Fréttatíminn - 30.09.2016, Page 10
10 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. september 2016
K
irkjuvegur
Fífilgata
Vestmannabraut
04:39
Hlynur Már Jónsson hringdi á lögregluna.
Hún kom þó ekki.
05:13
Árásin virðist hafa átt sér stað á Fífilgötu rétt
eftir 05:13. Ung kona sá þolandann nakta
á götunni og dökkklæddan mann ganga á
brott. Hún lýsir göngulaginu og fasi mannsins
sem pollrólegu.
05:00
Vitni C sá manninn tala við konuna, og
lýsir því að hún hafi ýtt honum frá sér.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
„Það má vel vera að ef þetta hefði
verið einhver annar, þá hefðum við
gengið kannski meira inni í þetta,
við hefðum kannski getað stöðvað
þetta,“ segir Hlynur Már Jónsson,
vert á Lundanum í Vestmannaeyj-
um, og sá sem hringdi til lögreglu
og bað hana um að aðstoða konu
sem átti eftir að verða fyrir hrotta-
legri líkamsárás síðar um kvöldið.
Ágreiningur var uppi á milli konu á
miðjum aldri og mun yngri manns,
sem bæði eru Vestmannaeyingar.
Sjálfur segir Hlynur Már að hann
hafi haft mestar áhyggjur af því að
þau myndu falla um hvort annað,
enda bæði mjög drukkin á þessum
tíma, á fimmta tímanum aðfaranótt
næstliðins sunnudags.
Hlynur sá ekki fyrir hvað átti eft-
ir að gerast en innra með honum
var þessi ónotatilfinning, sem varð
til þess að hann ákvað að hringja á
lögreglu og biðja hana um að koma
og aðstoða konuna. Lögreglan kom
þó ekki fyrr en nokkru síðar. Hún
var upptekin í öðru útkalli, og
gat ekki sinnt tveimur útköllum á
sama tíma. Lögreglumaður spurði
því Hlyn Má hvort um neyðartilfelli
væri að ræða. Hlynur svaraði neit-
andi. Ákvörðun sem hann sér sár-
lega eftir og nagar samvisku hans
í dag. Honum til varnar; hann hr-
ingdi á lögregluna því hann vildi
aðstoð. Skyndilega var hann settur
í þá stöðu að forgangsraða störfum
lögreglunnar.
Um það bil hálftíma síðar fannst
konan akin í garði, skammt frá
skemmtistaðnum, og var svo illa
útleikin að kalla þurfti á þyrlu til
þess að fljúga með hana á spítala
í Reykjavík. Spurningin sem bæj-
arbúar sitja uppi með er einföld;
hvernig gat svona lagað gerst?
Ekki átt auðvelda ævi
„Ég held að það hafi örugglega
tengst því hver hún er að ekki hafi
verið brugðist við fyrr,“ segir sjó-
maður og góður vinur konunnar
sem Fréttatíminn ræddi við. Hann
var sjálfur staddur úti á sjó þegar
hann fékk hinar hrikalegu fregnir
af vinkonu sinni, sem hafði verið
misþyrmt hrottalega um nóttina.
Konan sem um ræðir er 45 ára
gömul og vel þekkt í Vestmanna-
eyjum líkt og árásarmaðurinn. All-
ir þeir sem Fréttatíminn ræddi við
vissu hverjir áttu hlut að máli. Enda
bærinn lítill og fólk talar saman.
Konan hefur átt við vímuefna-
vanda að stríða og allir viðmælend-
ur Fréttatímans eru sammála um
að hún hafi átt erfitt uppdráttar.
Hún var gefin kjörforeldrum ung
að aldri og ólst upp í Vestmanna-
eyjum. Konan hefur komið við sögu
lögreglu, en þó aldrei fyrir alvarleg
afbrot. Og þó það hafi aldrei verið
orðað með berum orðum, þá má
draga þá ályktun að ofbeldi hafi
ávallt hvílt sem skuggi yfir lífi kon-
unnar.
