Fréttatíminn - 30.09.2016, Page 6
6 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. september 2016
Hólaskóli selur nemenda
íbúðirnar: „Þetta er búin
að vera glötuð saga“
Skólamál Háskólinn á Hól-
um byggði allt of margar
nemendaíbúðir með lánum
frá Íbúðalánasjóði. Skuldir
umfram eignir eru einn
milljarður króna og skólinn
reynir að selja íbúðirnar.
Stjórnarformaður Nemenda-
garða Hólaskóla vonast eftir
góðu samstarfi við væntan-
legan kaupanda nemenda-
íbúðanna.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
„Við erum að reyna að stilla þessu
þannig upp að það sé einhver
glóra í þessu. […] Þetta er búin að
vera glötuð saga,“ segir Víkingur
Þór Gunnarsson, stjórnarformað-
ur Nemendagarða og lektor við
Háskólann á Hólum í Hjaltadal í
Skagafirði, aðspurður um sölu á 38
íbúðum sem skólinn hyggst selja í
fjárhagslegri endurskipulagningu.
Íbúðirnar voru byggðar fyrir nem-
endur skólans árið 2004 og voru
þær fjármagnaðar af ríkisstofnun-
inni Íbúðalánasjóði.
Allt of margar íbúðir fyrir nem-
endur voru byggðar á Hólum og
segir Víkingur að nýting þeirra hafi
einungis verið á milli 50 og 60 pró-
sent á síðustu árum. Hann segir að
ákvörðunin um að byggja svo mik-
ið á sínum tíma hafi verið forsvars-
manna skólans og svo mennta-
málaráðuneytisins. „Það var mikil
fjölgun nemenda á þessum árum en
það sá það enginn fyrir að á annað
hundrað nemenda hjá okkur yrðu í
fjarnámi, eins og nú er. Afborganir
lána með þeirri nýtingu sem verið
hefur eru ómögulegar þannig að við
erum að reyna að koma þessu í ein-
hverja stöðu sem „meikar sens“.“
Nemendagarðar eru sérstakt fé-
lag, sjálfseignarstofnun, sem er í
eigu Háskólans á Hólum sem átt
hefur í erfiðleikum fjárhagslega
síðastliðin ár eins og komið hef-
ur fram opinberlega. Fyrir tveim-
ur árum gaf Ríkisendurskoðun út
skýrslu um fjárhagsstöðu skólans
þar sem fram kom að hún væri
mikið áhyggjuefni en uppsafnað-
ur halli skólans nam 157 milljónum
árið 2013.
Víkingur segir að forsvarsmenn
Hólaskóla vonist til að einhver aðili
í ferðaþjónustunni kaupi nemenda-
íbúðirnar og leigi þær til nemenda
skólans á veturna en til ferðamanna
á sumrin. „Við bara vinnum að því
að það verði gott samstarf á milli
þeirra sem kaupa þetta og við skól-
ann. Til dæmis ef það kæmi inn að-
ili í ferðaþjónustu sem hefði góða
nýtingu á þessu á sumrin og gæti
svo leigt nemendum á veturna.“
Samkvæmt ársreikningi Nem-
endagarða Hólaskóla voru skuld-
ir félagsins umfram eignir tæpur
milljarður króna árið 2014 og voru
skuldirnar að mestu við Íbúðalána-
sjóð. Bókfærðar skuldir námu þá
rúmlega 1800 milljónum króna en
Arion banki og Byggðastofnun voru
þá búin að færa lán sín niður að
fullu. Víkingur segir að tapið lendi
að mestu á íbúðalánasjóði.
Í skýrslu Rannsóknarnefnd-
ar um Íbúðalánasjóð, sem kom út
árið 2013, voru lánveitingar sjóðsins
til nemendagarða víða um landið
gagnrýndar, þó ekki hafi verið talað
sérstaklega um Hólaskóla. „Sjóð-
urinn hefur meðal annars lánað
til smíði nemendagarða víða um
land. Erfitt er að nota slíkt húsnæði
í annað en stofnað var til í upphafi,
ekki síst þegar byggt er á afskekkt-
um stöðum. Staða sjóðsins er ekki
góð þegar eigendur slíks húsnæðis
standa ekki í skilum.“ Þá var einnig
sagt að áhætta sjóðsins vegna slíkra
lánveitinga væri mikil: „Áhætta
Íbúðalánasjóðs var einnig mikil
þegar lánað var til smíði nemenda-
garða, ekki síst þegar byggt var á
afskekktum stöðum.“
Heildartap Íbúðalánasjóðs af lán-
veitingunum til Hólaskóla liggur
ekki fyrir en Fréttatíminn óskaði
eftir þeim upplýsingum frá Íbúða-
lánasjóði.
Upplýsingafullltrúi Íbúðalána-
sjóðs, Ylfa Kristín Árnadóttir, neitar
aðspurð að gefa upp hversu mikið
tap sjóðsins er vegna lánveitinga til
Nemendagarða Hólaskóla.
Einungis á milli 50 og 60 prósent nemendaíbúða Háskólans á Hólum í Hjaltadal hefur verið nýttur, að
sögn stjórnarformanns félagsins sem á íbúðirnar. Nú þarf að selja þær upp í skuldir við Íbúðalánasjóð.
Í skýrslu Rann-
sóknarnefndar
um Íbúðalánasjóð
var bent á það
hversu áhættusöm
viðskipti sjóðsins
með fjármögnun
nemendagarða
voru. Guðmundur
Bjarnason var for-
stjóri Ibúðalánasjóðs
á árunum 1999 til
2010.
