Fréttatíminn - 30.09.2016, Qupperneq 66
Skógarpartý Gestir voru um 300 talsins og fengu allir hlýjan galla til þess að þeim yrði ekki kalt. Hugsað fyrir öllu!
Miðbæjardiskó Miðbærinn varð eins og eitt stórt diskótek með þessu verkefni þegar
tröllvaxin „diskókúla“ var hengd upp með hjálp risavinnulyftu.
Gala Korpúlfsstaðir breyttust í dásamlega fallegan veislusal fyrir tilstilli G-events.
Engin takmörk fyrir því
hvað er hægt að gera
Viðburðarfyrirtæki sem hugsar út fyrir kassann.
Unnið í samstarfi við G-events
Viðburðarstjórnunarfyr-irtækið g-events heldur utan um allt sem getur flokkast sem viðburður
fyrir bæði einstaklinga og stór og
smá fyrirtæki. „Það sem þarf að
gera er bara að hafa samband við
okkur og segja okkur hvað fólk
er að spá, dagsetningar og allar
grunnupplýsingar. Við förum svo
í þá vinnu að finna út besta pakk-
ann fyrir hópinn og sendum svo
tilboð,“ segir Gunnar Traustason,
eigandi g-events, um það hvernig
fólk snýr sér ef það vill fá fyrir-
tækið til að sjá um viðburð. Gunn-
ar segir viðburðina vera af öllum
stærðum og gerðum og raunar
engin takmörk fyrir því sem hægt
er að gera. „Innan fyrirtækja eru
oft hefðir, það sama gert frá ári til
árs til þess að hrista hópinn saman
en stundum er gott að hugsa út
fyrir kassann. Okkar sérstaða er ef
til vill sú að við gerum það, komum
með annan vinkil og gerum eitt-
hvað öðruvísi.
Í því samhengi nefnir Gunnar til
dæmis þegar haldið var risastórt
partí úti í skógi í janúar. „Við vor-
um með diskóljós, áfenga heita
drykki og plötusnúð sem hélt
uppi stuðinu. 300 kuldagöllum var
reddað á gestina þannig að engum
varð kalt. Því sem þarf að redda er
reddað, oft með góðri hjálp.“
Gunnar segir það oft mikilvægt
að aðrir en starfsmenn fyrirtækja
sjái um viðburði fyrir starfsfólkið.
„Það kemur annar vinkill á við-
burðinn þegar utanaðkomandi aðili
er fenginn til þess að sjá um hann.
Það er mjög mikil vinna að halda
flottan viðburð og allt sem hon-
um tengist þegar hann er þannig
í umfangi að fólk hefur ekki tíma
eða getu til þess að halda utan
um hann sjálft. Þá komum við til
sögunnar.“
Gunnar leggur áherslu á að
engin skuldbinding felist í því að
fá tilboð send. Því er um að gera
að tékka á g-events þegar mikið
liggur við.
Hróður Hörpu fer víða
Stórir erlendir viðskiptavinir sækja að
Unnið í samstarfi við Hörpu
Aukningin í erlendum fyr-irspurnum um ráðstefnu-hald í Hörpu hefur verið gífurleg fyrir margskon-
ar mismunandi viðburði. Þetta
á bæði við um viðburði í opnum
rýmum og inni í okkar sölum,“
segir Karitas Kjartansdóttir, fram-
kvæmdastjóri tónlistar- og ráð-
stefnusviðs Hörpu.
Í ár hafa komið stórir erlend-
ir viðskiptavinir með viðburði á
stærra kaliberi en áður hefur sést
í Hörpu. „Þar má nefna raftækj-
arisann LG sem hélt stóra tónleika
hér í júlí fyrir viðskiptavini sína
og kynnti í leiðinni nýja tegund af
sjónvarpsskjá. Í síðustu viku tók-
um við að auki á móti 600 manns í
hátíðarkvöldverð en hópurinn var
í lúxushvataferð af þeim toga sem
ekki hefur sést áður hér á landi, “
segir Karitas og bætir við að það
hafi verið einstakt að fá tækifæri
til þess að sýna styrk Hörpu með
þessu risavaxna verkefni. Það
leynist mörg tækifæri í að taka
á móti þessum hópum þar sem
upplifunin spyrjist fljótt út. „Þar
spilar ekki síst inn í útlit hússins.
Fólki finnst Harpa falleg, enda er
arkitektúrinn mjög sérstakur. Það
er líka mikið samspil við náttúr-
una þannig að þú ert að upplifa
náttúruna og borgina á sama tíma
sem er nokkuð einstakt. Mörg
sambærileg hús erlendis eru ekki
endilega alveg í kjarna miðbæjar-
ins heldur oft rétt fyrir utan.“
Hóparnir sem koma í Hörpu
eru gjarnan að blanda saman
ráðstefnuhaldi og upplifunum
tengdum hvataferðum. „Mjög stór
þáttur í þessu er að við bjóðum
upp á mikið úrval afþreyingar og
menningu sem hægt er að velja úr
þannig að samhliða ráðstefnum
og hvataferðum geta hópar verið
að upplifa einhverskonar menn-
ingu, til dæmis sinfóníutónleika,“
segir Karitas.
Erlendis hefur átt sér stað
kröftugt kynningarstarf á starf-
semi Hörpu sem hefur skilað
sér í þessari auknu eftirspurn.
„Við erum stofnaðilar að Meet in
Reykjavík, ráðstefnuskrifstofu
Reykjavíkurborgar, sem hafa verið
í gífurlega miklu kynningarstarfi
fyrir okkur á erlendri grund. Við
höfum líka fengið tvenn alþjóðleg
verðlaun fyrir að vera besta ráð-
stefnuhúsið sem er mjög jákvætt.
Við erum líka að sækja allar þess-
ar helstu sölusýningar fyrir ráð-
stefnur og hvataferðir í Evrópu
og Ameríku. Þrátt fyrir ungan
aldur höfum við fengið marga
stóra viðskiptavini og það spyrst
mjög hratt út, ekki síst þegar við-
skiptavinurinn er ánægður.“ Að
sögn Karitasar eru erlendu við-
skiptavinirnar aðallega frá Evrópu
og Ameríku og alþjóðleg fyrir-
tæki nýta sér gjarnan að Ísland
er staðsett milli álfanna; Harpa
hefur notið góðs af því.
Nú styttist í opn un hótelsins
sem rís við hlið Hörpu og segir
Karitas það bjóða upp á heilmikla
möguleika. „Þar er alþjóðleg-
ur samstarfsaðili meðal fram-
kvæmdaaðila sem lítur auðvitað
á okkur sem ráðstefnuhúsið hjá
hótelinu og þar leynast líka heljar-
innar tækifæri.“
Karitas segist stolt af þeim
árangri sem Harpa hefur náð síð-
astliðin ár. „Í fyrra vorum við með
yfir 1000 viðburði og yfir 50.000
gestir heimsóttu Hörpu í síðustu
viku. Samt erum við bara 5 ára og
bara rétt að byrja!“
Gunnar Helgason
Sem er sérfræðingur
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 20162 RÁÐSTEFNUR&HÓPEFLI
Karitas Kjartansdóttir segist stolt af þeim árangri sem Harpa hefur náð síðastliðin ár. Flottir salir Harpa býður upp á fjölbreytt viðburða- og ráðstefnuhald.