Fréttatíminn - 30.09.2016, Síða 40
40 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. september 2016
Stundum gerast góðir hlutir of hægt
Metrópólítan óperan í New York er eitt virtasta óperuhús veraldar. Það vakti nokkra athygli þegar tilkynnt var að
á yfirstandandi starfsári verður á dagskrá óperuhússins óperan L’Amour de Loine eftir finnska tónskáldið Kaija
Saariaho, sem frumflutt var á Salzborgarhátíðinni árið 2000. Þetta mun vera í fyrsta sinn í sem ópera eftir konu er
tekin til sýninga við óperuhúsið í New York frá árinu 1903, eða í 113 ár, en þá var sýnd óperan Der Wald eftir Ethel
M. Smyth. Smyth var enskt tónskáld og baráttukona fyrir réttindum kvenna og almennum kosningarétti í Bretlandi.
Í viðtali við New York Times um frumflutninginn sagði Saariaho að biðin eftir óperu eftir kventónskáld sýndi hve
hægt þessi mál væru að þróast, en sagði jafnframt að þau þróuðust samt, í tónlist eins og á öðrum sviðum.
Guðný Þóra Guðmundsdóttir er list-
rænn stjórnandi Norrænna músík-
daga að þessu sinni. „Það er tæp-
lega hægt að segja að konur séu að
taka yfir norræna samtímatónlist,“
segir Guðný spurð um þá staðhæf-
ingu. „Enn eru bara 14 til 20 pró-
sent tónskálda í tónskáldafélögum
Norðurlandanna kvenkyns. Þetta
snýst frekar um meðvitund þeirra
sem setja saman dagskrá hátíða og
stofnana á Norðurlöndum. Meðvit-
und um að jafna hlut kynjanna er
að aukast og uppsveiflan í þessum
málum er vissulega mikil.“
Eru konur
að taka yfir
norræna
tónlist?
Norrænir músíkdagar hófust
í gær í Reykjavík þar sem
hægt er að taka sér far með
nýjum straumum í norrænni
samtímatónlist. Tónlist-
arhátíðin er elsta samstarf
Norðurlandanna á menn-
ingarsviðinu, fyrst haldin
árið 1888. Í fyrsta sinn nú er
hlutur tónskálda af báðum
kynjum jafn í dagskrá há-
tíðarinnar, en hún fer fram í
Hörpu um helgina.
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
með það fyrir augum að auka hlut
kvenna, takmarkið hafi verið að
hlutur þeirra væri 30-35 prósent í
dagskránni. „Það var síðan gleðilegt
að gæði verkanna voru það mikil að
jafnt hlutfall náðist. Það var óvænt
ánægja.“
Eins og á fleiri sviðum samfélags-
ins vantar ungar tónlistarkonur
fleiri fyrirmyndir á sviði tónsmíða.
„En þetta er allt að breytast og vit-
undarvakning undanfarinna ára
virðist vera að skila sér. Tónskálda-
samfélagið er að verða fjölbreytt-
ara,“ segir Guðný en bætir við að
mikilvægt sé að kventónskáld losni
að lokum undan því að rætt sé
um verk þeirra sem verk kventón-
skálda. Alltof oft gerist það að gagn-
rýnendur og aðrir sem fjalla um
tónlist leggi út frá þeirri staðreynd,
en tónlist er bara tónlist, hvert sem
kyn tónskáldsins er. „Kannski er
stóra málið nú að frelsa okkur und-
an því að vera alltaf „kventónskáld“
frekar en fyrst og fremst tónskáld
og listamenn.“
Mesta plássið á Norðurlöndum
Marcela Lucatelli er frá Brasilíu en
hefur búið í Danmörku í tíu ár. Hún
lærði tónsmíðar í tónlistarháskól-
anum í Esbjerg og er í danska tón-
skáldafélaginu. Hún segir talsverð-
an mun á löndunum tveimur þegar
kemur að nýrri tónlist og viðmóti
gagnvart konum í listgreininni.
„Í Sao Paulo, þaðan sem ég kem,
og reyndar víðar í landinu er að
finna ágætlega sterka feminíska tón-
listarsenu en samt er mikill munur
á Brasilíu og Norðurlöndum þegar
kemur að stuðningi og athygli sem
konur í tónlist fá,“ segir Lucatelli.
„Á Norðurlöndum er miklu meira
pláss og það er meiri hefð fyrir því
að hlusta á tónverk kvenna, ég er
mjög stolt af því að vera orðin hluti
af norrænni tónlist.“
Lucatelli er upphaflega söngkona,
kemur oft fram í verkum sínum og
veltir mikið fyrir sér röddum, söng
og tengslum tónlistar og tungu-
máls. Hún segist vilja hrista upp í
áheyrendum sínum og ekkert endi-
lega láta þeim líða of vel.
