Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 01.10.2016, Blaðsíða 6

Fréttatíminn - 01.10.2016, Blaðsíða 6
Katrín Olga Jó- hannesdóttir seldi hlutabréf í Icelandair fyrir tæpar tíu milljónir á fimmtu- daginn. Hún segir að auðvitað þekki hún rekstur Icelandair sem stjórnarmaður félagsins. 6 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 1. október 2016 Viðskipti Rútufyrirtæki Eng- eyinganna, Kynnisferðir ehf., var með sex milljarða tekjur og tóku eigendurnir einn milljarð út úr rekstrinum. Fjárfestingarfélag Engeying- anna seldi hlutabréf í fyrir- tækinu til lífeyrissjóðanna fyrir nærri 1400 milljónir. Öll börn Einars og Benedikts Sveinssona eiga hluti í fyrir- tækinu, nema Bjarni Bene- diktsson fjármálaráðherra. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Fjárfestingarfélag í eigu Einars og Benedikts Sveinssona og fjölskyldna þeirra seldi 35 prósenta hlut í rútu- fyrirtækinu Kynnisferðum ehf. fyrir 1365 milljónir króna í fyrra. Kaup- andi var framtakssjóður í rekstri Stefnis sem heitir SÍA II ehf. Eftir viðskiptin átti fjárfestingarfélag Eng- eyjarfjölskyldunnar, Alfa hf., 65 pró- senta hlut í fyrirtækinu. Rútufyrir- tækið greiddi rúman milljarð króna í arð til hluthafa sinna, þar af runnu tæpar 670 milljónir króna til Alfa hf. Þetta kemur fram í ársreikningum Kynnisferða ehf. og félagsins SF VII ehf. sem heldur utan um hlutabréfa- eignina í Kynnisferðum ehf. fyrir hönd SÍA II ehf. Alfa hf. hefur ekki skilað ársreikningi fyrir 2015. Eigendur SÍA II ehf. eru að stærstu leyti lífeyrissjóðir, meðal annars Líf- eyrissjóður starfsmanna ríkisins, A. og B. deild, með rúm 16 prósent, Gildi með tæp 16 prósent, Stapi með 10 prósent og Festa með rúm 7.5 prósent. Bent skal á það að það er fjármálaráðherra hverju sinni sem skipar fjóra af átta stjórnarmönnum Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Fréttatíminn spurði Hauk Haf- steinsson, framkvæmdastjóra LSR, um viðskipti sjóðsins í SÍA II ehf. Haukur segir að LSR hafi tekið ákvörðun um að fjárfesta í sjóðnum árið 2013 og að fjárfestingarnar séu bornar undir stjórn sjóðsins áður en teknar eru ákvarðanir um þær. „Fjárfestingar sjóðsins eru bornar undir og þurfa samþykki meirihluta stjórnar og fjárfestingarráðs. LSR á fulltrúa í fjárfestingarráðinu.“ Eigendur Alfa hf., og þar með 65 prósenta hlutarins í Kynnisferðum, eru félög í eigu Einars Sveinsson- ar, Benedikts Einarssonar, Hrólfs Einarssonar, Ástu Sigríðar Einars- dóttir, Benediktssonar Sveinsson- ar, Jóns Benediktssonar og Guðríð- ar Jónsdóttur, eiginkonu Benedikts Sveinssonar. Eini maðurinn í fjöl- skyldum bræðranna Einars og Bene- dikts Sveinssona sem ekki er skráð- ur fyrir hlutafé í Alfa hf. er Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra en faðir hans, móðir og bróðir eru öll á hluthafalistanum. Kynnisferðir ehf. er eitt stöndug- asta rútu- og ferðaþjónustufyrirtæki landsins. Tekjur samstæðu Kynnis- ferða námu rúmum sex milljörðum króna í fyrra og skilaði félagið meira en 500 milljóna króna hagnaði. Skuldir Kynnisferða jukust um rúma þrjá milljarða króna í fyrra sem að hluta til má rekja til þess að dóttur- félag fyrirtækisins keypti fasteign- ina að Klettagörðum 12 sem hýsir höfuðstöðv- ar þess. Samstæðan samanstendur af átta dótturfélögum sem stunda ferða- þjónu st u og starfa sam- tals rúm- lega 300 manns hjá fyrir- tækinu. Fyrir- tækið á auk þess rúm- lega 11 prósenta hlut í gufubaðinu Fontana á Laugarvatni. Rútufyrirtækið var áður í eigu olíufélagsins N1 en það fyrirtæki var yfirtekið af kröfuhöfum þess eftir hrunið árið 2008. Sömu eigendur, Einar