Fréttatíminn - 15.04.2016, Qupperneq 70
70 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 15. APRÍL–17. APRÍL 2016
Þau Ólafur, Humera og sonur þeirra Faisal eru
lítil fjölskylda í Vesturbænum sem talar þrjú
tungumál sín á milli: Úrdú, íslensku og ensku.
„Ég er lélegastur í úrdú og Humera í íslensku, en Fa-
isal er jafnfær á öllum þremur tungumálum. Svo tökum
við það besta úr öllum kúltúrum í klæðaburði, eins og
þú sérð,“ segir Ólafur glettinn.
Humera hefur borið út blöð á morgnana í átta ár
og bera hjónin yfirleitt út saman. Dæmigerð morgun-
stund hjá þeim hefst því klukkan fimm á morgnana,
þegar Ólafur og Humera fá sér te áður en þau halda út í
hverfið með blöðin.
Morgunstundin
Taka það besta úr
öllum kúltúrum
Mynd | Rut
Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir
svanhildur@frettatiminn.is
Ég er algjör safnari og eitt það skemmti-legasta sem ég geri er að skoða gamalt dót og fara á nytjamark-aði,“ segir Auður
Ómarsdóttir, ritstjóri Instagram
prófílsins Blandcore. Auður er
menntaður myndlistamaður en
tekur að sér störf í ljósmyndun
og leikmunagerð. „Í þessum
bransa getur verið bið á milli
verkefna. Þá hangi ég inni á
sölusíðum og skoða leikmuni.
Það er endalaust af trylltum
hlutum þar inni og ég hef ein-
skæran áhuga á því að skoða
hvernig fólk stillir hlutunum
upp og myndar án nokkurar
fagurfræði. Kostulegt er einnig
að fylgjast með lýsingum á sölu-
vörum og samskiptum fólks á
bland.is“
„Ég fann mig knúna til þess
að deila með fleirum öllu því
áhugaverða sem bland.is hefur
upp á að bjóða. Þeirri list sem
fólk allsstaðar á Íslandi er
ómeðvitað að skapa undir hatti
blandsins. Menningin í kringum
sölusíðuna er fyrirbæri sem þarf
að „documenta“, margt af þessu
á heima á safni.“
Auður fékk nýlega til liðs við
ritstjórnina listamanninn Mel-
korku Katrínu, sem einnig er
þekkt sem Korkimon, og sviðs-
listamanninn Jóhann Krist-
ófer Stefánsson. Þær vörur sem
stinga í auga, skortir fagurfræði
og vekja athygli þeirra rata inn
á Blandcore. „Við erum að tala
um allt frá drekakveikjarahníf,
frosnum ref sem er „tilvalinn
til uppstoppunar“, leðurtösku
sem var eitt sinn í eigu ungfrú
alheims og fleira sem ég veit
ekkert hvað er, til bílavarahluta
og svoleiðis. Ég er með æði fyrir
glerhlutum sem endurspegla,
sérstaklega þegar það má sjá
glitta í eigandann í spegilmynd-
inni í fiskabúrum, sjónvarpi eða
speglum.“
Ritstjórnin hyggst halda áfram
að grafa upp gersemar á ís-
lenskum sölusíðum og deila með
áhugasömum. „Við viljum gefa
út bók og halda ljósmyndasýn-
ingu. Til þess þarf ég eiginlega
að hafa samband við söluaðilana
og fá myndirnar í betri gæðum.
Við sjáum hvað setur.“
bland.is á
heima á safni
Instagram prófíllinn @blandcore er samansafn alls þess skondnasta,
skrítnasta og skemmtilegasta sem má finna á sölusíðunni bland.is
„Drekakveikjarahnífur“ sem er í
miklu uppáhaldi hjá Auði Ómars-
dóttur, ritstjóra Blandcore.
Ritstjórn Blandcore, þau Auður Ómarsdóttir, Jóhann Kristófer og Melkorka
Katrín, grafa upp ótrúlegar gersemar bland.is og deila á Instagram.
Mynd | Kjartan Hreinsson
„Dúkka“ sem er til
sölu inn á bland.is
„Starfið er mjög fjölbreytt. Ég sinni
öllu kirkjuhaldi, geri allt klárt fyrir
messuna á sunnudögum og sé um
klukkurnar. Turninn er svo 90%
af starfinu,“ segir Hreiðar Ingi
Þorsteinsson, kirkjuvörður í Hall-
grímskirkju. Hreiðar hefur starfað
í kirkjunni í tíu ár og segir starfið
hafa breyst mikið á þeim tíma.
Nú felist vinnan aðallega í því að
þjónusta ferðamenn en á góðum
degi koma um 2000 ferðamenn í
kirkjuna. „Lyftan er algjör bjarg-
vættur fyrir okkur því kirkjan er
svo skuldsett eftir allar lagfær-
ingarnar sem voru gerðar hér í
kringum hrunið.“
„Hér eru þrjár stórar klukkur.
Hallgrímur stóri sem er nefndur
eftir Hallgrími sjálfum, Guðríður
sem er nefnd eftir konu hans og
svo minnsta klukkan, hún Stein-
unn, sem er nefnd eftir dóttur
þeirra sem dó mjög ung. Steinunn
er sú eina sem klingir í dag því hin-
ar eru orðnar svo ryðgaðar. Stein-
unn hringir bara fyrir messur og
þá þarf ég að nota til þess sérstaka
takka. Svo er hér klukkuspil sem
hringir á kortersfresti sem spilar
Big Ben stefið sem allir þekkja.“
Klukkuspilið er sjálfvirkt svo
Hreiðar þarf ekki að hafa af því
miklar áhyggjur, nema þegar það
eru sérstakar athafnir, brúðkaup,
jarðarfarir, páskamessa, jóla-
messa eða tónleikar. „Við gefum
til að mynda bara einn tón þegar
það eru jarðarfarir en brúðar-
sálminn þegar brúðhjón ganga hér
út. Ábyrgðin er töluverð þegar
kemur að þessu því það má auð-
vitað ekki klikka með því að spila
brúðarmarsinn í jarðarför, en það
hefur sem betur fer aldrei gerst.
Þetta eru allt mjög viðkvæmar og
mikilvægar stundir sem ég tek þátt
í hérna. Ein af fallegustu stundun-
um sem ég upplifi hérna að opna
dyrnar fyrir brúðina áður en hún
gengur inn í kirkjuna og sjá alla
veröldina speglast í augum hennar.
Það má segja að ég sé maðurinn á
bak við tjöldin.“ | hh
Hringjarinn
í Hallgrímskirkju
„Ein af fallegustu stundunum sem ég upplifi hérna að opna
dyrnar fyrir brúðina áður en hún gengur inn í kirkjuna og sjá
alla veröldina speglast í augum hennar.“
Mynd | Hari