Fréttatíminn - 30.09.2016, Page 30
30 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. september 2016
Hvernig verður grunnskólinn árið 2050?
Skólinn þarf
fleiri leiktæki
og fótboltavelli
Ef börnin sem Fréttatíminn ræddi
við fengju að ráða færi skólastarf-
ið að miklu leyti fram utan dyra.
Þau vilja meiri tíma til að leika sér
úti, fleiri leiktæki og fleiri fótbolta-
velli, og helst fá að ráða tíma sínum
meira sjálf. Skólastarfið færi samt
ekki aðeins fram í útileikjum því
öll eru þau sammála um að það sé
mjög mikilvægt að læra stærðfræði
og íslensku. Þeim finnst einnig mik-
ilvægt að læra tungumál og helst
vilja þau læra fleiri og byrja á því
fyrr. Einnig var þeim tíðrætt um
matinn í skólanum sem þau voru
mestmegnis ánægð með en ef þau
fengju að ráða væri meira um spa-
gettí og pítur. Flestum leiðist börn-
unum í ensku en segja samt allar
greinar vera mikilvægar, sérstak-
lega stærðfræði. Þau eru sammála
um að hópastarf sé mjög skemmti-
legt og að þemadagar séu skemmti-
legastir. Fullkominn framtíðarskóli
er því í þeirra huga skóli sem leggur
áherslu á samskipti, frjálsan leik,
hreyfingu og góðan mat í bland
við grunngreinar á borð við stærð-
færði, íslensku og tungumál.
Byltingin kallar á breytingar
Rætist framtíðarspár um breytingar
á samfélagi og vinnumarkaði munu
Til að laga sig að breyttu
samfélagi og vinnumark-
aði framtíðarinnar þarf
grunnskólinn að breytast. Í
grunnskóla framtíðarinnar
verða hlutverk kennara og
nemenda allt önnur en í dag.
Börnin fá að ráða ferðinni
meira sjálf og stundataflan,
eins og við þekkjum hana,
verður óþörf. Skólastarfið
verður meira skapandi og ef
börnin fengju að ráða væri
miklu meiri útivera og frjáls
tími til að leika saman.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
„Að ganga inn í skóla
framtíðarinnar verður
miklu frekar eins og að
ganga inn á vinnustað
heldur en skólann eins
og við sjáum hann fyrir
okkur í dag.“
Svanborg R. Jónsdóttir, forstöðumaður
rannsóknarstofu HÍ um skapandi
skólastarf.
áskoranir næstu kynslóða verða allt
aðrar en þær sem við glímum við í
dag. Í skýrslunni Framtíð atvinnu
sem World Economic Forum gaf út
fyrr á þessu ári er því spáð að ekki
síðar en árið 2020 verði atvinnu-
markaðurinn allur annar, fyrst og
fremst vegna „fjórðu iðnbyltingar-
innar“, tækniframfara sem munu
umbylta samfélaginu eins og við
þekkjum það í dag. WEF bendir á
að til þess að svara þessum miklu
samfélagsbreytingum sé nauðsyn-
legt að laga skólakerfið að breytt-
um aðstæðum. Skólinn getur ekki
lengur verið stofnun sem undirbýr
börn fyrir störf fortíðarinnar. Í stað
þess að kenna börnum að fylgja fyr-
irmælum og fá tíu á krossaprófum
þarf skóli framtíðarinnar að kenna
börnum að vera lausnamiðuð og
skapandi. Hann þarf að kenna börn-
um að hugsa út fyrir boxið. Þriðj-
ungur þeirra eiginleika sem í dag
eru taldir mikilvægir til að pluma
sig í samfélaginu verða úreltir eftir
fimm ár. Að hlúa að sköpunargáfu
barna hefur hingað til verið í neðstu
sætum forgangslista skólanna en í
dag er skapandi hugsun talin vera
einn mikilvægasti eiginleiki fram-
tíðarinnar.
Skólinn þarf að hlúa að sköpun
Skóli þar sem kennari stendur fyr-
ir framan börn sem sitja í beinum
röðum við sitt eigið borð og miðlar
upplýsingum gagnrýnislaust, er að
líða undir lok. Þetta er úrelt kerfi
sem var hugsað til að búa til hlýðna
borgara sem unnu eftir stimpil-
klukku. Að kunna að mæta á rétt-
um tíma og hlýða skipunum verð-
ur ekki það sem útvegar þegnum
framtíðarinnar atvinnu. Ef skólinn
á að þjálfa börn í að vera skapandi
frumkvöðlar sem leysa vandamál
með gagnrýnni hugsun í samvinnu
við aðra þarf kerfið að breytast. Og
það er að breytast, hægt og rólega.
„Þetta snýst ekki bara um að þjálfa
kennara heldur spilar viðhorf for-
eldra og samfélagsins um hvað sé
alvöru skólastarf inn í,“ segir Svan-
borg R. Jónsdóttir, forstöðumaður
rannsóknarstofu HÍ um skapandi
skólastarf. „Að geta bjargað sér og
brugðist við óvæntum aðstæðum
er hluti af sköpunarferlinu og því
mun skóli framtíðarinnar hlúa að
því. Samfélagsbreytingar eru hluti
af veruleikanum og við verðum að
vera fær í að leysa vandamál. En
það eru enn margir sem líta á ný-
sköpunarmennt og listgreinar sem
skemmtilega tilbreytingu frekar en
alvöru nám.“
Grunnskólinn árið 2050
„Nemendur verða mun meiri þátt-
takendur í skipulagningu námsins
en með sameiginleg markmið að
leiðarljósi,“ segir Svanborg. „Auk
þess að vinna í því að gera fólk hæft
til að starfa og lifa í samfélaginu
munum við reyna að efla það sem
manneskjur. Við munum ýta und-
ir krakkana á forsendum styrk-
leika þeirra og áhuga frekar en að
reyna að lækna það sem talið er
vera ábótavant. Skólinn verður
Pétur Snær
Finnlaugsson,
10 ára nemi í
Ingunnarskóla,
ætlar að verða
fótboltamaður.
Hvernig væri
fullkominn skóli?
„Hann væri með
mörgum útitækjum og það væru fleiri
íþróttatímar. Það væri píta í matinn
en ekki mikið af grænmetislasagna.
Það ættu líka að vera fleiri fótbolta-
vellir, helst þrír, því við erum alltaf að
slást um völlinn. Svo er gaman að vita
eitthvað nýtt, eins og um pláneturnar
og trén úti. Mér finnst líka gaman að
fara í próf.“
Stefanía Þóra
Ólafsdóttir, 9 ára
nemi í Barna-
skóla Hjalla-
stefnunnar,
ætlar að verða
söngkona.
Hvernig væri
fullkominn skóli?
„Í rosalega góðum skóla væri góður
matur og farið mikið út, til að fara í
feluleik og eltingarleik. Ég myndi líka
vilja læra meira um plöntur, fara út og
skoða þær í mismunandi skógum.“
Egill Orri, Pétur Snær, Tinna og Sara Rún eru öll sammála um að það þurfi að vera miklu meiri útivera og frjáls tími í skólan-
um. Þau kalla eftir því að fleiri leiktæki verði sett upp. Mynd | Hari
Bjóðum uppá fría
póstsendingu!
Fákafeni 9, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is
STÆRÐIR 14-28
PANTAÐU Í NETVERSLUN WWW.CURVY.IS
EÐA KÍKTU VIÐ Í VERSLUN OKKAR
AÐ FÁKAFENI 9
RIFNAR
GALLABUXUR
8.990 KR
SVARTAR
GALLABUXUR
6.990 KR