Fréttatíminn - 15.04.2016, Síða 44
uðu líka báðar meira en líkamleg
heilsa þeirra bauð upp á. Þátt-
taka feðra þeirra var mismikil og
ójöfn. Hrannar hefur hins vegar
tekið upp þráðinn við pabba sinn
fyrst núna á síðustu árum og þykir
greinilega vænt um það samband.
„Pabbi minn var blikksmiður allt
sitt líf þangað til að hann missti
vinnuna fyrir stuttu. Hann dembdi
sér þá í að gera upp jeppann sinn
og núna keyrir hann túrista um
landið.“ Guðfinna segir pabba sinn
hafa flutt úr landi til Flórída þegar
foreldrar sínir skildu. „Hann er
alltaf mjög duglegur að finna sér
verkefni,“ segir Guðfinna sem veit
ekki hvað hann er að bralla í augna-
blikinu en brosir samt við tilhugs-
unina.
Tækniskólinn
Þegar þau Guðfinna og Hrannar
kynntust voru þau bæði í Tækni-
skólanum í námi. „ Þá lá beinast
við að Hrannar væri hjá mér og
mömmu þar sem við leigðum á
Skúlagötunni og stutt í skólann.
Síðan missti mamma húsnæðið
og við fluttum til mömmu Hrann-
ars í Grafarvoginn þar sem hún
leigði. En sumarið 2013 dó Elísabet
mamma hans mjög skyndilega
þegar hún fékk blóðtappa í lungun
og ómögulegt var að bjarga henni.“
Líftryggingin var útborgun í íbúð
Þau Guðfinna og Hrannar hefðu
hinsvegar aldrei getað átt fyrir
útborgun í íbúð ef ekki hefði komið
til líftrygging móður Hrannars og
síðan slysabætur Guðfinnu sem
hún fékk eftir árekstur á Snorra-
braut þegar bíll keyrði í veg fyrir
hana og hún skaddaðist illa í baki.
En fyrir þessa peninga áttu þau
fyrir útborgun í 114 fermetra íbúð
sem var mjög illa farin og þarfnað-
ist viðgerða.
„Við ákváðum að stökkva yfir
fyrsta þrepið. Flestir sem eru að
kaupa sér fyrstu íbúðina myndu
kaupa sér tveggja herbergja íbúð.
Þetta var fjárfesting fyrir framtíð-
ina, við munum koma út í plús að
lokum. Planið er alltaf að selja ein-
hvern tímann,“ segir Hrannar.
Íbúðin kostaði 31 milljón króna.
Þau fengu 22 milljónir í íbúðarlán
og líftrygging móður Hrannars var
útborgun þeirra upp á 9 milljónir.
„Íbúðin var óíbúðarhæf þegar
við keyptum hana, mygla í eld-
húsi og svefnherberginu, hún
hafði staðið lengi auð með opnar
svaladyr sem rigndi inn um,“
segir Guðfinna og telur að þau hafi
fengið íbúðina ódýrt á sínum tíma,
sumarið 2013. Þau lögðu síðan 7
milljónir, sem Guðfinna fékk út úr
sjúkratryggingunum vegna árekst-
ursins, í það að gera upp íbúðina.
Ein fyrirvinna
Það hefur lengi verið íslenska leiðin
að líta á húsnæðiskaup sem fjár-
festingu en líklega væru Guðfinna
og Hrannar að borga 190 þúsund
fyrir 70 fermetra íbúð á leigumark-
aðnum „og fáir leigusalar vilja taka
við okkur með 40 kg þungan sleða-
hund,“ segir Guðfinna. Hrannar er
eina fyrirvinnan núna með um það
bil 330-360 þúsund krónur hjá Adv-
ania sem vaktmaður yfir kerfunum
en Guðfinna hefur aðeins unnið
að hluta til eftir bílslysið á Snorra-
braut árið 2011. Hún barðist við
mikla verki í þrjú ár þangað til að
henni var loksins bent á endurhæf-
ingarprógram hjá VIRK sem hún
sótti í níu mánuði. Eftir það vann
hún um tíma hjá Dýrabæ og fékk
170 þúsund krónur fyrir hlutastarf
en þurfti að hætta þegar hún aftur
lenti aftur í slysi þegar bíll bakk-
aði á hana á bílastæðinu fyrir utan
Kringluna og allt fór í sama farið
heilsufarslega. Á meðan hún býr
með Hrannari fær hún engar bætur
og lítið niðurgreitt vegna þess að
Hrannar telst vera hátekjumaður.
