Fréttatíminn - 01.10.2016, Side 16
16 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 1. október 2016
NÍÐINGURINN VAR BESTI VINUR
PABBA, HJÁLPARHELLA MÖMMU
OG LEIKFÉLAGI LITLU BARNANNA
Þrjár konur og dætur þeirra segja hvernig barnaníðingur gat leikið
sér að nokkrum barnafjölskyldum í Reykjavík um langt skeið. Hann
fékk fimmtán mánaða fangelsisdóm fyrir brot af því sem hann
var grunaður um. Þessi grein fjallar um tilfinningar mæðranna en
fjölskyldurnar glíma enn við sársaukann, 16 árum síðar.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Ég var mætt í endurhæf-ingu að Reykjalundi eftir hjartaáfall og hitti hjúkr-unarfræðing sem sýndi mér herbergið mitt og
deildina þar sem æfingarnar fara
fram. Þegar fer að nálgast hádegi
skrepp ég á kaffistofuna þar sem
fólkið hittist og spjallar saman milli
æfinga. Það fyrsta sem ég rek aug-
un í er maðurinn sem misnotaði
litlu dóttur mína. Það var eins og
ég hefði verið kýld í magann. Hjart-
að fór á fullt og ég varð náföl. Hann
horfði beint á mig og leit síðan und-
an en ég bakkaði út úr herberginu.“
Þetta gerðist á Reykjalundi fyrir
nokkrum vikum. Konan í þessari
frásögn frestaði endurhæfingunni
um tvær vikur svo maðurinn sem
misnotaði dóttur hennar gæti lok-
ið við sína.
„Ég hélt að þetta áfall væri að
baki og ég hefði verið búin að vinna
úr því,“ segir Sædís Hrönn Samú-
elsdóttir, „en ég togaði í hjúkrunar-
fræðinginn sem hafði fylgt mér um
deildina. Bað hana að koma með
mér afsíðis. Spurði hvort þetta væri
þessi tiltekni maður. Hún svaraði
því játandi og spurði hvað væri
að. Ég sagði henni eins og var, að
þessi maður hefði fengið fangelsis-
dóm fyrir að misnota dóttur mína.
Hún bað mig um að bíða á skrifstof-
unni og fór fram dágóða stund. Hún
kom síðan aftur og skýrði mér frá
því að hann ætti eftir tvær vikur
af meðferðinni, hvort ég vildi ekki
bara bíða. Ég var algerlega í rusli
yfir þessu og svaraði bara játandi.
Þótt mér finnist að hann ætti frekar
að víkja, þá er engin heimild fyrir
því í lögum. Hann er búinn að af-
Fleiður er á innri skapa-
barmi. Hægra megin
við mót slímhúðar og
húðar í bakvegg leg-
gangaops gengur 1 til 1-1
½ sentimetri blæðandi
skurður og nær hann
niður í vöðvalög. Skurð-
ur þessi var saumaður
með þremur sporum.
Úr dómi Sakadómi 15 apríl 1984.
plána sína refsingu. Á yfirborðinu
er málinu lokið þótt ég hafi orðið
fyrir áfalli. Hann var örugglega
guðslifandi feginn þegar hann sá
mig fara.“
Bjargvættur og verndarengill
„Hann var skipsfélagi mannsins
míns og varð fljótlega hans besti
vinur eftir að leiðir þeirra lágu
saman. Hann var rúmlega fertug-
ur, fráskilinn, í hærra meðallagi,
ljóshærður með yfirvaraskegg og
það var byrjað að móta fyrir skalla.
Hann var með húðflúr, alltaf í
gallabuxum og bol og varð fljót-
lega okkar helsti bjargvættur og
verndarengill. Maðurinn minn sá
hann í rósrauðum bjarma, það var
eins og hann væri búinn að eignast
góðan, traustan eldri bróður sem
var alltaf til staðar. Hann treysti
„Um tveggja ára skeið var hann okkar besti vinur og
hjálparhella. Hann kom sér svo sannarlega vel fyrir. Í
eitt skipti var ég að koma heim af vakt um kvöldmatar-
leytið. Þá var hann búinn að sækja börnin, þrífa húsið
og elda.“
Þessi börn bjuggu á heimilunum þar sem
maðurinn vandi komur sínar á árunum
1998 til 2000. Hann var dæmdur í 15
mánaða fangelsi fyrir að áreita og mis-
nota þau í héraðsdómi.