman. Ég get ekki sett fingurinn á nákvæmlega hvað það var en þetta er tilfinning sem kemur frá þindinni, að vera ást- fanginn og upplifa hæðir í löngu sambandi.“ | sgk 66 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 15. APRÍL–17. APRÍL 2016 „Annarsvegar er lífið stutt og hinsvegar var hugmyndin um ævistarf óbærileg, að vera eitthvað eitt næstu 50 árin.“ Samkvæmt lista Wikipedia er yfir nyrstu staði í heimi er Reykjavík ekki nyrsta höfuðborg sjálfstæðs ríkis á jarðarkringlunni. Svo kafað sé í listann getur Akureyri státað af nyrsta skyndibitastað í heimi, nefnilega Dominos. Enn mark- verðara er að á Íslandi er líka nyrsta banana- ræktun heims, auðvi- tað í Hveragerði. Nyrsta bananaræktin Draumaland æskunnar „Ég stóð þarna í Draumalandi æskunnar og ábyrgð fullorðinsáranna helltist yfir mig, ég skildi ekki hvað hefði skilið þarna á milli.“ Lyftan #14 Spessi Marie Kondo hefur gert það að ævistarfi sínu að kenna öðrum að skipuleggja sig. Nýjustu skrif henn- ar, Taktu til í lífi þínu!, hefur farið sigurför um heiminn. Hún fjallar um japönsku KonMari aðferð- ina, listina að grisja og endur- skipuleggja heimilið. Bókin kom nýverið út í íslenskri þýðingu. 1. Tæklaðu flokka en ekki herbergi Kondo mælir með því að byrja á flokkum líkt og bókum, fötum, pappírum, þvert á öll herbergi. 2. Berðu virðingu fyrir eigum þínum Ef hluturinn skiptir þig máli, á sér hlutverk og yrði saknað, þá má halda honum. 3. Brjóttu saman, ekki hengja upp Kondo kennir þér að brjóta saman og ganga frá fötum þannig yfirsýnin sé góð en taki ekki mikið pláss. 4. Elskaðu fataskápinn þinn Enduruppgötvaðu þinn stíl og haltu áfram að skapa fataskáp byggðan á fötum sér þér líður vel í. Burt með drasliðGLÆSILEGAR BORGIR Í A-EVRÓPU Í BEINU FLUGI Við bjóðum uppá glæsilegar borgir í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt, 2,3,4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup á hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum uppá skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki. BÚDAPEST Í UNGVERJALANDI Ein af fallegri borgum Evrópu, hún er þekkt fyrir sínar glæsi byggingar sem margar eru á minjaskrá Unesco, forna menningu og spa/heilsulindir. Þar hefur í árhundruði blandast saman ýmis menningaráhrif sem gerir borgina svo sérstaka. Flogið er tvisvar í viku allt árið. GDANSK Í PÓLLANDI Hansaborgin Gdansk er elsta og fallegasta borg Póllands, saga hennar nær aftur til ársins 997. Glæsilegur arkitektúr, forn menning og tónlistar-hátíðir hafa gert borgina að vinsælustu ferðamannaborg Póllands. Flogið er tvisvar í viku allt árið. RIGA Í LETTLANDI Gamli og nýi tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Flogið er tvisvar í viku frá maí til október. VERÐ FRÁ 89.000.- WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900 100% DÚNSÆNG FYRIR FERMINGARBARNIÐ FERMINGARLEIKUR LÍN DESIGN MIÐAR Á JUSTIN BIEBER SKRÁÐU FERMINGARBARNIÐ Áttablaðarós Verð nú 9.990 kr Verð áður 12.980 kr Blómahaf Verð nú 7.990 kr Verð áður 15.490 kr LAUGAVEGI 176 | GLERÁRTORGI | KRINGLAN | LINDESIGN.IS 15 GERÐIR AF RÚMFÖTUM Á TILBOÐI SJÁÐU ÚRVALIÐ Á LINDESIGN.IS 100% DÚNN / 790G DÚNN 140x200 Verð nú 23.994 kr Verð áður 39.990 kr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.