Hún þyrfti að sækja sjúkraþjálfun
en fyrsti tími kostar 11 þúsund
krónur og síðan þarf hún að greiða
4 þúsund krónur fyrir næstu tíma
og hún telur sig ekki hafa efni á því,
eins og staðan er í dag.
LÍN og yfirdráttur hjá bankanum
Guðfinna er ósátt, eins og margir,
við skilyrðin hjá LÍN um námslán.
„Ég er á yfirdrætti frá bankanum
og ef ég stend mig í náminu gagn-
vart LÍN þá eiga námslánin að
greiða yfirdráttinn en núna lítur út
fyrir að ég sitji upp með yfirdrátt-
inn af því að ég hef ekki getað mætt
í skólann út af verkjum og LÍN
tekur ekki tillit til þess. Ég komst
ekki í öll prófin út af líkamlegri
heilsu minni á síðustu önn og ég er
að reyna að læra núna fyrir báðar
annir. Þetta kemur í ljós. En á einu
ári er skuldin komin upp í 1.2 millj-
ónir króna.
Smáforrit um týnd dýr
Guðfinna segir að Tyrael bjargi sér
en hann teymir hana út að ganga
og hreyfa sig á hverjum degi og sjálf
er hún á kafi í hundaeigendasam-
félaginu. Hún setti upp heimasíðu
fyrir það og er hún núna að búa til
smáforrit um týnd dýr sem kallast
Týndi Týri. Hún segir að á tveim
mánuðum, í desember og janúar,
hafi um 300 dýr týnst á Íslandi.
Hún setti söfnun í gang á Karolina
Fund til þess að hanna og búa til
smáforritið og hefur hún safnað
fyrir öllum kostnaðinum.
Borgaralaun
Umræðan dvelur um stund við
borgarlaunin sem allavega Píratar
hafa nefnt sem lausn fyrir marga og
þann hóp sem Guðfinna tilheyrir
núna en hún er öryrki, eða óvinnu-
fær, en fær enga hjálp í kerfinu. „Ef
ég væri með borgaralaun þyrfti ég
ekki að vera með áhyggjur og gæti
verið að gera appið og allt í kring-
um hundasamfélagið. Ég held að
langflestir vilji gera eitthvað gagn-
legt eða skemmtileg heldur en að
vera fastir einhvers staðar með ör-
yrkjastimpil þar sem enginn hvati
er fyrir því að framkvæma og skapa
eitthvað fyrir sjálfan sig eða aðra.
Ég þyrfti ekki að vera með miklar
tekjur til þess að vera komin yfir
þetta stress en það að vera hvorki
tekju- né bótahæfur sem skapar allt
þetta stress,“ segir Guðfinna.
