Fréttatíminn - 30.09.2016, Side 42
42 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. september 2016
GOTT
UM
HELGINA
Ljósir tónar í hádeginu
Íslenski flautukórinn er dugleg-
ur að halda hádegistónleika í
Listasafni Íslands. Tónleikar þessa
óvenjulega kórs eru reglulega í
boði í sérstakri hádegistónleika-
röð sem fram fer síðasta föstu-
dag hvers mánaðar og ætlað er
að vinda ofan af vinnuvikunni og
endurræsa skilningarvitin. Yfir-
skrift tónleikanna nú er Ljósir tón-
ar og tengist hann sýningu á verk-
um Valtýs Péturssonar sem opnuð
var í safninu á dögunum. Það eru
Berglind Stefánsdóttir og Karen
Erla Karólínudóttir sem leika verk
eftir Hoffmeister, Kuhlau og loks
hugleiðingar Bjargar Brjánsdóttur
um þrjú íslensk þjóðlög.
Hvar? Listasafn Íslands við Tjörn-
ina.
Hvenær? Í dag, föstudag, kl. 12.
Hvað kostar? Alveg ókeypis.
Umræður um pólskar kvikmyndir og partí
Kvikmyndahátíðin RIFF er komin af stað. Pólland er í sérstökum fókus á hátíðinni en pólsk kvikmyndalist á
sér langa og merka sögu. Þá sögu og gerjun í pólsku bíói dagsins í dag á að ræða á málþingi í dag en fjölmargar
pólskar kvikmyndir og stuttmyndir eru sýndar á hátíðinni. meðal annars tíu kvikmynda röðin Boðorðin 10
sem unnin var fyrir pólska ríkissjónvarpið og leikstýrt var af meistara Krzysztof Kieslowski, sem þekktastur er
fyrir kvikmyndirnar Rauður, Hvítur og Blár. Annars eru myndirnar í pólsku deild hátíðarinnar með eindæm-
um fjölbreyttar.
Í kvöld er síðan pólskt partí með pólskri tónlist, en ekki hvað?
Hvar? Málþing um pólskar kvikmyndir í Norræna húsinu. Partí á Hlemmur Square.
Hvenær? Málþing kl. 15. Partí kl. 21.
Hvað kostar? Ókeypis
Afrískir taktar í Gamla
bíói
Fest Afrika Reykjavík er tónlist-
ar- og menningar hátíð sem nú
er hafin í Gamla bíói og víðar í
Reykjavík. Það var trommarinn og
dansarinn Cheick Bangoura, sem
búið hefur á Íslandi frá 1999, sem
stofnaði hátíðina árið 2009 og hef-
ur hún vaxið og dafnað.
Hátíðin heldur áfram í kvöld og
á morgun og lýkur loks á sunnu-
dag. Íslenskir og erlendir tónlistar-
menn stíga á svið en öll á tónlistin
það sameiginlegt að eiga þræði
sem liggja aftur til Afríku, eins
og kannski á við um alla tónlist
almennt. Á hverju kvöldi eru tón-
leikar en það er líka fjölmargt ann-
að á dagskrá, til dæmis ráðstefna
um ýmislegt er varðar Afríku á
morgun, laugardag, klukkan. 10.
Hvar? Tónleikar í Gamla bíói, ýmis
dagskrá víðar. Sjá slóðina festa-
frikareykjavik.com
Hvenær? Tónleikar hefjast kl. 21 í
kvöld, laugardag og sunnudag.
Hvað kostar? 3900 kr. á tónleik-
ana, helgarpassi 9900 kr, en líka
ókeypis viðburðir í boði.
Frá Feneyjum í Hafnarhúsið
Í Feneyjum getur að líta annað hvert ár eitthvað af því helsta sem mynd-
listarmenn heimsins hafa að bjóða þegar myndlistartvíæringurinn (bí-
enal) er haldinn þar í borg. Stundum ferðast verkin sem þar verða til um
veröldina þannig að fleiri geti notið en bara þeir sem heimsækja vatna-
borgina eilífu.
The Enclave, kvikmynda- og hljóðinnsetning írska listamannsins Ric-
hard Mosse, hefur vakið verðskuldaða athygli síðan hún var frumflutt á
Feneyjatvíæringnum árið 2013. Myndefnið var tekið upp í Kongó þar sem
Moss, kvikmyndatökumaðurinn Trevor Tweeten og tónskáldið Ben Frost
dvöldu meðal vopnaðra uppreisnarmanna til að safna myndefni. Verkið
er innblásið af meistaraverki bandaríska rithöfundarins Joseph Conrad.
Eftir opnun verksins munu aðstandendur verksins sitja fyrir svörum.
Hvar? Hafnarhús, Listasafn Reykjavíkur.
Hvenær? Opnun kl. 20 í kvöld. Spurningar og svör kl. 21.
Velheppnaður
skólabragur
Áhugafólk um skólamál ætti
ekki að missa af ráðstefnu um
skólabrag sem fram fer í dag
þar sem fjallað verður um inn-
grip og úrlausnir í samskipta-
vanda nemanda innan grunn-
skólans. Góður skólabragur
kemur í veg fyrir samskipta-
vandamál og dregur úr líkum á
áhættuhegðun á samfélagsmiðl-
um. Það er Erindi, samtök á
sviði uppeldismála, sem standa
fyrir ráðstefnunni.
Þarna verða meðal annars
kynnt átaksverkefni sem farið
hefur verið í þessum málum í
Kársnesskóla og danskir sér-
fræðingar segja frá úrræðum
gegn einelti og áhættuhegðun
sem notuð hafa verið í Dan-
mörku.
Hvar? Salurinn í Kópavogi
Hvenær? Föstudag kl. 14-16.45
Hvað kostar? Ókeypis og allir vel-
komnir.
Bragðmiklar súpur í
Friðarhúsi
Friðarhús er,
eins og nafnið
gefur til kynna,
helgað friði.
Samtök hernað-
arandstæðinga
boða þar reglulega
til funda og ræða erjur og stríðs-
brölt mannanna og hvernig megi
stemma stigu við þeim ósóma.
Fyrsti fjáröflunarmálsverður
Friðarhúss á þessu hausti er súpu-
veisla. Boðið verður upp á hnaus-
þykka fiskisúpu friðarsinnans og
grænmetissúpu róttæklingsins og
auðvitað er kaffi og kaka á eftir.
Ásdís Thoroddsen mun að loknu
borðhaldi lesa úr nýútkominni
skáldsögu sinni sem heitir Utan
þjónustusvæðis – krónika.
Hvar? Friðarhús, Njálsgötu 87.
Hvenær? Föstudagskvöld kl. 19.
Hvað kostar? 2000 kr.
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Sýningareintak á staðnum.
Úrval af lokuðum farangurskerrum
frá Ifor Williams
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum