Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 15.04.2016, Page 30

Fréttatíminn - 15.04.2016, Page 30
Uppskrift Blóðbergskrapi við Ottoman Lenghi, því við erum ekkert þekktir einstaklingar,“ seg- ir Inga Elsa og bætir því við að fjöl- margar erlendar ferðaskrifstofur hafi haft samband með það í huga að búa til matarferðir til Íslands. „Það er óvæntur og skemmtilegur sproti að bókin sé að kortleggja Ís- land sem matarland og áfangastað matgæðinga.“ Vilja upplifa landið með matgæðingum Velgengni bókarinnar kemur sér vel því auk þess að vera landkynn- ing fyrir Ísland þá er hún í raun líka kynning á næsta verkefni þeirra sem hefur verið í pípunum í nokkurn tíma. „Við höfum tekið mikið á móti Frökkum í húsinu okkar á Blönduósi í gegnum tíðina og lengi haft þá hugmynd að taka þar almennilega á móti ferða- mönnum og kynna þeim það sem náttúran hefur upp á að bjóða og hvernig okkur finnst best að elda og geyma mat. Þetta verður svona vinnustofu–kennslueldhús þar sem við munum deila okkar upplifun af landinu með gestunum og kenna þeim að njóta náttúrunnar. Við höfum engan áhuga á afþreyingar- ferðamennsku þar sem fókusinn er á massann, heldur viljum að gest- irnir upplifi með okkur náttúruna. Þetta er allt á frekar lágstemmdum nótum og við erum í raun að móta hugmyndirnar en fyrst við erum að fá þessa góðu kynningu í gegnum bókina þá er best að byrja bara að taka á móti fólki,“ segir Inga Elsa. „Allur myndheimur bókanna er líka úr þessu umhverfi þannig að í raun höfum við gert mjög mikla markaðssetningu á svæðinu.“ Heimamenn hlógu að þeim Framkvæmdagleði þeirra Ingu Elsu og Gísla hefur samt ekki alltaf verið tekið opnum örmum á svæðinu. „Okkur var boðið til kaups þetta gamla bílaverkstæði fyrir tólf árum og höfum hægt og rólega gert það upp og skrifað allar okkar bækur þar. Við hefðum aldrei látið okkur detta í hug að kaupa húsið nema fyrir hvatningu og vilyrði þáver- andi bæjaryfirvalda. Á þessum tíma voru bæjarfélög að gefa gömul hús til að gera upp til að styrkja inn- viði samfélagsins. Nú sjáum við um allt land afrakstur af þeirri vinnu og margir staðir eru að koma mjög sterkir inn sem áhugaverðir staðir sem ferðamenn vilja sækja heim t.a.m. nágrannar okkar á Siglufirði. En síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Margir skildu okkur ekki og það var jafnvel hlegið að okkur fyrir uppátækið og ekki voru allir á eitt sáttir við framkvæmdagleðina. Þegar við svo fórum að þróa þessar hugmyndir sem nú eru að raun- gerast fannst okkur það heillandi hugmynd að nýta húsið okkar til góðra verka og snúa til baka í gamla bæjarfélagið til þess að byggja upp fyrirtækið okkar. Í gegnum bæk- urnar okkar höfum unnið mark- visst að því að markaðssetja þetta svæði sem er einstök náttúrupara- dís og vonumst við að heimamenn njóti afrakstur af þeirri vinnu með okkur á komandi árum.“ Dapurleg þróun í ferðamennsku Blönduós hefur hingað til ekki ver- ið ómissandi viðkomustaður ferða- manna en Inga Elsa hefur fulla trú á svæðinu. Alltaf sé pláss fyrir fólk sem vilji njóta þess að fá persónu- lega upplifun af landinu og sveitin í kringum Blönduós hafi upp á allt að bjóða. „Sérstaðan við Ísland er hvað þetta er stórt land sem við eigum og það er ennþá hægt að vera á stöðum sem eru ekki yfir fullir af ferðamönnum. Hluti af upplifuninni þegar þú ferðast er að hitta fólk og vera í samskiptum við heimamenn. Þess vegna finnst mér dálítið dapurleg sú þróun að á stöð- um sem ferðamenn sækja í eru fáir Íslendingar að taka á móti þeim. Það er undantekning að ferðamenn hitti fólkið á bak við fyrirtækin. En okkur langar að veita góða og persónulega þjónustu og gefa fólki innsýn í það hvernig við lifum af landinu.“ 1 lítri nýtínd blóðbergsblóm 400 ml vatn 175 g sykur ½ sítróna, safinn rauður matarlitur (má sleppa) Setjið blómin í sigti og skolið með köldu vatni. Hristið vatnið af blómunum. Leysið sykurinn upp í volgu vatni. Kælið sykurvatnið og setjið blómin saman við. Maukið með sprota í dágóða stund. Hell- ið blómavatninu í gegnum fínt sigti og bætið sítrónusafa saman við. Litið með skvettu af rauðum matarlit ef þið viljið. Setjið í skál og frystið. Hrærið upp í krapanum 3–4 sinnum á hálftíma fresti. Inga Elsa og Gísli keyptu gamalt bílaverkstæði á Blönduósi fyrir þrettán árum og hafa síðan gert það hægt og rólega upp. Þar hafa þau skrifað allar sínar bækur og í sumar munu þau taka á móti og elda fyrir erlenda ferðamenn. Horft inn og út um gluggann í Brim- nesi, Blönduósi  Fleiri myndir á frettatiminn.is Mynd | Gísli Egill Myndir | Gísli Egill 30 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 15. APRÍL–17. APRÍL 2016

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.