Fréttatíminn - 15.04.2016, Síða 90
Unnið í samstarfi við
Icebike Adventues
„Ferðirnar okkar snúast um að hjóla
í mjög litlum hópum á leiðum sem
eru úr alfaraleið, við leggjum mikla
áherslu á að fólk nái að njóta nátt-
úrunnar,“ segir Magne Kvam sem
rekur fjölskyldufyrirtækið Icebike
Adventures ásamt Ástu Briem.
Icebike var stofnað árið 2008
og býður upp á fjallahjóla-, breið-
hjóla-, og þyrluhjólaferðir. Hægt er
komast úr kliðnum í Reykjavík með
því að bregða sér í dagsferð út fyrir
borgarmörkin og eins er vinsælt
að fara í lengri hálendisferðir. „Í
lengri ferðum erum við í tæpa viku
á hálendinu og sérsníðum gjarnan
hálendisferðir fyrir litla hópa,“ segir
Magne.
„Fyrir okkur snýst þetta um
útivist, að takast á við náttúruna í
mismunandi skilyrðum, að upplifa
og skapa minningar og sögur. Svo
vill tækjadellan nú stundum koma
inn í þetta en margir mæta með sín
eigin hjól. Við bjóðum þó auðvitað
upp á hágæða fulldempuð fjallahjól
til leigu, bæði fyrir dagsferðir og
þá sem koma í lengri ferðir en hafa
ekki tök á að koma með hjólin með
sér.“
Í fyrra byrjaði Icebike með svo-
kallaðar breiðhjólaferðir (e. fatbike).
Að sögn Magne er um ótrúlega
skemmtilegar ferðir að ræða.
„Breiðhjólin henta í snjó og sandi
og gefa tækifæri á nýjum hjóla-
leiðum. Það er ekkert mál að hjóla
á breiðhjóli og gaman að geta boðið
fólki upp á að hjóla í snjónum –
sérstaklega fólki sem hefur jafnvel
aldrei séð snjó. Við bjóðum upp á
breiðhjólaferðir fyrir byrjendur sem
og vana hjólreiðamenn og notum
vönduð breiðhjól með hinum
íslensku Lauf göfflum.“
„Icebike leggur áherslu á að ferða-
menn og hjólreiðafólk umgangist
náttúruna af virðingu,“ segir Magne
Kvam að lokum.
Nánari upplýsingar um fyrirtækið
má finna á icebikeadventures.com.
Ferðast er um hálendið á hjólum og Land Rover jeppum.
Leggja áherslu á að
fólk njóti náttúrunnar
Icebike Adventures býður upp á fjölbreyttar hjólaferðir um landið
Magne Kvam.
Icebike Adventures leggur áherslu á litla hópa
og að fólk nái að njóta náttúrunnar.
Þyrluhjólaferðir njóta vaxandi vinsælda.
Tími, hraði og vegalengd er það
helsta sem hjólarinn er að mæla
Vinsældir Garmin hjólreiðatækja hafa vaxið ört í takt við sportið
Varia Radar er vinsælt afturljós sem búið
er skynjara.
Unnið í samstarfi við Garminbúðina
„Garmin kom fyrst með tæki sérstaklega
ætluð til hjólreiða fyrir 10 árum síðan og
hafa vinsældir þeirra vaxið í takt við sportið.
Tækin eru mest notuð af fólki sem er að æfa
hjólreiðar, því alveg eins og hlauparinn vill
halda jöfnum hraða, vill hjólreiðamaðurinn
halda jöfnum snúningi,“ segir Ríkarður
Sigmundsson, framkvæmdastjóri Garmin-
búðarinnar.
Garminbúðin býður upp á mikið úrval
tækja fyrir hjólreiðafólk. „Tími, hraði og
vegalengd er það helsta sem hjólarinn er að
mæla og eru Garmin Edge tækin mjög vinsæl
til þess. Tækin sem eru í boði eru með mis-
stórum skjá sem festur er á stýrið og nemum
sem settir eru á pedalasveifarnar þannig að
þú veist hvað þú ert að snúa pedölunum
hratt.“
Leysir reiðhjólatölvur af hólmi
Fjórar tegundir eru í boði af Garmin Edge,
allt frá einföldu tæki með litlum skjá yfir
í tæki með stórum skjá sem koma með
púlsmæli, mæla afl og leggja til hjólaleiðir
fyrir þig. „Edge 20 leysir hefðbundnar reið-
hjólatölvur af hólmi með GPS tækninni og
kostar aðeins 23.900 krónur. Með því sérð þú
hvað klukkan er, tímann sem þú ert búinn að
hjóla, hraða og vegalengd ásamt því að geta
séð í tölvu hvar þú hjólaðir og getur sent á
fjölskyldu og vini svolítið mont. Edge 25 er
í sömu stærð á 31.900 krónur en bætir við
þráðlausri tækni með Bluetooth og Ant+.
Með Ant+ á tækið samskipti við púlsmæli og
Cadens taktmæli en með Bluetooth getur
það birt SMS og hver er að hringja á skjánum
ásamt því að senda þráðlaust æfinguna þína
yfir í snjallsíma. Næst koma Edge 520 á
59.900 krónur, sem er hreinræktað æfinga-
tæki og eitt það fullkomnasta á markaði til
slíks brúks, og svo Edge 1000 sem er jafn
fullkomið og Edge 520 en með stærri skjá
með snertitækni og hjólakorti af Evrópu og
Íslandi. Edge 1000 hefur verið aðal reiðhjóla-
tækið undanfarin ár,“ segir Ríkarður.
Mikið öryggistæki
Varia hjólalínan frá Garmin nýtur vaxandi
vinsælda meðal hjólreiðafólks. „Varia Radar
er afturljós búið skynjara sem skynjar bíla
sem eru að koma aftan að þér og bíla sem
eru í allt að 140 metra fjarlægð. Radarinn
vinnur með flestum Edge tækjum og þá
sérðu bílana nálgast þig á skjánum. Þetta
tæki er algjör snilld og mikið öryggistæki því
þú ert viðbúinn því að bíll taki fram úr þér og
ef aðstæður leyfa getur þú farið meira út í
kant til að auðvelda bílnum að fara framhjá.“
Garmin býður einnig upp á vinsæl framljós
frá Varia. „Ljósið er þannig búið að þegar það
er tengt við Edge tæki þá stillir það geislann
eftir því hversu hratt þú hjólar, beinir ljósinu
nálægt þér þegar þú hjólar hægt en hækkar
svo geislann við aukinn hraða. Auk þess þá
getur það líka valið sjálfvirkt hversu sterkur
ljósgeislinn er ef það er tengt við Edge 1000
því það er með innbyggðum birtuskynjara og
velur því blikkljós á daginn en breytir svo í
öflugri ljósgeisla eftir því sem rökkrið færist
yfir,“ segir Ríkarður.
Garminbúðin er í Ögurhvarfi 2, Kópavogi,
með góðu aðgengi að Breiðholtsbrautinni, og
er opin alla virka daga frá klukkan 10 til 18.
Garminbúðin í Ögurhvarfi býður upp á mikið úrval tækja fyrir hjólreiðafólk.
Fjórar tegundir eru í boði af Garmin Edge,
frá einföldum tækjum með litlum skjá yfir
í tæki með stórum skjá.
18 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 15. APRÍL–17. APRÍL 2016
Kynningar | Hjól