og Benedikt Sveinssynir og börn þeirra, og eiga Kynnisferðir nú höfðu átt N1 fyrir hrunið en þeir héldu yfirráðum yfir rútufyrirtæk- inu eftir viðskipti við samstæðu N1 áður en hún var yfirtekin af kröf- uhöfum fyrirtækisins. Rekstur Kynnisferða hefur gengið vel síðast- liðin ár enda hefur ferðamönnum fjölgað mjög á Íslandi og var hagnað- ur félagsins til dæmis 424 milljónir árið 2014. Kynnisferðir er annað af rútufyr- irtækjunum sem rekur flugrútu frá flugstöð Leifs Eiríkssonar á Miðnes- heiði og til Reykjavíkur. Hitt er Gray Line. Samkvæmt samningi Kynnis- ferða við ríkisfyrirtækið Isavia, sem rekur flugstöðina fyrir hönd ríkisins, greiða Kynnisferðir fyrir aðstöðu til miðasölu í rútuna inni í flugstöðinni og eins fyrir aðstöðuna fyrir utan hana. Í fjölmiðlum hefur komið fram að almenningsfyrirtækið Strætó bs. vilji fá aðstöðu nær flugstöðinni til að keyra fólk frá henni. Þær samn- ingaviðræður Strætó við Isavia hafa staðið yfir með hléum frá árinu 2012 en hafa hingað hingað til ekki skilað árangri. Fjármálaráðherra hverju sinni skipar stjórn Isavia og hefur Bjarni Benediktsson ákveðið hverj- ir skuli sitja í stjórn Isavia frá árinu 2013. Þannig tengjast ríkisfyrirtæki og lífeyrissjóðir sem fjármálaráðherra hefur óbein völd yfir rekstri Kynn- isferða ehf. Í skriflegu svari frá Isavia um samninginn við Kynnisferðir segir að hann hafi verið gerður árið 2011 og renni út á næsta ári. Samningur- inn var því gerður áður en Bjarni varð fjármálaráðherra. Rúturnar skila 670 milljónum til Engeyinga Eini sem á ekki hlut Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra er sá eini í barnahópi Einars og Benedikts Sveinsson sem er ekki skráður fyrir hlutabréfum í Kynnisferðum. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, þar sem Bjarni skipar fjóra af stjórnarmönnum, er stærsti hluthafi sjóðsins sem keypti 35 prósent í rútufyrirtækinu í fyrra. Jón, bróðir Bjarna, situr í stjórn Kynnisferða. Eigendur Alfa Hf.: 9,50 % Hængur ehf. Eigandi: Bene- dikt Einarsson 9,50 % Hóvík ehf. Eigandi: Hrólfur Einarsson 9,50 % Hellisvík ehf. Eigandi: Ásta Sig- ríður Einarsdóttir 9,25 % Hagavík ehf. Eigandi: Jón Benediktsson 9,25 % Hafsilfur ehf Eigandi: Bene- dikt Sveinsson 9,25 % Guðríður Jóns- dóttir 9,25 % Benedikt Sveinsson 7 % Langhólmi ehf Eigandi: Jón Gunnsteinn Hjálmarsson) 5,5 % P 126 ehf. Eigandi: Charomino Holdings Limited á Kýpur/Einar Sveinsson 3,67 % Halldór Jóhannsson Hár arður til Engeyinganna Nærri 700 milljónir af milljarðs króna arði Kynnisferða rennur til fjárfestingarfélags Engeyinganna, Alfa hf. Meðal hluthafa eru Einar Sveinsson og sonur hans Benedikt, sem situr í stjórn Kynnisferða. Fiskeldi Staðfest hefur verið að regnbogasilungur hefur veiðst í ám við Húnaflóa, í ám á Vestfjörðum og allt suð- ur til Faxaflóa, í Vatnsdalsá, Haffjarðará, Hítará á Mýrum auk fleiri vatnasvæða og það í nokkru magni. Engu að síður hefur ekkert fiskeld- isfyrirtæki tilkynnt um slysasleppingar úr sjókvía- eldi sínu, sem fyrirtækjun- um er þó skylt að gera lögum samkvæmt. „Við viljum óháða rannsókn og að stjórnvöld stoppi allar leyfis- veitingar og fari í áhættugreiningu á fiskeldi í sjókvíum,“ segir Jón Helgi Björnsson, formaður Lands- sambands veiðifélaga, en óvanalega mikið magn regnbogasilunga hefur fundist víða í veiðiám á Vestur- og Norðvesturlandi. Hann hefur sent Gunnari Braga Sveinssyni sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra bréf, þar sem hann viðrar áhyggjur sínar. „Þetta er ekki náttúrulega fiskur og kemst ekki öðruvísi í árnar en í gegnum eldið,“ segir Jón Helgi sem segir það vægast