Skattsvik Ekkert kemur í
veg fyrir að forsvarsmenn
fyrirtækis sem var lokað á
dögunum vegna stórfelldra
skattsvika fái nýja kennitölu
en verktakarnir eru enn að
störfum samkvæmt heim-
ildum Fréttatímans. „Það er
almannahagur að löggjafinn
gangi í lið með okkur og
leysi þessi mál til framtíðar,“
segir Sigurður Jensson hjá
Ríkisskattstjóra.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Konur um allt Pólland munu leggja
niður vinnu á mánudaginn til að mót-
mæla nýjum lögum um fóstureyðingar.
Pólverjar á Íslandi hafa skipulagt
mótmæli við Alþingishúsið á mánudag,
klukkan 17.30.
Byggingaverktakar starfa enn þrátt fyrir lokun lögreglu
Ríkisskattstjóri og lögregla lokuðu
í vikunni starfsstöðvum umsvifa-
mikils fyrirtækis í byggingarstarf-
semi á Suðurnesjum og í Reykja-
vík vegna skattsvika sem nema á
annað hundrað milljónum króna.
Fyrirtæki hafði hvorki greitt virðis-
aukaskatt né skilað staðgreiðslu til
ríkisins af launum starfsfólks. Sam-
kvæmt heimildum Fréttatímans
eru menn á vegum verktakanna þó
enn að störfum undir öðru nafni.
Sigurður Jensson, sviðsstjóri hjá
Ríkisskattstjóra, segir að forsvars-
mennirnir geti þess vegna stofnað
annað fyrirtæki á morgun og haldið
uppteknum hætti. Það sé sorglegt
en lögum hafi ekki enn verið breytt
til að koma í veg fyrir slíkt.
„Eins og staðan er í dag þá er lítið
sem hægt er að gera til að stöðva
þessa einstaklinga nema að fylgj-
ast með nýju félögunum safna upp
vanskilum og hefjast þá handa.
Þetta er kannski svolítið eins og
lögreglan gæti ekki aðhafst gagn-
vart afkastamiklum bankaræn-
ingjum því þeir skipta alltaf um
bíl milli bankarána,“ segir Sigurð-
ur og bendir á að meðan þeir séu
ekki persónulega gjaldþrota og hafi
ekki hlotið dóm séu þeir í góðum
málum.
Hann segir brýnt að setja ákvæði
um hæfisskilyrði stjórnenda inn
í lög sem feli í sér að skuldi aðili
persónulega eða félag/félög sem
hann hefur stýrt vörsluskatta geti
hann þurft að sæta atvinnurekstr-
arbanni. Þetta myndi til að mynda
útrýma stétt svokallaðra útfarar-
stjóra í þessum bransa. Hann segist
ekki skilja tregðu stjórnvalda til að
Lagasetning gæti komið í veg fyrir
afbrot fjölda manna sem ganga undir
nafninu útfararstjórar.
Pólskar konur leggja
niður vinnu á mánudag
Mannréttindi Íslenska
kvennaverkfallið 1975 er
pólskum konum hvatning
til að leggja niður vinnu
á mánudag í mótmæla-
skyni gegn nýjum fóstur-
eyðingarlögum. Búist er
við að gífurlegri þátttöku
kvenna um allt Pólland.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
„Þúsundir pólskra kvenna hafa
mótmælt á götum úti síðustu daga
en á mánudag ætlum við að leggja
niður vinnu í heilan dag, líkt og
íslenskar konur gerðu árið 1975,“
segir Justyna Grosel.
Justyna er einn skipuleggjandi
mótmælanna gegn pólskri fóst-
ureyðingalöggjöf sem hægri-öfga
flokkurinn PiS lagði fram í vik-
unni. Hún segir nýju lögin hrifsa
konur aftur til miðalda en sam-
kvæmt þeim mega konur ekki fara
í fóstureyðingu nema líf þeirra
liggi við. Konur, og stúlkur niður í
11 ára sem verða barnshafandi eftir
nauðgun, eiga, samkvæmt nýjum
lögum, ekki rétt á fóstureyðingu
og fari kona í fóstureyðingu má
hún búast við fimm ára fangelsis-
vist. „Við mótmælum því að litið sé
á nauðganir sem upphaf nýs lífs,
að komið sé fram við óléttar konur
eins og hugsanlega glæpamenn og
að trúarbrögð hafi áhrif á lög og líf
kvenna í Póllandi,“ segir Justyna.
Upphaf þess að pólskar kon-
ur hafa ákveðið að mæta ekki
til vinnu á mánudag má rekja til
verkfalls íslenskra kvenna þann
24.október 1975. „Ein af okkar
ástsælustu leikkonum, Krystyna
Janda, setti mynd af íslenska
kvennaverkfallinu á facebók-síðu
sína í vikunni og þá fór bylgjan af
stað. Íslenskar konur eru okk-
ur mikil hvatning og það er búist
við gífurlegri þátttöku því fjöl-
miðlaumfjöllun hefur verið mikil
og borgarstjórar og annað áhrifa-
fólk hefur sagst styðja verkfallið.
Við ætlum að styðja mótmælin
hér á Íslandi með því að hittast á
Austurvelli eftir vinnu á mánu-
daginn, klukkan 17.30, og vonumst
eftir stuðningi Íslendinga, jafnvel
Alþingis.“
Sigurður Jensson
skilur ekki tregðu
stjórnvalda til að
breyta lögunum.
breyta þessu, menn telji kannski að
slík lög yrðu of afgerandi og dragi
úr vilja manna til rekstrar. Slíkt
lagaákvæði myndi hinsvegar forða
samfélaginu frá miklu tjóni. en rík-
issjóður verði af tugum milljarða
vegna þessarar háttsemi.