Fréttatíminn - 15.04.2016, Side 36
Það hefur aldrei verið
lognmolla í kringum
þau Boga Jónsson og
Narumon Sawangjaitham.
Ævintýri þeirra spanna
kínarúlluvagn, spanudd-
stofu og tælenskt „take
away“, en nú bjóða þau upp á
pad thai og karíókí í tveggja
hæða strætó.
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir
salka@frettatiminn.is
„Ég hélt þetta væri eitthvert Har-
lem-rassgat þegar ég var að spá í að
flytja hingað, en svo er þetta bara
svona fallegur staður,“ segir Bogi
Jónsson þegar hann tekur á móti
okkur á lóð sinni í Garði á Suður-
nesjum. Þar býr hann með konu
sinni, Narumon Sawangjaitham,
sem er kölluð Nok.
Bogi hefur verið viðloðandi
ýmsa vitleysu í gegnum árin, eins
og hann segir sjálfur, en fyrstu
viðskiptahugmyndinni hratt hann
í framkvæmd þegar hann lagði
áfengið á hilluna um miðjan ní-
unda áratuginn. „Ég varð nefni-
lega svo feiminn við edrúmennsk-
una að ég ákvað að gera eitthvað
sem ég þyrði alls ekki og ég opnaði
kínarúlluvagninn Bogarúllur á
Lækjartorgi, mitt í mannlífinu.“
Á þeim tíma voru engir staðir
opnir eftir miðnætti, utan eins
pylsuvagns og bílalúgu. Bogi sá
því gott viðskiptatækifæri í að
vera eini kínarúllusalinn. Kína-
rúlluvagninn varð fljótlega ómiss-
andi hluti af næturlífi Reykja-
víkur. Djammarar gæddu sér á
Íslenski draumurinn Bogi og Nok úr kínarúlluvagni í skemmtistrætó
Leika á kerfið með stofnun trúfélags
Bogi og Nok eru óhrædd við óvenjulegar viðskipta-
hugmyndir. Þau eru með veitingastað í strætó sem
lagt er í garðinum þeirra.
Veitingastaður Friðarkúlunnar er opinn „þegar það er gott
veður og við nennum,“ að sögn hjónanna.
kínarúllum, sósu og salati eftir að
skemmtistaðir lokuðu, auk þess
sem Bogi seldi smokka, löngu áður
en getnaðarvarnir fengust í smá-
sölu á nóttunni.
Töluðu bullmál sín á milli
Þrátt fyrir velgengni vagnsins
langaði Boga að skoða heiminn og
hélt því til Tælands þar sem hann
kynntist konu sinni til 27 ára. „Ég
var ekkert á höttunum eftir hjóna-
bandi, en það var samt það sem ég
fann í Tælandi.“
Bogi og Nok urðu ástfangin við
fyrstu sýn og Nok flutti til Íslands
með syni sína tvo. Þeir reka nú
báðir veitingahús, annar núðlu-
súpustaðinn Noodle Station í mið-
bænum og hinn kaffihúsið NP Kaffi
í Garðabæ. Hjónin eiga svo saman
tvítugan son.
„Það var horft á eftir okkur,
enda svo fáir útlendingar hér á
landi á þessum tíma,“ segir Bogi
um komu Nok til landsins árið
1989. Þá talaði hvorugt hjónanna
móðurmál hins vel og fyrir vikið
þróuðu þau með sér bullmál úr
ensku, íslensku og tælensku.
Bullmálið hentaði þeim vel
en vakti furðu Íslendinga sem
heyrðu þau tala í stórmörkuðum
landsins.
Brátt kom upp sú hugmynd að
opna tælenskan veitingastað og
hjónin stofnuðu Thailand. „Hér
voru einhverjir austurlenskir
staðir, en allir voðalega fínir. Mér
fannst vanta austurlenskt Múla-
kaffi.“
Nok sýnir okkur veggspjald sem
hún fékk þekkta gesti staðarins
til að árita og þar má finna alls
kyns nöfn, allt frá Árna Johnsen til
Bjarkar.
Bónussvínið hrekkt
Bogi opnaði svo austurlenskt
vöruhús til að geta flutt inn meira
hráefni í austurlenskan mat og
stuðaði þá helsta fjármálagúrú
landsins: „Ég bjó til vörumerki
sem var bleikur fíll á gulum
grunni. Ég setti fílinn upp á risa-
stórt veggskilti og kortéri seinna
var Jón Ásgeir mættur inn á gólf
vöruhússins, brjálaður yfir líkind-
unum við Bónussvínið,“ segir Bogi
hlæjandi, enda alltaf haft gaman
af því að stuða „meirimáttar“, eins
og hann kallar það.
Myndir | Rut
36 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 15. APRÍL–17. APRÍL 2016