Núll öryggisnet
Hrannar segir að þau séu svona á
mörkunum við hver mánaðamót
og það væri ágætt að geta safnað
sér og lagt fyrir og haft eitthvað
smá öryggisnet. „Núna erum við
með alveg núll öryggisnet. Ef eitt-
hvað gerist þá hefur maður ekki
efni á því. Þetta eiga auðvitað eftir
að verða leiðinlegir mánuðir fram-
undan og ég mun eflaust taka mér
aukavinnu í sumar og sem minnst
frí og svoleiðis, en maður þarf bara
að gera það til að þrauka, en það er
mikið af fólki sem hefur það verra
en við peningalega séð. Við erum
með 130 þúsund eftir húsnæði
og svo fara einhver 30 þúsund í
bílinn. En það eru sumir með 150
þúsund krónur í örorkubætur og
svo fer það allt í húsaleigu. Það er
rosalega mikið af fólki í láglauna-
störfum og á örorkubótum sem
nær ekkert að njóta og er bara rétt
að lifa og eiga fyrir fötunum utan
um sig.“
Sjá enga framtíð á Íslandi
Guðfinna og Hrannar telja samt
nokkuð víst að þau eigi eftir að
flytja frá Íslandi en bæta síðan við,
„ef ekkert breytist hérna.“ Og það
er ýmislegt sem þyrfti að klára áður
en við færum út. Það er ekkert á
dagskrá alveg strax. Við þurfum
að klára íbúðina og selja hana og
koma heilsunni í lag hjá Guðfinnu,“
segir Hrannar og Guðfinna bætir
við: „Svo eigum við eftir að finna
út hvert við förum og helst að vera
komin með vinnu eða í skóla áður
en við förum út.“
„Ég reyni lítið að hugsa langt
fram í tímann. Við tökum bara
eitt skref í einu segir Hrannar og
stendur upp og kveður af því að
hann þarf að sinna ömmu sinni en
í símanum hans eru fjögur „missed
call“ frá ömmu hans sem bíður
eftir dóttursyni sínum.
Samfélagssíður þeirra efnaminni
Hrannar og Guðfinna þekkja hell-
ing af litlum síðum á Facebook sem
hjálpa þeim sem eiga minna. Sjálf
hafa þau ekki notfært sér þessa
leið af því að þeim finnst aðrir hafa
það bágara en þau. En hérna eru
nokkur dæmi um gagnlegar síður:
„Bílar undir 100 þúsund krón-
ur“ og „Bílar undir 400 þúsund
krónur“. Önnur góð síða er „Matar-
gjafir“ sem er með gefins mat og
„Gefins allt gefins“ en þar er hægt
að fá gefins föt.
Guðfinna er búin að fjármagna smáforrit á Karolina
Fund fyrir týnd dýr sem hún er með í smíðum.
44 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 15. APRÍL–17. APRÍL 2016
Frú Ragnheiður
– skaðaminnkun
Miðvikudaginn 20. apríl mun Svala Jóhannesdóir
verkefnastýra hjá Rauða krossinum í Reykjavík
kynna skaðaminnkunarverkefnið Frú Ragnheiði.
Verkefnið hefur það markmið að ná til jaðarsera
hópa í samfélaginu, eins og heimilislausra einstaklinga
og fólks með alvarlegan vímuefnavanda.
Án fordóma og kvaða
Fyrirlesturinn verður haldinn í húsi
Rauða krossins, Efstaleiti 9 kl. 8.30-9.30
Allir velkomnir
Skráning á raudikrossinn.is H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
6–
05
10
Tilvalið með í sumarfríið.
Traust og fagleg þjónusta.
LITHIUM POWER STARTTÆKI
Byltingarkennd nýjung!
Snjalltæki til að bjarga þér ef bíllinn verður rafmagnslaus á bílastæðinu
eða úti á vegum. Bjargvættur sem er fyrirferðalítill (420 gr.) og einfaldur í notkun.
Startar flestum bensínvélum og diesel vélum upp að 2,0 llítra. Hleður alla síma,
ipadinn, fartölvuna og öll tæki með USB tengi. Innbyggt öflugt led ljós.
Straumur út: 5v 2A fyrir síma og ipad, 19v 3,5A fyrir fartölvur, startkraftur
allt að 400 Amper. Lithium rafhlaðan er 12.000 mAh.
hvað borgar þú fyrir tóner ?
Toner Ricoh SPC 430 yellow (821205)
Verð hjá Optima (13.04.16): 69.904 kr
Okkar verð: 51.500 kr
Öll verð eru listuð á vefsíðunni
okkar prentvorur.is.
Verið velkomin í verslun okkar að
Skútuvogi 11, hafið samband á
sala@prentvorur.is,
eða í síma 553 4000
Prentvörur - Prentum á betra verði!