Hlynur Már segir að hann þekki
töluvert til aðstæðna konunnar.
„Hún hefur ekki átt auðvelda ævi,“
segir hann alvöruþrungin.
Hlynur áréttar að hann hafi oft
séð hana í verra ölvunarástandi en
kvöldið örlagaríka. Það hafi ekki
verið vandamálið. Það var hinn
ungi maður sem sýndi af sér ógn-
andi hegðun sem virðist hafa brotist
út í hrottalegu tilræði við konuna
að lokum.
Sá er 23 ára gamall fjölskyldu-
maður. Hann á unga konu og ungt
barn. Hann vinnur við ferðamanna-
iðnaðinn í Vestmannaeyjum og er
íslenskur, líkt og þolandi árásar-
innar. Einn viðmælandi Fréttatím-
ans sagði manninn þó hafa slæmt
orð á sér. Meðal annars beri hann
viðurnefnið „Klikk“ og heimildum
ber saman um að maðurinn hafi
verið sakaður um dýraníð í æsku.
Maðurinn neitar sök, en viður-
kennir að hafa átt í útistöðum við
konuna um kvöldið. Myndbands-
upptökur staðfesta það.
Var hægt að gera meira?
Konan og maðurinn virðast byrja að
kýta fyrr um kvöldið. Í greinargerð
lögreglustjóra, sem birtist í úr-
skurði hæstaréttar, kemur fram að
maðurinn hafi talið að konan ætlaði
að brjóta rúðu á Lundanum. Sjálf-
ur starfar hann sem dyravörður, þó
ekki á Lundanum, og ákvað af eigin
frumkvæði að snúa konuna niður.
Dyravörður á staðnum kom að og
segir í úrskurðinum að hann hafi
séð manninn standa yfir konunni,
halda höndum hennar fyrir aftan
bak. Konan hafi þá verið á hnján-
um með höfuðið ofan í steyptum
öskubakka. Dyravörðurinn sagði
manninum að láta konuna í friði en
sjálfur lýsti hann framferði manns-
ins þannig að hann hefði verið að
kvelja konuna sem gat ekki borið
hönd fyrir höfuð sér.
Þegar þorpinu mistókst að
vernda lítilmagnann
Þegar konu var
misþyrmt í Vest-
mannaeyjum um
fyrri helgi, mistókst
öllum að vernda hana
og koma í veg fyrir
hrottafengna árás.
Dyraverðir áttuðu sig
ekki á vandamálinu
en hringdu samt á
lögreglu vegna ónota-
tilfinningar, lögreglan
sinnti ekki kallinu
og Héraðsdómur
Suðurlands neitaði
að úrskurða meintan
geranda í gæsluvarð-
hald. Manninum var
sleppt úr haldi á mið-
vikudaginn.
Á kortinu má sjá feril fólksins áður en árásin átti sér stað.
Það er ómögulegt að
segja, en við gerum
öll upp á milli fólks
að vissu marki. Það er
bara ljót staðreynd.
Hlynur Már Jónsson
www.volkswagen.is
Amarok býður upp á einstaklega gott vinnuumhverfi, mikið
innanrými og stóran pall. Frábærir aksturseiginleikar og
þýsk gæði endurspeglast í þessum kröftuga pallbíl.
Amarok Startline með fjarstýrðum og tímastilltum vélahitara
(Webasto) og loftkælingu fæst nú á sérstöku tilboðsverði.
Amarok Startline 4Motion D/C 2.0 TDI
140 hestöfl kostar frá
5.840.000 kr.
(4.709.677 kr. án vsk)
Eyðsla frá 7,6 lítrum/100 km.
Afkastamikill vinnubíll
www.volkswagen.is
AtvinnubílarHEKLA býður gott úrval atvinnubíla og góða þjónustu.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
Volkswagen Amarok