Fréttatíminn - 30.09.2016, Page 19
| 19FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. september 2016
Núverandi árlegur
kostnaður:
Skattborgarar:
165
milljarðar króna
Sjúklingar:
38
milljarðar króna
Útgjöld til heilbrigðismála eru 26
prósent af skatttekjum ríkissjóðs.
203 milljarðar króna
Loforð ríkisstjórnar
frá 2015:
Skattborgarar:
+27,5
milljarðar króna
Sjúklingar:
+6,5
milljarðar króna
237 milljarðar króna
Útgjöld til heilbrigðismála yrðu 29,2 prósent af
skatttekjum ríkissjóðs. Til að mæta hækkuninni
þyrfti að skera niður á móti eða hækka skatttekjur
um tæpa 21,7 milljarða króna umfram hækkanir
vegna aukinnar landsframleiðslu, 3,3 prósent.
Miðað er við framlög til heilbrigðismála samkvæmt
meðaltali Norðurlandaþjóðanna sem hlutfalli af
landsframleiðslu, 9,7%.
Loforð um 11%
af landsframleiðslu:
Skattborgarar:
+59
milljarðar króna
Sjúklingar:
+12,5
milljarðar króna
275 milljarðar króna
Útgjöld til heilbrigðismála yrðu 33 prósent af skatt-
tekjum ríkissjóðs. Til að mæta hækkuninni þyrfti
að skera niður á móti eða hækka skatttekjur um
tæpa 48 milljarða króna umfram hækkanir vegna
aukinnar landsframleiðslu, 7,1 prósent. Miðað er
við framlög til heilbrigðismála eins og þau eru í
hæðst í heiminum; í Svíþjóð, Þýskalandi, Hollandi
og Sviss, 11%.
Loforð um 11% og
gjaldfrjálsa þjónustu
Skattborgarar:
+109,5
milljarðar króna
Sjúklingar:
-38
milljarðar króna
275 milljarðar króna
Útgjöld til heilbrigðismála yrðu 40,5 prósent af
skatttekjum ríkissjóðs. Til að mæta hækkuninni
þyrfti að skera niður á móti eða hækka skatttekjur
um tæpa 99 milljarð króna umfram hækkanir
vegna aukinnar landsframleiðslu, eða um 14,6
prósent.
Hvað kosta loforðin?
framlög ríkissjóðs upp í 224
milljarða króna og hlut sjúk-
linga upp í 50,5 milljarðar
króna. Aftur gildir það að ef
megnið af viðbótinni á að fara
til uppbyggingar Landspítala
þá minnkar hlutur sjúklinga en
hlutur skattgreiðenda hækkar.
Til að ná á þessum markmið-
um með auknum tekjum ríkis-
sjóðs þarf nokkra uppstokkun
á tekjukerfinu. Líklega gera
þeir flokkar sem lofa þessum
árangri ráð fyrir umtalsverð-
um tekjum ríkissjóðs af útboði
á fiskveiðikvóta og gjaldtöku af
öðrum auðlindum í almanna-
eign.
Gjaldtaka er skattur
Loforð um gjaldfrjálsa heil-
brigðisþjónustu felur í sér að
gjaldtaka af sjúklingum yrði
færð yfir á skattgreiðendur.
Eins og Kári Stefánsson, for-
stjóri Íslenskrar erfðagrein-
ingar, hefur bent á breytir það
ekki miklu fyrir hvern lands-
mann almennt og yfirleitt. Auð-
vitað er það svo að sum okkar
borga meira til heilbrigðiskerf-
isins vegna þess að þau þurfa
oftar og lengur að nota lyf og
sækja læknaþjónustu, en það er
ekki hægt að sjá það fyrir hvert
okkar lendir í þeirri aðstöðu.
Að langmestu leyti fjármagna
skattgreiðendur heilbrigðis-
þjónustuna eins og ríkissjóður
væri sameiginlegt trygginga-
félag. Við borgum jafnt og þétt
alla ævina meðan við höldum
starfsþreki en fáum svo greidd-
an kostnað þegar við erum
veik, lasburða eða lúin af elli.
Gjaldtaka og önnur kostnaðar-
þátttaka sjúklinga riðlar ekki
þessari meginvirkni. Þar sem
sátt er um að skattgreiðend-
ur greiði fyrir heilbrigðisþjón-
ustu í gegnum ríkissjóð, eins og
menntun, má líta á gjaldtöku af
sjúklingum sem skattheimtu.
Þeir sem eru fylgjandi sjúk-
lingagjöldum segja hana auka
skilvirkni kerfisins og koma í
veg fyrir ofnotkun fólks á heil-
brigðisþjónustu. Þeir sem eru
andvígir gjaldtökunni segja
hættuna af ofnotkun svo smáa
og aukna skilvirkni það veiga-
litla að það vegi ekki upp á móti
því óréttlæti sem felst í því að
innheimta hátt í 20 prósent af
heilbrigðiskostnaðinum af fólki
þegar það er veikt og lasburða
og þarf á sama tíma iðulega að
taka á sig tekjuskerðingu vegna
veikindanna. Eðlilegra sé að
innheimta gjaldið þegar fólk er
heilbrigt. Á meðan gjaldtaka
getur haldið fólki frá ofnotkun
þá ýtir hún líka fólki frá sem
þarf á þjónustunni að halda,
einkum hinum tekjulægstu.
En til að ná þessu markmið-
um fram, aukningu framlaga til
heilbrigðismála upp í 11 prósent
og gjaldfrjálsa þjónustu til við-
bótar, þarf að stokka upp tekju-
kerfið og ná víðtækri sátt um að
meginhlutverk ríkissjóðs sé að
auka öryggi og jöfnuð í samfé-
laginu. | gse
Ef markmiðið er fyrst og
fremst að efla Landspít-
alann er ekki hægt að
auka þátttöku almennings
nema með því að hækka
hlutfallið annars staðar í
kerfinu þar sem sam-
kvæmt lögum er óheimilt
að innheimta gjöld af
sjúklingum sem liggja
inni á sjúkrahúsum. HVÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
6
-2
8
0
2KJÓSUM GOTT LÍF
Samtök iðnaðarins boða til opins fundar um atvinnulíf
í aðdraganda kosninga. Kaldalón í Hörpu, þriðjudaginn
4. október, kl. 8.30–10.00.
Samtök iðnaðarins vilja leggja sitt af mörkum til umræðunnar og hvetja
frambjóðendur allra flokka til að setja atvinnulífið á oddinn.
Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 8.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Skráning á www.si.is
Össur Skarphéðinsson
Samfylkingu
Smári McCarthy
Pírötum
Þórunn Pétursdóttir
Bjartri framtíð
Teitur Björn Einarsson
Sjálfstæðisflokki
Jóna Sólveig Elínardóttir
Viðreisn
Katrín Jakobsdóttir
Vinstri grænum
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Framsóknarflokki
UMRÆÐUR
DAGSKRÁ
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, setur fundinn
Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri SI,
kynnir áhersluatriði Samtaka iðnaðarins:
EFNAHAGSLEGUR STÖÐUGLEIKI – nauðsynlegur sjálfbærum vexti
HÚSNÆÐI – grunnþörf yngri og eldri kynslóða
MENNTUN – forsenda bættra lífskjara og aukinnar framleiðni
SAMGÖNGUR OG INNVIÐIR – lífæð heilbrigðs samfélags
ORKA OG UMHVERFI – ölbreyttur iðnaður í sátt við umhverfið
NÝSKÖPUN – drifkraftur verðmætasköpunar og gjaldeyristekna