Fréttatíminn - 01.10.2016, Blaðsíða 32
32 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 1. október 2016
Menntavísindasvið Háskóla Íslands boðar til opins fundar
vegna alvarlegrar stöðu í menntakerfinu.
Ef fram fer sem horfir mun kennurum fækka í skólum landsins á næstu árum og áratugum.
Nýnemum í kennaranámi við Háskóla Íslands hefur fækkað um ríflega 60% undanfarin ár.
Þá hafa nýútskrifaðir kennarar ekki skilað sér sem skyldi í störf í skólum landsins og því blasir
við mikill skortur á kennurum á næstu áratugum.
Í leikskólum landsins er sú alvarlega staða uppi að einungis um þriðjungur starfsfólks hefur
leikskólakennaramenntun. Nú vantar um 1300 leikskólakennara og mun sú tala hækka ört
ef nemendum í leikskólakennaranámi fjölgar ekki.
Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 4. október nk.
kl. 12:10–13:10 í Hátíðasal Háskóla Íslands.
Dagskrá
12:10–12:20 – Ávarp
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands
12:20–12:30 – Fækkun nýnema í kennaranámi
Jóhanna Einarsdóttir, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands
12:30–12:40 – Lýðfræði grunnskólakennara: Fjöldi kennara í náinni framtíð
Stefán Hrafn Jónsson, prófessor í félagsfræði við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands
12:40–13:10 – Hraðaspurningar til fulltrúa stjórnmálaflokka sem bjóða sig fram til Alþingis
Fundarstjóri: Helgi Seljan, fjölmiðlamaður
og einn umsjónarmanna Kastljóss
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
PI
PA
R\
TB
W
A
-
S
ÍA
-
1
64
41
5
Viljum við samfélag án kennara?
„Ég er búin að vera stressuð yfir
þessum krönum, það er alltaf svo
ógeðslega mikið af þeim og ég
hugsaði með mér, það hlýtur ein-
hver að fara gefa sig og svo horfði
ég á það gerast. Það var allt öðru
vísi en ég bjóst við, hann féll miklu
hægar en ég ímyndaði mér. En ég
var mjög fljót að fara aftur í að fara
vorkenna mér í hversdagslegum
hugmyndum, ég var mjög snögg
að jafna mig á þessari upplifun.
Ég var strax komin í það að vor-
kenna mér hvað er erfitt að sækja
um listamannalaun,“ segir Lóa
Hjálmtýsdóttir sem rétt slapp við
að lenda undir krananum.
Sveinbjörn Pálsson horfir á lífið
öðruvísi eftir hrunið. Hann segist
ekki vera byrjaður að meðtaka af-
leiðingar atburðarins að fullu: „Ég
var í næstu götu, ég las um hrunið
á samfélagsmiðlinum Twitter mín-
útu eftir að þetta gerðist. Þá hljóp
ég út af kaffihúsinu sem ég var á,
hársbreidd frá því að lenda í slysi
þar sem kraninn féll á bygginguna
þar sem skrifstofan mín er.“
Það er ótrúlega gaman í
vinnunni minni og ég er mjög
hrifin af mínu lífi. Ef ég væri í ein-
hverri ógeðslega leiðinlegri vinnu
sem ég hataði og allir sem ég um-
gengst væri slæmt fólk þá væri ég
kannski að pæla í einhverju öðru
en ég var bara ennþá þakklátari
fyrir mína eigin tilveru,“ segir Lóa
um það hvort hún ætli að haga lífi
sínu öðruvísi eftir fall kranans.
Sveinbjörn ætlar að tileinka líf
sitt fegurðinni eftir atvikið: „En ég
gerði það nú fyrir líka, þannig ég
ætla tileinka lífi mínu fegurðinni
aðeins meira. Það fellst í smæð
dropans og stærð hattarins.“ | hdó
Fimmtudaginn 29. septem-
ber féll byggingarkrani á
plan fyrir framan vinsælasta
pylsubar landsins, Bæjarins
Bestu. Fréttatíminn náði tali
af tveimur einstaklingum
sem vinna í byggingunni
sem kraninn féll á.
Lífið eftir fall kranans Sveinbjörn nýtur lífsins eftir fall kranans.
Mynd | Hari
Íslendingar
feimnir við
upplifunarbíó
Helga Dögg Ólafsdóttir
helgadogg@frettatiminn.is
„Í staðinn fyrir að fara bara inn í
bíósal og horfa á bíómynd þá ertu
að upplifa heim kvikmyndarinnar.
Þú getur ímyndað þér ef þú værir
að fara á Titanic í bíó en í staðinn
ferðu um borð í skip. Það myndi
vera fyrsta farrými og þriðja far-
rými og karakterar úr myndinni
að ganga um. Þú færð fyrirmæli
um klæðnað, þú sért á fyrsta far-
rými eða þriðja, og þá þarftu að
klæða þig eftir því. Þá upplifir
þú myndina sem leikhús,“ segir
Nanna um umgjörð upplifunar-
bíósins.
Nanna Gunnarsdóttir vann
með fyrirtækinu Secret Cinema í
London sem leggur mikið upp úr
bíóupplifunni: „Að fara í bíó var
svo brjálæðislega mikil upplifun
fyrst þegar kvikmyndir byrjuðu.
Fólk klæddi sig upp og það gerði
kvöld úr því, fólk var kannski leng-
ur og spjallaði um myndina. Var
að sýna sig og sjá aðra. Nú er þetta
orðið meira hversdaglegt, fólk fer
bara í jogginggallanum og kaupir
popp og kók og keyrir beint heim
eftir sýninguna, það er ekki jafn
mikill viðburður.“
Spurð um hvort Íslendingar séu
tilbúnir að gera meira úr ferð sinni
í bíó segir Nanna að það þurfi að
byrja hægar og minna hér á landi:
„Hér verður fólk svolítið hrætt við
að heyra orðin upplifunarleikhús
eða -bíó. Þá halda allir að maður
þurfi að fara gera eitthvað, eða
einhver að fara benda á sig. En það
eru allir þátttakendur, þú þarft
ekki að gera neitt frekar en þú vilt,
þú mátt alveg sitja út í horni og
horfa bara á ef þú vilt. En ef þú vilt
tala við leikarana eða fara skoða
eitthvað inni í næsta herbergi þá
er það líka í boði.“
Nanna er að leggja lokahönd
á skipulagningu Sundbíó kvik-
myndahátíðarinnar Riff og segir
að það sé margt gott í vændum:
„Það verða einhverjir karakterar á
vappi og það mun gerast eitthvað
meðan á myndinni stendur. Þetta
verður smá umgjörð. Þetta verð-
ur bara vonandi stærra og stærra
með árunum þegar það er kominn
stærri markaður fyrir upplifunar-
bíó hér á landi.“
Nanna Gunnarsdóttir. Mynd | Rut
Hin fagra og forna Albanía.
Albanía hefur nú loksins opnast fyrir erlendum
ferðamönnum. Enn hefur alþjóðavæðingin ekki
náð að festa þar rætur og er lítt sjáanleg. Þar má
sjá ævaforna menningu, söguna á hverju horni,
gríðarfallega náttúru og fagrar strendur og
kynnast einstakri gestrisni heimamanna þar sem
gömul gildi eru í hávegum höfð.
Verð 344.900 per mann i 2ja manna herbergi
Innifalið. Flug hótel í London, hótel m/hálfu fæði
í Albaníu, allar skoðunarferðir, ísl. fararstjóri, skattar
og aðgangur þar sem við á.
Upplýsingar í síma 588 8900
Albanía
4. - 15. október