Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 01.10.2016, Blaðsíða 38

Fréttatíminn - 01.10.2016, Blaðsíða 38
CURCUMIN Gullkryddið Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður, Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla. Steinunn Kristjánsdóttir er sjúkraliði að mennt og starfar í Blue Lagoon versluninni á Laugavegi. Hún hefur átt við mikla verki að stríða um allann líkama í með liðagigt. „Ég er búin að taka inn minn skammt af verkjalyfjum og var alveg að gefast upp á þeim. Nuddkonan mín sagði mér þá frá Curcumin sem hefur í sannleika sagt gefið mér nýtt líf. Ég var búin að taka inn Curcumin í einn og hálfan mánuð þegar ég missti út fjóra daga og það var þá sem ég uppgötvaði að Curcumin er það sem hjálpar mér að losna við alla verki.” LIÐIR – BÓLGUR – GIGT Bætt heilsa og betri líðan með Natural Health Labs 100% náttúruleg bætiefni balsam.is „Benni segist aldrei hafa orðið sjóveikur en ég á eftir að sjá hann þola þetta. Þegar ég fór á sjóinn lá ég í koju í tvo daga og langaði að deyja,“ segir Fannar Sveinsson dagskrárgerðarmaður. Fannar hefur getið sér gott orð sem umsjónarmaður Hraðfrétta ásamt félaga sínum Benedikt Vals­ syni síðustu ár en í vetur venda þeir kvæði sínu í kross. Þeir hafa ráðið sig sem háseta á frystitogar­ ann Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 sem Þorbjörn í Grindavík gerir út. „Við verðum ekki lengur Fannar og Benni í Hraðfréttum. Við verð­ um bara við sjálfir og kynnumst okkur sjálfum í þessu nýja ljósi,“ segir Fannar en þeir fara á sjó 25. október næstkomandi og róa í mánuð. Afraksturinn kemur landsmönnum fyrir sjónir á RÚV á nýju ári. Fannar fór einn túr á sjó þegar hann var tvítugur og segir að það fari iðulega í taugarnar á Benna þegar hann rifjar upp þá tíma. Benni hafi í fyrstu ekki tekið vel í hugmyndir um að þeir færu á sjó en svo hafi hann látið til leiðast. Þeim gekk reyndar bölvanlega að verða sér úti um pláss á bát og það var ekki fyrr en framleiðslufyrir­ tækið Skot gekk í málið að skriður komst á. Hvernig eiga sjómennirnir eftir að taka ykkur, vel til höfðum og greiddum drengjum úr borginni? „Þetta verður skrautlegt. Við erum búnir að hitta áhöfnina og þeir voru svona flestir til í þetta. Skipstjórinn var nokkuð jákvæður. Ég held að þeir taki okkur ágæt­ lega. Vonandi.“ | hdm Hraðfréttadrengir fara á sjóinn Fannar og Benni ráða sig sem háseta í Grindavík og gera sjónvarpsþætti um ævintýrið. Klárir í slaginn Benni og Fannar eru á leið á sjó og munu gera út frá Grindavík. …fólk 2 | amk… LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2016 Þetta er skemmti­ legasti vinnustaður sem ég hef verið á. Það er aldrei dauður punktur og maður er alltaf að læra eitt­ hvað nýtt. Guðmundur Björn Þorbjörnsson hefur komið eins og ferskur andvari inn í fréttirn­ar á RÚV að undan­ förnu. Hann hefur skorið sig úr í fremur formföstu umhverfi með frjálslegu fasi og óhefðbundnum klæðaburði. Guðmundur Björn, sem er þrítugur og alinn upp á Mýrum í Borgarfirði, er síðhærður og skeggjaður og klæðist litríkum fötum, köflóttum skyrtum, vestum og fleiru í þeim dúr. Hann lítur frekar út fyrir að vera að fara að leika í Geysisauglýsingu en að vera á leið á blaðamannafund í sjávar­ útvegsráðuneytinu. Og það er frá­ bær tilbreyting. „Ég er guðfræðingur, er með embættispróf í guðfræði og meistaragráðu í heimspeki frá Kaupmannahafnarháskóla. Að því loknu fór ég í doktorsnám í heim­ speki í Brussel árið 2013,“ segir Guðmundur Björn þegar hann er beðinn að lýsa bakgrunni sínum. „Svo finnst mér ég líka vera mjög góður í fótbolta.“ „Ég kom aftur heim til Íslands í fyrrasumar vegna þess að doktors­ sjóðurinn var orðinn tómur. Ég þurfti því einhvern veginn að fá mér vinnu til að brúa bilið í þessu doktorsnámi og bauðst vinna á fréttastofu RÚV. Ég sló til og taldi að þetta gæti verið góð til­ breyting og ég þurfti að halda á smá fjarlægð frá ritgerðinni. Svo fór ég í Krakkafréttir um haustið en var samt alltaf líka að vinna á fréttastofunni og hef verið í fréttunum síðan í apríl.“ Þú ert óneitanlega frjálslegri í útliti en flestir fréttamennirnar þarna. Hefurðu fengið athugasemdir vegna útlitsins? „Já, það hefur komið fyrir. Ég hugsaði með mér að ég ætlaði aldrei að vera í sjónvarpi en þó það hafi gerst er alger óþarfi að skipta um karakter. Sjáðu bara Gísla Einarsson. Ég held að það sé ekkert stórmál þó einhverjir súpi hveljur þegar ég kem í sjón varpið, fólk verður bara að þola það. Von­ andi segi ég í staðinn eitthvað af viti. Ég og fréttastjórinn höfum rætt þetta og á meðan hún gerir engar athugasemdir er ég ekkert að hugsa um þetta. En elsku­ leg móðir mín er náttúrlega ekki ánægð með þetta.