sagt áhyggjuefni að enginn skuli gangast við því að svo mikið magn regnbogasilunga hafi sloppið. Hann segir að af þessum ástæð- um sé þess krafist að stjórnvöld láti fara fram óháða og opinbera rann- sókn á málinu og jafnframt að skoð- að verði hvort eftirlit með starfsemi sjókvíaeldisfyrirtækja sé fullnægj- andi og standist kröfur. „Ljóst er að um umhverfisslys er að ræða og útbreiðsla regn- bogasilungs um allt norðan- og vestanvert land er einungis fyrir- boði annars umhverfisslyss sem verði með vaxandi laxeldi í sjókví- um. Slíkt umhverfisslys er óaftur- kræft og því mikilvægt að tekið sé í taumana strax,“ segir formaðurinn. Jón Helgi segir þetta ekki síst áhyggjuefni í ljósi þess að það á að stórefla á laxeldi í sjókvíum á Vest- urlandi, en fiskeldi er fjölmennasta atvinnugreinin á Vestfjörðum. Spurður um afleiðingar af slysa- sleppingunni, segir Jón Helgi að til skamms tíma séu áhrifin ekki endi- lega mikil „en ef þetta verður við- varandi, þá er ljóst að eldið mun hafa mikil áhrif, ekki síst á náttúr- una.“ | vg Vilja stoppa alla leyfisveitingar Fiskeldi er víða á Vestfjörðum, en enginn kannast við að regnboga-silungur hafi sloppið. Viðskipti Katrín Olga Jó- hannesdóttir, stjórnarmað- ur í Icelandair, seldi bréf í flugfélaginu fyrir tæpar 10 milljónir króna. Hún segist hafa fylgt öllum reglum um viðskipti innherja. „Nei, ég bý ekki yfir neinum upp- lýsingum um uppgjörið. Ég fylgdi öllum reglum við söluna á hluta- bréfunum,“ segir Katrín Olga Jó- hannesdóttir, fjárfestir og stjórn- armaður í Icelandair, sem seldi hlutabréf í flugfélaginu fyrir 9.6 milljónir króna á fimmtudaginn. Fimmtudagurinn var síðasti dagurinn sem innherjar í Icelandair máttu selja hlutabréf í fyrirtækinu. Eftir þrjár vikur verður uppgjör Icelandair fyrir fyrstu síðustu þrjá mánuði ársins birt. Sérstakar regl- ur gilda fyrir innherja vegna sölu á hlutabréfum. Slík uppgjör geta haft mikil áhrif á hlutabréfaverð fyrirtækja. Eftir sölu Katrínar Olgu lækkaði hlutabréfaverð í Icelandair um tæp 5 prósent. Katrin Olga segist hafa selt hluta- bréfin til að fjármagna framkvæmd- ir við sumarhús fjölskyldu sinnar. „Ég þarf á fé að halda til að standa við skuldbindingar við menn.“ Að- spurð hvort hún búi ekki yfir nein- um upplýsingum um hver staða Icelandair sé sem aðrir búa ekki yfir segir hún. „Ég náttúrulega bý yfir upplýsingum sem stjórnarmaður. Auðvitað þekki ég félagið.“ Aðspurð hvort hún hefði ekki beðið með að selja ef hún teldi að bréfin myndu hækka eftir birtingu uppgjörsins segir Katrín Olga að hún hafi þurft á fénu að halda og að hún hafi fulla trú á Icelandair til framtíðar. | ifv Seldi á lokadegi Ríkisbankinn keypti mest í Sjóvá Viðskipti Ríkissjóður seldi í Sjóvá fyrir 2.8 milljarða. Við- skiptabankarnir þrír stærstu kaupendurnir. Landsbankinn var stærsti kaupandi hlutabréfa ríkisins í Sjóvá þegar 13,93 prósenta hlutur var seldur í félaginu. Söluverðið var 2,8 millj- arðar króna og keypti Landsbank- inn hlutabréf fyrir tæplega 567 millj- ónir króna. Næst stærstu kaupendurnir voru Íslandsbanki og Arion banki með tæplega 490 milljóna og tæplega 400 milljóna kaup. Íslenska ríkið á líka hlutabréf í þessum tveimur bönkum. Íslenska ríkið eignaðist hlutabréf í Sjóvá eftir efnahagshrunið 2008 þegar ríkið þurfti að yfirtaka Sjóvá til að vernda hagsmuni trygginga- taka fyrirtækisins eftir eigenda- tíð Milestone. Bótasjóður félagsins hafði verið næstum tæmdur og fjár- munirnir sem eftir voru dugðu ekki fyrir skuldbindingum tryggingafé- lagsins við viðskiptavini sína. | ifv
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.