Fréttatíminn - 15.04.2016, Page 24
Mynd | NordicPhotos/Getty
97.3
VIÐ ERUM KOMIN TIL
HÖFUÐBORGARINNAR!
Flestir eru sammála um
að útivera færi börnum
meira en grasgrænu og
gleði. Hún er heilsusamleg.
Ný bresk rannsókn sýnir
að evrópsk skólabörn eyða
minna en klukkustund af
frítíma sínum í útiveru og
að börn hafa ekki tíma til
að leika sér.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Niðurstöðurnar eru áhugaverðar
í ljósi þess að samkvæmt lögum
Evrópusambandsins verða fangar
að fá minnst klukkustund í útiveru
á dag. Samkvæmt íslenskum
lögum eiga fangar að fá minnst
1,5 klukkustundir af útiveru á
dag, en fá allt að fjórum tímum.
Skólabörnin fá því fjórum sinnum
minni skammt af útiveru en fang-
ar á Litla-Hrauni.
Rannsóknin var framkvæmd
fyrir hreinlætisefnafyrirtækið
Persil, sem í dag nýtir sér niður-
stöðurnar í markaðsherferð þar
sem börn eru hvött til að fara
út að leika sér, án þess að óttast
drullubletti. Herferðin beinist auð-
vitað að foreldrunum sem kaupa
þvottaefnin, frekar en börnunum
sjálfum, en það er líka mikil-
vægt að foreldrar hætti að vera
hræddir við græsgrænu, drullu
og mögulega sýkla. Oft á tíðum
eru það foreldrarnir sem hindra
börn í að leika sér úti af ótta við
allt sem útivera felur í sér; umferð,
ókunnugt fólk, vont veður, sýkla
og ókunn svæði. En allur þessi ótti
Frelsisskerðing 31% barna hefur ekki tíma til að leika sér
Börn fara minna út en fangar
kvæmdastjóri hjá Rannsóknum
og greiningu, segist ekki vita um
sambærilega könnun á Íslandi
og að ekki sé hægt að heimfæra
niðurstöðurnar á íslensk börn.
Það sé samt sem áður borðleggj-
andi að íslensk börn leiki sér mun
minna úti en áður. Hann bendir
auk þess á að á Íslandi séum við
fremst meðal jafningja þegar komi
að skipulagðri íþróttaiðkun, sem
þýðir enn minni frítími og útivera
fyrir börn.
Og mikið hreinlæti skaðlegt
Frá örófi alda hefur mannkynið
vitað að við lærum í gegnum leik.
Þó margskonar kenningar séu
uppi um listina að leika sér þá eru
flestir sem hafa tjáð sig um efnið
sammála um að leikurinn er órjúf-
anlegur þáttur af líkamlegum,
félagslegum og tilfinningalegum
þroska. En börn læra ekki síst í
gegnum útileiki. Með því að hitta
önnur börn, klifra í trjám, sparka
bolta sín á milli og drulla sig út
á nýjum og ókönnuðum slóðum
þjálfa börn margskonar hæfni og
forvitni gagnvart umhverfi sínu.
Þar að auki er það börnum hollt að
anda að sér fersku lofti.
Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir
líffræðingur bendir á að þær
kannanir sem gerðar hafi verið á
loftgæðum í skólastofum höfuð-
borgarsvæðisins sýni að þeim
sé mjög ábótavant. Hún segir
loftgæði húsa og inniveru vera
ofarlega á baugi í umræðunni, sér-
staklega í Norður-Evrópu, vegna
þess að 90% tíma okkar eyðum
við innandyra. „Þetta þýðir að
það er mjög mikilvægt að loftgæði
húsa séu í lagi. Við þurfum líka
að hvetja skólana til að hleypa
börnum meira út því frammistaða
og líðan barna er verri ef þau fá
ekki súrefni.“
Sylgja bendir einnig á hina
svokölluðu „hreinlætiskenningu“.
„Kenningin er upprunnin frá
niðurstöðum rannsókna sem sýna
að börn sem alast upp í sveitum
fá síður ofnæmi en börn í borgum
og samkvæmt henni er börnum
hollt að vera í umhverfi sem örvar
ónæmiskerfið. Gagnrýnendur
kenningarinnar benda þó á að það
geti verið að mengun og of hreint
umhverfi sem valdið ofnæmi hjá
borgarbörnum, því víst er að það
er okkur ekki hollt að vera í of
hreinu umhverfi. En sama hvora
hlið kenningarinnar sem þú styður
þá er útivera alltaf holl.“
Farðu út og njóttu frelsisins
Samkvæmt niðurstöðum rann-
sóknarinnar eyða skólabörn
helmingi minni tíma í útiveru en
fangar í breskum og bandarískum
öryggisfangelsum, sem fá tvo
tíma í útiveru. Samanburðurinn
er sláandi og setur hlutina í ansi
gott samhengi, ekki síst fyrir fanga
sem þrá frelsið. Í myndbandi, sem
er hluti af Persil-herferðinni, er
hægt að sjá fanga í Wabash Valley
fangelsinu í Bandaríkjunum, sem
eyða frítíma sínum framan við
sjónvarp og tölvuleiki, bregðast
við þeim fréttum að börn fái minni
en klukkustund í útiveru með mik-
ill undrun. „Það væri pynting að
fá minna en tvo tíma til útiveru,“
segir einn þeirra á meðan annar
þeirra sendir börnum skýr skila-
boð; „farið út, klifrið í trjánum og
fótbrjótið ykkur, það er hluti af
lífinu.“
kemur í veg fyrir að börn læri að
kanna ný svæði og anda um leið að
sér súrefni.
Börn hafa ekki tíma til að leika sér
Í könnuninni kemur einnig fram
að 75% breskra foreldra segja
börnin sín frekar vilja spila
íþróttaleiki í tölvu en að fara út að
leika sér. 82% þeirra sagði veðrið
orsök þess að börn þeirra færu
ekki út, 31% sögðu börnin frekar
vilja vera inni en úti og 31% sagði
börnin ekki hafa neinn tíma til að
leika sér.
Jón Sveinbjörnsson, fram-
Það er alls ekki svo langt síðan börn hentu frá sér skólatöskunum þegar heim var komið, einungis til að hlaupa aftur út og koma
ekki heim fyrr en kallað var í matartíma. Ef börn leika sér utandyra í dag er það oftast skipulagður leikur á borð við fótboltaæf-
ingar en langflestar íþróttir og tómstundir fara fram innandyra undir vökulu auga fullorðinna.
Þunglyndi barna
Börn í dag eru sex sinnum
líklegri til þess að fara í tölvu-
leik en að fara út að hjóla og
flest börn eyða langstærstum
hluta frítíma síns innandyra;
framan við sjónvarpið, tölvuna,
snjallsímann eða internetið.
Árið 2012 var framkvæmd rann-
sókn á áhrifum skjánotkunar á
líðan íslenskra barna á aldrinum
10-12 ára. Rannsóknin, sem
Rannsóknir og greining fram-
kvæmdi, leiddi í ljós að vegna
aukinnar skjánotkunar eru börn
meira innivið, hreyfa sig minna
og hafa minni matarlyst. Einnig
greindust tengsl á milli þung-
lyndis og of mikillar skjánotk-
unar.
24 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 15. APRÍL–17. APRÍL 2016