“ Hvað segja stelpurnar, er ekki allt vitlaust á Facebook? „Nei, nei, ég slepp að mestu leyti Mesta áreitið er frá gömlum körlum Guðmundur Björn hefur vakið athygli fyrir framgöngu sína sem fréttamaður á RÚV. Ekki síst fyrir útlit og klæðaburð sem hann segir að fréttastjórinn sé sáttur við en móðir hans ekki. Guðmundur lærði guðfræði og heimspeki áður en hann byrjaði í fréttunum og þykist vera góður í fótbolta. Úr guðfræði í Krakkafréttir Guðmundur Björn Þorbjörnsson er sveitastrákur úr Borgar- firðinum sem lauk embættisprófi í guðfræði og er í doktorsnámi í heimspeki. Hann hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína og útlit í fréttunum á RÚV að undanförnu. Mynd | Hari við það. Mesta áreitið er frá gömlum körlum.“ Ertu búinn að finna fjölina þína í fréttunum? Ég veit það ekki. Ég hef mjög gam­ an af þessum miðlum, útvarpi og sjónvarpi, og er alltaf að verða áhugasamari um þetta. En ég hef aldrei verið neinn fréttahaukur og er ekki vakinn og sofinn yfir heimsfréttunum. En ég skil núna hvers vegna fólk fær þessa fjöl­ miðlabakteríu. Ég er þó alls ekki búinn að finna neina fjöl og ég vona að ég geri það aldrei. Ég vona að ég haldi áfram að breyta til og gera eitthvað nýtt, haldi áfram að þroskast og staðni ekki í neinu. Hvernig datt þér í hug að fara í  guðfræði? „Ég var forvitinn um eilífðarmálin eftir menntaskóla og á einhverj­ um tímapunkti ætlaði ég að verða prestur en undir það síðasta í náminu missti ég áhuga á því. Þá fór ég að einbeita mér að fræði­ mennsku og heimspekin varð ofan á. Núna er þessi doktorsritgerð eiginlega orðin að persónulegu keppikefli, en ég tel litlar líkur á að hún muni greiða götu mína í mis­ kunnarlausum heimi atvinnulífs­ ins. Enda skiptir það engu máli.“ Hvað er framundan, verðurðu í fréttunum í vetur? „Nei, nú ætla ég að fara að draga úr þessu svo ég geti farið aftur að skrifa. En ég vona að ég eigi aft­ urkvæmt vegna þess að þetta er skemmtilegasti vinnustaður sem ég hef verið á. Það er aldrei dauð­ ur punktur og maður er alltaf að læra eitthvað nýtt. Sem er í raun þveröfugt við doktorsdæmið þar sem maður er bara einn að harka og hefur engan til að tala við. Sem hefur líka sínar góðu hliðar – fólk talar alltof mikið. “ | hdm Kvíðir unglingsárum drengja sinna Britney Spears hefur heillað Breta upp úr skónum að undanförnu en hún kom fram á tónleikum á Roundhouse í London á þriðjudaginn. Britney sagði í viðtali við The Sun að sér þættu börnin sín vera að stækka alltof hratt og hún er ekki spennt fyrir unglingsárum drengjanna sinna, 10 og 11 ára. „Þetta er svolítið skrýtið og ég er stressuð því ég veit það er ógnvænlegt að vera táningur.“ Segir Noel hafa komið mjög illa fram við sig Hljómsveitin Oasis, með þá Liam og Noel Gallag- her í fararbroddi, naut svakalegra vinsælda á níunda áratugnum en þeir bræður talast varla við í dag. Liam var í viðtali hjá Metro nýver- ið, vegna heimildarmyndarinnar Supersonic sem er um farsæld Oasis, og þar fór hann ekki fögrum orðum um bróður sinn. Aðspurður um hvort hann sakni gamla tím- ans sagði Liam: „Sum atriði voru tilfinninga- þrungin og þarna eru myndbrot þar sem við bræðurnir vorum að fíflast sem ég hló að.“ Liam sagði líka að hann saknaði þess að vera með bróð- ur sínum og hann væri til í að sættast við hann, mömmu þeirra vegna. „Ég elska hann en á sama tíma kom hann mjög illa fram við mig.“ Robbie fór úr að neðan Hinn 42 ára gamli Robbie Williams kom fram á tónleikum í vikunni, á Roundhouse í London, og sló að sjálfsögðu í gegn eins og hans er von og vísa. Hann var í óhefðbundnum fötum en hann klæddist buxum og skyrtu með fiðrildamynstri. Eftir að leið aðeins á lagið hjá honum tók hann sig til og girti buxurnar niður um sig og sýndi nær- buxur sínar sem voru þær sömu og hann brúkaði í tónlistarmyndbandinu Rock DJ. Rétt fyrir tónleikana tilkynnti Robbie á Face- book-síðu sinni að hann væri að fara að gefa út nýja plötu. Hann skrifaði: „Nýja platan mín, Heavy Entertainment Show, mun koma út 4. nóvember. Þið getið pantað ein- tak núna.“ Þetta er fyrsta plata Robbie í þrjú ár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.