Fréttatíminn - 30.09.2016, Síða 32
32 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. september 2016
í meiri tengslum við nærsamfé-
lagið og óformlegt nám verður líka
metið til náms.“
„Að ganga inn í skóla framtíðar-
innar verður miklu frekar eins og
að ganga inn á vinnustað en skól-
ann eins og við sjáum hann fyrir
okkur í dag. Starfið verður ekki
bútað niður í 40 mínútna kennslu-
stundir og það verður miklu meira
flæði milli greina og aldurshópa.
Námsgreinaskiptingin verð-
ur ekki jafn ráðandi heldur verð-
ur flokkunin meira í átt að þeim
grunnþáttum sem við erum byrjuð
að vinna með í aðalnámskránni frá
2008; sköpun, sjálfbærni, lýðræði
og heilsu og heilbrigði.“
Jón Torfi Jónsson, prófessor og
fyrrverandi forseti Menntavísinda-
sviðs, tekur undir með Svanborgu.
„Í skóla framtíðarinnar ættu við-
fangsefnin að hafa breyst mjög mik-
ið, en ekki endilega formið. Hugsan-
lega verður ekki jafn mikil áhersla
á hefðbundinn lærdóm heldur á
ólíka þætti menntunar, því sem
snýr að listum, sköpun og ekki síst
samskiptum af öllu tagi. Það verður
lögð meiri áhersla á að uppgötva og
skoða nýja hluti. Kennarinn verð-
ur ekki minna þarfur en hann er í
dag en hlutverk hans verður ekki
að miðla. Starf kennarans er svo
margslungið og skólinn sem stofn-
un hefur mörg önnur hlutverk en
vanalega eru dregin fram í dagsljós-
ið. Skólinn er gæslustofnun í meira
mæli en fólk gerir sér grein fyrir,
hann gegnir veigamiklu félagslegu
hlutverki og hann er líka ákveðin
trygging jafnræðis því mörg börn
fengju ekki snertingu við flókið um-
hverfi sitt ef ekki væri í skólanum
þótt skólinn ætti þegar að ganga
mun lengra í því efni. Þessi atriði
verða fyrirferðarmeiri í skóla fram-
tíðarinnar.“
Kennarinn sjaldan mikilvægari
Margir hafa velt því fyrir sér hvort
tæknin eigi eftir að taka yfir og í Tómas Ari
Arnarson, 9 ára
nemi í Barna-
skóla Hjalla-
stefnunnar,
ætlar að verða
fótboltamaður.
Hvernig væri
fullkominn skóli?
„Það er að læra og vera mikið úti,
klifra í trjánum og spila fótbolta og
borða góðan mat, eins og spínat-
pasta. Við ættum líka að læra fleiri
tungumál.“
Sara Rún
Gísladóttir,
10 ára nemi í
Ingunnarskóla,
ætlar að verða
tannlæknir.
Hvernig væri
fullkominn skóli?
„Það væri gam-
an að byrja daginn á stærðfræði, fara
svo út og borða nestið sitt og vera
svo lengi í íþróttum. Og gera kannski
smá íslensku og ensku. Ég myndi líka
vilja byrja fyrr í dönsku. Mér finnst
líka að það ættu að vera litlar stofur
fyrir hvert fag og svo væri rosalega
stórt svæði með fullt af leiktækjum.“
Egill Orri Sig-
urðsson, 9
ára nemi í
Ingunnarskóla,
ætlar að verða
fótboltamaður.
Hvernig væri
fullkominn skóli?
„Það væri minni
stærðfræði og meiri fótbolti og þema.
