Fréttatíminn - 15.04.2016, Qupperneq 84
Nauðsynlegt
að nota góðar
stuðningshlífar
Hjólreiðafólk fær gjarnan í úlnliðina
og sumir eiga við bakvandamál að stríða
„Hjólreiðafólk fær gjarnan í úlnliðina
og svo eiga sumir við bakvandamál
að stríða og þá er nauðsynlegt að
nota góðar stuðningshlífar,“ segir
Herdís Þórisdóttir, sjúkraþjálfari hjá
Fastus, sem mælir með Sporlastic
stuðningshlífum fyrir hjólreiðafólk.
„Við bjóðum upp á mikið úrval af
úlnliðsspelkum og svo eru bakhlífar
sem styðja vel við og geta beint þér
inn í rétta stöðu.“
Sporlastic hlífar eru þýsk hönnun
og framleiðsla „Þetta eru vandaðar
hlífar úr efni sem andar vel og þær
eru með sílikonpúðum til þess að
auka stuðning. Hönnunin er nútíma-
leg og gerð til þess að hafa hlífarnar
sem þægilegastar. Efnið getur unnið
á móti bjúg og bólgum en andar það
vel að enginn ætti að svitna undan
hlífunum,“ segir Herdís.
Sporlastic stuðningshlífar fást í
Lyfju, Reykjavíkurapóteki, Vestur-
bæjarapóteki og hjá Fastus.
Hjólreiðafólk tapar
söltum og vökva
með svitanum
Resorb Sport er mjög góður kostur þegar vökvatap
orsakast af líkamlegri hreyfingu
Resorb
Sport er
góður
kostur þegar
vökvatap
verður við
líkamsrækt.
Unnið í samstarfi við Fastus
Resorb eru freyðitöflur sem innihalda sölt og glúkósa og er tilgangur þeirra að bæta upp vökvatap í líkamanum.
„Einkenni vökvataps geta meðal
annars verið þorsti, þreyta, slapp-
leiki, höfuðverkur og pirringur.
Þegar um verulegt vökvatap er að
ræða geta einkennin verið svimi,
vöðvakrampar og yfirlið,“ segir
Hulda Margrét Valgarðsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur hjá Fastus.
Vökvatap getur orðið við ýmsar
aðstæður. Til dæmis þegar dvalið
er í heitu
umhverfi
þar sem
fólk svitnar
mikið þar sem
mikið af söltum tapast
úr líkamanum. „Það að
innbyrða sölt í þessum
aðstæðum flýtir fyrir
bata og bætir líðan,“
segir Hulda Margrét.
Resorb Sport hefur sömu
eiginleika og Resorb freyðitöflurnar.
Resorb Sport kemur í duftformi
og inniheldur magnesíumsölt sem
minnka líkur á vöðvakrömpum og
eykur endurheimt eftir líkamlegt
erfiði eins og hjólreiðar. Resorb
Sport er mjög góður kostur þegar
vökvatap orsakast af líkamlegri
hreyfingu.
„Hjólreiðafólk sem hjólar af
mikilli ákefð tapar miklu af söltum
og vökva með svitanum. Það að
bæta Resorb Sport út í vatnið bætir
upp salttapið, gefur örlitla orku og
minnkar líkur á vöðvakrömpum
og þreytu. Þess má geta að
nokkrir keppendur í WOW Cyclothon
notuðu Resorb Sport í fyrra með
góðum árangri,“ segir Hulda María.
Resorb og Resorb Sport fást í
langflestum apótekum, í Mela-
búðinni og hjá Fastus.
Hjólreiðafólk fær gjarnan í
úlnliðina og þá er nauðsynlegt að
nota góðar stuðningshlífar.
Bakhlífar frá Sporlastic eru
góður kostur fyrir hjólreiðafólk.
Herdís Þórisdóttir sjúkraþjálfari og Hulda María Valgarðsdóttir
hjúkrunarfræðingur.
Resorb freyðitöflur innihalda
sölt og glúkósa.
Það er úr nægu að velja
fyrir þá sem vilja taka þátt í
hjólreiðakeppnum í sumar
Hjólasumarið er að fara í gang og
þúsundir Íslendinga hugsa sér því
eflaust gott til glóðarinnar. Sumir
kjósa að hjóla á sínum forsendum
en þeir sem vilja ganga skrefinu
lengra hafa úr nægu að velja þegar
kemur að hjólreiðakeppnum. Hægt
er að kynna sér flestallar keppnir
á heimasíðunni hjólamót.is en hér
höfum við valið úr sjö álitlegar.