„Það er kominn tími á að hlusta á
konur og veita því fulla athygli sem
þær eru að fást við í tónlist og öðr-
um listgreinum. Ef horft er yfir tón-
listarsöguna er ljóst að við höfum
ekki alltaf hlustað. Núna erum við
upptekin af því að leita í nýjar átt-
ir og verða fyrir nýrri reynslu sem
er ólík því viðtekna. Þess vegna er
mikilvægt að horfa til þess sem hef-
ur verið þaggað niður með einum
eða öðrum hætti, það á jafnt við um
tónlist kvenna og minnihlutahópa,“
segir Lucatelli.
Marcella Lucatelli er ein af tónskáldunum sem koma fram á Norrænum músíkdögum í Reykjavík um helgina. Forvitnileg
dagskrá hátíðarinnar er öllum opin. Verk Lucatelli dansa á landamærum gjörningalistar og tónlistar. Mynd | Lars Bjarnø
Guðný Þóra telur að Norður-
löndin séu framar á þessu sviði en
til dæmis þjóðir sunnar í Evrópu.
Hér norður frá hafi konur gert sig
mun meira gildandi í samtímatón-
list, en til dæmis í Þýskalandi. Á
stórum evrópskum tónlistarhátíð-
um sé illa hallað á tónlist kvenna.
Tónskáldin á hátíðinni í Hörpu
senda inn verk á hátíðina. Guð-
ný segir að það hafi verið meðvit-
uð ákvörðun að líta vel á verkin
Guðný Þóra
Guðmundsdóttir
Halla Steinunn
Stefánsdóttir
Marcela
Lucatelli
Allar hétu þær -dóttir
Nordic Affect tónlistarhópurinn
hefur á undanförnum árum vakið
nokkra athygli í íslensku tónlistar-
lífi og víðar fyrir forvitnilega nálgun
á bæði nýjar og gamlar tónsmíðar.
Hópurinn hefur unnið mikið með
kventónskáldum og beint kast-
ljósinu líka að hlut kvenna í tónlist
á öldum áður, sem alltaf er að koma
betur í ljós að var meiri en áður var
talið.
Hópurinn sendi frá sér plötuna
Clockworking í fyrra. „Það tók
gagnrýnendur í Bandaríkjunum
ekki langan tíma að fatta að öll nöfn
flytjenda og tónskálda enduðu á
-dóttir,“ segir Halla Steinunn Stef-
ánsdóttir, fiðluleikari og listrænn
stjórnandi hópsins. Hún segir að
viðbrögð gagnrýnenda við þeirri
uppgötvun hafi verið jákvæð og
platan fékk víða fínustu umfjöllun.
Halla er bæði flytjandi og tón-
skáld á Norrænum músíkdögum,
en jafnframt hefur hún nýlega haf-
ið listrannsóknir í doktorsnámi
sínu við Lundarháskóla í Svíþjóð.
Sjálf er hún að mörgu leyti til merk-
is um þá þróun sem átt hefur sér
stað innan fræða og listsköpunar að
undanförnu, þar sem gamlar línur
eru riðlast. „Í auknum mæli eru sett
spurningamerki við þann aðskiln-
að sem ríkt hefur milli skapanda
og flytjanda. Þverfaglegt samstarf á
sér æ oftar stað og það krefst óneit-
anlega nýrra vinnuaðferða. Sumir
vilja líta á þær breytingar sem eiga
sér stað í listum og í raun á ýmsum
öðrum fræðasviðum sem skref í
burtu frá karllægum gildum og yfir
í kvenlæga sýn á heiminn. Þetta á
jafnt við um aukið samstarf innan
lista, eða það að hlusta á og tengj-
ast heiminum á annan hátt, verða
meðvitaðri um heildina en um leið
hið einstæða.“
LJÓSADAGAR
20–50%
afsláttur af
inniljósum
kr.
HANGANDI LJÓS
Fjórir litir í boði
11.916
Áður: kr. 14.895
kr.
DRAGLJÓS
6.920
Áður: kr. 9.885
kr.
kr.
kr.
KÚPULL
Sex litir í boði
2.396
Áður: kr. 2.995
kr.
HANGANDI LJÓS
4.897
Áður: kr. 6.995
HANGANDI LJÓS
11.515
Áður: kr. 16.450
-30%
-30%
-30%
-30%
-30%
-20%
-20%
kr.
VEGGLJÓS
Litir: Svart/grátt/hvítt
6.227
Áður: kr. 8.895
HANGANDI LJÓS
Litir: Svart/grátt/hvítt
10.497
Áður: kr. 14.995
Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | 108 Reykjavík