Berklavörn - 01.06.1945, Síða 19
fyrir samtökum þessum, og sú von er orð-
in að veruleika með byggingu vinnuheim-
ilisins. Hinar opinberu varnir, berklahæl-
in, og nú síðast hin almenna berklaskoðun,
voru góð til varnar, en hinsvegar var ekki
séð fyrir vinnu handa þeim, sem þurftu að
vinna til þess að fá aftur lífsþrótt og
áhuga fyrir lífinu.
Vinnuheimilið á að vekja nýjar vonir í
brjóstum hinna veikbyggðu. Það er stór-
virki berklasj úklinganna sjálfra, sem hafa
að vísu notið rnikils skilnings, stuðnings og
samúðar, en forgangan og verkið sjálft er
þeirra verk.
Berklaveikin er sem betur fer í rér.un,
en þó er varla nokkur karl eða kona í
landinu, svo að eigi hafi misst ættingja,
náinn vin. leikbróður eða leiksystur úr
berklaveiki. Þjóðin er þess vegna öll í
þakkarskuld við þá menn, sem hafa beitt
sér fyrir byggingu vinnuheimilis berkla-
sjúldinga. Starf þeirra er til fyrirmyndar
fyrir þá, sem vilja vinna að mannúðai’mál-
um til almenningsheilla. Rétt er og nauð-
synlegt, að ríkið reisi og reki sjúkrahús og
ýmiskonar hæli, en hitt er ekki síður nauð-
syn að auka samúð, félagsskap og sam-
vinnu meðal landsmanna, en til þess eru
samtök, slík sem samband íslenzkra
berklasjúklinga, mæta vel fallin og fer vel
á því að almenn samtök og ríkisvaldið
haldist í hendur um úrlausn mannúðar- og
þjóðþrifa mála.
ísland er að vísu ennþá „Ægi girt“ en
það er ekki lengur „langt frá öðrum þióð-
um“, heldur í hringiðu heimsins. Þarfir
landsbúa eru augljósar, en auk þess að
vinna að því að uppfylla þær, eigum við að
kappkosta að eignast þann metnað, að
standa öðrum þjóðum framar í hverskon-
ar mannúð og félagslegum þroska. Á þann
hátt getum við unnið öðrum þjóðum gagn.
Baráttan við þjáningar, sjúkdóma og ör-
birgð er þjóðfélagsvandamál, en jafnf ramt
viðkomandi hverjum einstakling. Allir
eiga að láta sig þessa baráttu skipta. Aðr-
ar þjóðir hafa herskyldu. Erfitt mun að
skylda menn til hinnar þjóðfélagslegu bar-
áttu, en almennt velsæmi ætti að bjóða
mönnum, að í þeirri baráttu má enginn
sitja hjá.
Kvíðinn fyrir komandi degi hefur lamað
lífsþrótt alls fjöldans og verið upphaf ým-
iskonar óhamingju og óhappaverka. Á
þetta hefur verið bent af umbóta- og fram-
faramönnum. Og nú standa vonir manna
til þess, að hinn nýi heimur, sem rís upp
á rústunum eftir styrjöldina, byggist á
þeirri kenningu, að hver þjóð fyrir sig og
hið nýja þjóðabandalag í heild, einbeiti
öllum kröftum til þess að efla andlegt og
efnalegt frelsi þegnanna og útrýma skort-
inum og kvíðanum.
Samband íslenzkra berklasjúklinga hef-
ur hafizt handa um að útrýma kvíðanum
frá berklasjúklingum, sem brottskráðir
eru af heilsuhælum, en alltaf eru nóg verk-
efni eftir óleyst. Þau eru svo mörg, að það
er full nauðsyn þjóðlegrar vakningar í
þessu efni og því fyrr, sem almenningi
verður þetta ljóst, því betri mun árangur-
inn verða.
T5appclrœtii 55. c J. "15. 55.
Flugvélin er framtíðar-samgöngu-
tæki Islendinga.
I happdrætti S. í. B. S. er einn
vinningurinn tveggja manna flugvél
og flugnám.
Þjóðnýtara fyrirtæki en Vinnu-
heimili S. í. B. S. er ekki hægt að
styrkja. Kaupið því happdrættismiða
S. í. B. S.
Munið happdrætti S. í. B. S.!
BERKLAVÖRN
3