1 Enduro Ísland – vorfagnaður 23. apríl
Hjólasumarið fer af stað með
þessari skemmtilegu keppni.
Nánari upplýsingar má finna á
www.enduroiceland.com.
2 Þingvallakeppnin 28. maíKlassískir hringir hjólaðir í
Þjóðgarðinum á Þingvöllum.
3 KexReið 4. júníSkemmtileg götuhjólakeppni sem
nú er haldin í fjórða sinn.
4 Blue Lagoon Challenge 11. júníSextíu kílómetra grýtt leið sem
dró að sér 700 keppendur í fyrra og í
ár stefnir í að þeir verði yfir 1.000.
5 WOW Cyclothon 15.-17. júníKeppendur hjóla ýmist
einir hringinn í kringum landið eða
í fjögurra eða tíu manna liðum þar
sem hjólað er með boðsveitarformi.
Þetta er í fimmta sinn sem keppnin
er haldin. Yfir þúsund manns tóku
þátt í fyrra.
6 Tour de HvolsvöllurEkki er enn komin dagsetning á
Tour de Hvolsvöllur, hina skemmti-
legu götuhjólreiðakeppni sem haldin
hefur verið nokkur undanfarin ár.
Í henni er keppt í tveimur vega-
lengdum, 110 kílómetrum þar sem
hjólað er frá Reykjavík til Hvolsvallar
og 48 kílómetrum þar sem ræst er á
Selfossi.
7 KIA Gullhringurinn 9. júlíHjólað um margar þekktustu
náttúruperlur landsins frá Laugar-
vatni. Hægt er að velja milli þriggja
vegalengda, 48, 65 og 106 kílómetra.
7 flottar
hjólakeppnir
Yfir þúsund manns tóku
þátt í WOW Cyclothon
í fyrra og útlendingar
sýna keppninni sífellt
meiri áhuga.
Mynd/Kristinn Magnússon
Author hjólin
hafa slegið í gegn
Kappkostum að bjóða meiri gæði á lægra verði
Í Húsasmiðjunni
er mjög fjölbreytt
úrval af hjólum.
Unnið í samstarfi
við Húsasmiðjuna
„Við erum með mjög fjölbreytt úr-
val í dag og erum stöðugt að auka
við vöruval okkar þegar kemur að
hjólreiðum. Í sumar ætlum við að
taka inn keppnishjól og ætlum við
einnig að bjóða upp á sérpantanir
á slíkum hjólum frá Author,“ segir
Þór Austmann, innkaupastjóri hjá
Húsasmiðjunni.
Í Húsasmiðjunni er hægt að
fá gæðahjól af öllum stærðum
og gerðum á góðu verði, allt frá
minnstu barnahjólum upp í vönd-
uð kepnishjól. „Við kappkostum að
reyna að vera með besta verðið á
markaðnum hverju sinni.
Húsasmiðjan hóf sölu á reiðhjól-
um frá tékkneska reiðhjólafram-
leiðandanum Author fyrir nokkrum
árum. Hjólin hafa slegið rækilega í
gegn enda er Auhtor vel þekkt vöru-
merki í Evrópu sem framleiðir allt
frá barnahjólum upp í keppnishjól.
Author reiðhjólin eru búin mjög
góðum búnaði og hefur Húsasmiðj-
an frá upphafi lagt áherslu á að
bjóða upp á gæðareiðhjól frá Auh-
tor á lægra verði en þekkst hefur
hérlendis.
Að sögn Þórs njóta svokölluð
blendingshjól (e. Dual Sport) vax-
andi vinsælda. „Við höfum verið
að færa okkur meira í áttina að því
sem má kalla blendingshjól. Þetta
eru svona alhliða hjól, þú getur
bæði farið á því inn í Þórsmörk og
hjólað á því í vinnuna. Svona hjól
er bæði hægt að nota í sportið og
lífsstílinn.“
Egill
Björnsson.
12 | fréttatíminn | HELgiN 15. apRÍL–17. apRÍL 2016
Kynningar | Hjól