Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 15.04.2016, Blaðsíða 28

Fréttatíminn - 15.04.2016, Blaðsíða 28
Eftir að hafa lengi dreymt um að ná til bragðlauka Frakka með uppskriftum sínum eru hjónin Inga Elsa Bergþórsdóttir og Gísli Egill Hrafnsson að setja Ísland á kortið sem paradís matgæðinganna. Velgengni nýjustu bókar þeirra, La Cuisine Scandinave, er farin að draga erlenda ferðamenn til landsins, nánar tiltekið á Blönduós. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Eftir að hjónin Inga Elsa Bergþórsdóttir og Gísli Egill Hrafnsson fluttu heim úr námi í Frakklandi hafa þau fyrst og fremst starfað við leiðsögn Frakka um landið, auk þess að starfa við grafíska hönnun og ljósmynd- un. Inga Elsa er alin upp í sveit og á ættir sínar að rekja til Blönduóss þar sem þau Gísli keyptu sér gam- alt bílaverkstæði stuttu eftir heimkomuna. Þar hafa þau eytt sumrum og frítíma sínum og nostrað við sína helstu ástríðu; að lifa af landinu í takt við náttúruna. Afrakstur ástríðunnar er að finna í matreiðslubókum þeirra, Góður matur–gott líf, Eldað og bakað í ofn- inum heima og Sveitasæla. Bækurnar, sem hafa verið tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Hagþenkis, eru alfarið unnar af þeim sjálfum og er sveitin þeirra, heimilið og fjölskyldan alltaf í for- grunni. Nú hefur franski útgáfurisinn Hatchette gefið út þeirra nýjustu bók, La Cuisine Scandinave, og skemmst er frá því að segja að hún hefur slegið í gegn. Bókin situr á metsölulistum í Kanada, Sviss og Frakk- landi og hefur fengið umfjöllun í öllum helstu dag- blöðum Frakklands. Matarferðamennska óvæntur sproti „Þetta hefur komið okkur skemmtilega á óvart,“ segir Inga Elsa en þau hjónin hafði lengi dreymt um að ná til bragðlauka Frakka með uppskriftum sínum. Eftir að hafa reynt að sannfæra íslenska útgefendur án árangurs ákváðu þau að prófa að senda nokkrum erlendum forlögum efni. „Við höfðum engu að tapa og þegar Hathcette hafði samband og vildi strax gefa bókina út og auk þess gera við okkur samning til lengri tíma urðum við auðvit að mjög glöð. Þetta kom okkur dálítið á óvart því við erum ekki að kynna klassíska norræna matargerð heldur okkar eigin út- færslu á henni,“ segir Inga Elsa en í La Cuisine Scand- inave er áherslan lögð á listina að lifa af landinu, líkt og í þeirra fyrri bókum. „Bókin er örugglega ágætis landkynning því hvert sem við förum að kynna hana þá erum við kynnt sem Íslendingar. Við höfum ferðast töluvert með hana og fengum eiginlega vægt sjokk að sjá bókina okkar liggja meðal frægra höfunda á borð Setja matarmenningu Íslands á heimskortið Inga Elsa segir þau hjónin hafa mætt ákveðnum fordómum á Blönduósi. „Margir skildu okkur ekki og það var jafnvel hlegið að okkur fyrir uppátækið og ekki voru allir á eitt sáttir við framkvæmdagleðina.“ Eins og sést hefur gamla bílaverkstæðið tekið miklum breytingum. Hér hyggjast Inga Elsa og Gísli taka á móti ferðamönnum. Eftir útgáfu bókarinnar hefur fjöldi erlendra ferðaskrifstofa haft samband með samstarf um matarferðir í huga. Mynd | Rut Mynd | Gísli Egill stamfelagidMalbjorg Aðalfundur Málbjargar 2016 Stjórn félagsins auglýsir eftir Áhugasömum sem vilja sitja í stjórn félagsins á nýju ári. malbjorg@gmail.com BERG TRAMPÓLÍN Gylfaflöt 7 112 Reykjavík 587 8700 krumma.is VIð ERUM KOMIN í SUMARSKAP Berg Balanz hjól Verð nú 40,905.- Verð áður 68,175.- -40% -40% Færanleg Karfa Verð nú 32,605.- -40% Miniland föturVerð nú 468.- Verð áður 780.- Verð áður 54,343.- MAGNOLIA OFFICINALIS Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður, Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla. Hrafnhildur Ólafsdóttir starfar við sjálboðavinnu í Rauða Kross búðinni „Ég vil alls ekki nota lyfseðilsskyld svefnlyf og ákvað því að prófa Magnolia. Ég tek 2 hylki á kvöldin um klukkustund fyrir svefn og hef ekki sofið betur í mörg ár.“ SVEFNVANDI – KVÍÐI – DEPURÐ balsam.is Bætt heilsa og betri líðan með Natural Health Labs 100% náttúruleg bætiefni Hefur verið notað við svefnvandamálum, kvíða og depurð í yfir 2000 ár í Asíu 28 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 15. APRÍL–17. APRÍL 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.