Við ættum að vera miklu meira úti og
það ættu að vera fleiri fótboltavellir.“
10 mikilvægustu
hæfileikar
framtíðarinnar:
1. Að geta unnið úr vandamálum
2. Gagnrýnin hugsun
3. Skapandi hugsun
4. Mannauðsstjórnun
5. Mannleg samskipti
6. Tilfinningagreind
7. Að geta tekið ákvarðanir
8. Samningahæfni
9. Þjónustulund
10. Að geta brugðist hratt
við nýjum aðstæðum
Heimild: Skýrsla World Economic Forum um
framtíð atvinnu á 21. öldinni
„Kennarinn verður ekki
minna þarfur en hann
er í dag en hlutverk hans
verður ekki að miðla.“
Jón Torfi Jónsson, prófessor og fyrrverandi
deildarforseti Menntavísindasviðs.
myndum sem dregnar eru upp af
framtíðarskólum spilar tæknin oft
mikið hlutverk. Sumir hafa gengið
svo langt að segja kennara verða
hálf óþarfa í framtíðinni, þar sem
allar upplýsingar verði hægt að
nálgast á vefnum. Jón Torfi seg-
ir tæknina hafa haft mun minni
áhrif á skólastarfið en spáð var fyr-
ir um og allt önnur og í raun hafi
áhrif hennar hingað til mestmegn-
is snúið að samskiptum fólks. En
vitaskuld muni hún sífellt verða
ágengari í öllu lífi okkar – ýta út
mörgu sem nú er kennt og kalla á
annað í staðinn. „Við getum haft
jákvæði samskipti og fengið enda-
lausar upplýsingar um hvaðeina,
hvaðan sem er úr heiminum en við
getum líka orðið fyrir einelti og sið-
ferðislegar spurningar verða sífellt
ágengari vegna tækninnar. Menn
héldu að kennarinn yrði óþarfur
en starf kennarans hefur þvert á
móti sjaldan verið mikilvægara og
kennaramenntun er að breytast
mjög mikið til þess að taka mið af
breyttum áherslum.“
Ölum ekki upp þræla
„Ef kennarar eiga að gera alla
gömlu hlutina og nýju hlutina þá
er ansi mikið á þá lagt,“ segir Jón
Torfi. „Og að mínu mati fer ekki
næg umræða fram um hlutverk
skólans í menntun barna og hlut-
verk kennara í því ljósi. Kannski er
of mikil áhersla á kennslu í þessari
umræðu en of lítil á samskipti,
einstaklinginn og manneskjuna í
flóknu samfélagi. Ég held að það sé
nauðsynlegt að við undirbúum ungt
fólk til að verða stjórnendur fram-
tíðarinnar en ekki þrælar eða þjón-
ar hennar. Það eru allskonar áskor-
anir framundan og við þurfum að
líta á þær með jákvæðu hugarfari
og vera tilbúin að taka frumkvæði í
mótun framtíðarinnar.“
Eins og sagt var frá í upphafi
þá virðast hugmyndir yngstu við-
mælenda okkar um það hvern-
ig skólinn eigi að vera eiga mik-
inn samhljóm með hugmyndum
fræðinga og framtíðarspámanna.
Börnin vilja meiri frjálsan leik og
samskipti, meiri útiveru og hollan
mat í bland við mikið af þemadög-
um og nauðsynlegar grunngrein-
ar. Hljómar alls ekki svo vitlaust.
Kannski við ættum bara að leyfa
börnum að vera með í ráðum þegar
kemur að því að ræða menntamál.
Eða flýta aðeins fyrir ferlinu og gera
þau strax að minni þjónum og meiri
stjórnendum.
Tinna Guðjóns-
dóttir, 9 ára nemi
í Ingunnarskóla,
ætlar að verða
læknir.
Hvernig væri
fullkominn
skóli? „Með fleiri
leiktækjum og
meiri tíma úti. Og meira af þema og
íþróttum.“
Skóli þar sem kennari stendur fyrir framan börn sem sitja í beinum röðum við sitt eigið borð og miðlar upplýsingum gagn-
rýnislaust, er að líða undir lok. Hér eru börnin í Barnaskóla Hjallastefnunnar að byrja daginn á því að tala saman. Mynd | Hari
á Tenerife með GamanFerðum!
KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
*Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.
ÞAÐ ER
FLUG
Á ÞÉR!
SAN FRANCISCO f rá
23.499 kr.*
okt .- mars
MONTRÉAL f rá
13.999 kr.*
nóv. - mars
BERLÍN f rá
9.999 kr.*
nóv. - des .
BOSTON f rá
15.999 kr.*
nóv. - mars
PARÍS f rá
7.999 kr.*
nóv. - des .
TORONTO f rá
13.999 kr.*
nóv. - mars