Fréttatíminn - 01.10.2016, Side 14
14 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 1. október 2016
Kosningabarátta núna er eins og leikrit þar sem leik-stjórinn er veikur, hand-ritið er týnt og aðalleikarn-
ir stungnir af með sjóðinn sem átti
að borga fyrir sýninguna. Aukaleik-
aranir reyna að stinga þá og hvern
annan í bakið. Áhorfendur klappa
og einhverjir úr salnum lauma sér
upp á svið og taka sýninguna yfir.
Í gegnum þokuna í salnum grillir
í þrjá Framsóknarflokka að slást um
athyglina, tvo til þrjá Vinstri græna
flokka, þrjá Sjálfstæðisflokka, tvær
Samfylkingar og svo Pírata sem með
jöfnu millibili veina upp að þeim
finnist hræðilegt að vera þingmenn
og voðaleg tilhugsun að verða ráð-
herrar. Samt er tilhugsunin ekki
hræðilegri en svo að brigslyrðin
ganga á víxl, ef fólk lendir ekki nógu
ofarlega á lista en inn á milli fellur
það í faðma. Kapteinninn og helsta
vonarstjarnan flúði þó af hólmi, þrot-
inn að kröftum.
Næstum því allir frambjóðendur
eru í bláum jakkafötum með hvítt-
aðar tennur, þó má greina blæbrigði
í klæðaburði og jafnvel peysu eða
þverslaufu ef maður hefur heppnina
með sér. Ummæli um holdafar ráð-
herra eða skakkan bindishnút vekja
enda meiri athygli en hálfvelgjan í
umræðunum.
Það læðist að manni sú tilhugsun
að forystufólk gömlu stjórnmála-
flokkanna búi kannski ekki yfir mik-
illi stjórnvisku þótt að það reyni að
selja okkur hugmyndina með tals-
verðri fyrirhöfn en kulnuðum eld-
móði. Annars hefðu ekki allar þessar
eftirlíkingar orðið til.
Það er líka ekki eins flokkarnir séu
„ein kærleikskeðja á bandi friðarins“,
þótt mestu kverúlantarnir hafi farið
burt með hurðaskellum og stofnað
sína eigin flokka. Inni í gömlu flokk-
unum reyna eftirlegukindurnar að
steypa hver annarri af stóli, með
„hnífasettin“ á lofti.
Ég játa mig sigraða. Mér finnst
til dæmis meira lokkandi eða álíka
lokkandi að draga úr mér tönn með
naglbít en að fylgjast með þvarginu í
sjónvarpssal. Vinnunnar vegna læt
ég mig hafa það en svefninn sigrar
oft og ég hengi haus yfir umræðun-
um. Þegar ég svo hrekk upp með
andfælum eru jafnvel þátttakendur
sofnaðir
Kannski er ég bara útbrunnin.
Velmegunarvíma hefur runnið
á þátttakendur sem spila nú upp á
matadorpeninga fyrir sjúka gamla
og smáa. Jafnvel hörðustu nirflar
og eiginhagsmunaseggir staðhæfa
nú að alla þeirra eigingirni í for-
tíðinni megi rekja til ráðdeildar og
sparsemi svo lítilmagnar geti notið
góðs af. Teningarnir ganga hratt á
milli þátttakenda enda er kosninga-
baráttan á hraðspólun svo Alþingi
geti starfað áfram og hægt sé að
afgreiða sem mest af málum ríkis-
stjórnarinnar sem þjóðin vildi losna
við fyrir nokkrum mánuðum. Mestu
hræsnararnir spila stórt, kaupa
götur fyrir öryrkja og hótel og hús
fyrir aldraða, ræna síðan bankann
og uppskera mikinn fögnuð.
En þetta er líka allt í plati.
Þjóðin flykktist í apríl niður á
Austurvöll með steyttan hnefann
eftir Panama-hneykslið og heimtaði
kosningar strax. Hún fékk þær með
nokkrum eftirgangsmunum.
Sama þjóð segist grátklökk í kosn-
ingum vilja efla heilbrigðiskerfið og
uppræta skattsvik. Kannanir benda
samt til þess að þegar í kjörklefann
er komið ætli hún samt að kjósa þá
sem vilja fara með hamri og sleggju
á Landspítalann, græða og grilla
í rústunum og geyma peningana
áfram á Tortóla.
Ekki öll þjóðin en svona um það
bil hálf þjóðin.
Hinn helmingurinn getur ekki
talað skýrt og staðið saman um ein-
falda hluti. Hann vill nýja stjórnar-
skrá en samt ekki ... hann vill virða
þjóðaratkvæðagreiðslur en ... þó
ekki.
Hann er á móti kvótakerfinu, en
gæta verður að... Hann telur ýmislegt
athugavert við búvörusamninginn
en hafa verði í huga...
Hann vill byltingu og breytingar
á löngu úreltri sérhagsmunagæslu
á kostnað almennings en samt ekki
alveg.
Hann ætlar að taka lítil og stutt
skref í áttina að nýju og betra sam-
félagi. Og það er hætt við því að þeir
sem hafa talið sig eiga samleið með
þeim flýti sér ekki heldur á kjörstað
til að kjósa þá.
Þeir eru svosem sammála en...
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
EN …
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir.
Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Dreifing: Póstdreifing. Framkvæmdastjóri
og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti.
Katla – elsti félagi Framsóknarflokksins
Ætti ég að
kjósa um
helgina?