Fréttatíminn - 01.10.2016, Side 18
götur síðan. „Þegar ég var að fara
spurði hún hvort hún mætti líka
fara í bað, eins og Dinni, en ég sagði
þvert nei.“
Bréf frá Dinna frænda
„Þegar ég kom úr samkvæminu
var dóttir mín hálfsofandi með
teiknimynd í myndbandstækinu
en hann var að lesa og fór fljótlega
heim til sín,“ segir Halldóra. „Eftir
þetta kvöld fór hún að pissa undir,
hætti að vilja sofa ein og kvartaði
ítrekað undan kláða við kynfærin.
Nokkrum dögum seinna fer ég með
hana í bað og er að leika við hana
og tek litla gula plastönd með rauð-
an gogg og ýti henni undir vatns-
borðið og læt hana skoppa upp
aftur. Allt í einu segir hún upp úr
þurru: „Mamma, þetta er alveg eins
og tippið á Dinna.“
Mér dauðbrá og ég kólnaði öll að
innan. Þarna var eins og það hafi
runnið upp fyrir mér ljós. Dóttir
mín sagði ennfremur að Dinni hefði
reynt að setja tippið inn í pjölluna
hennar en það hefði ekki komist
fyrir.“
Ég talaði við lögreglu strax þetta
sama kvöld og í kjölfarið gerði ég
barnaverndarnefnd viðvart. Með-
an málið var til rannsóknar hjá lög-
reglu barst bréf í póstkassann stílað
á dóttur mína. Ég hélt að þetta væri
frá foreldrafélaginu og opnaði til að
lesa. Þar sagðist bréfritarinn meðal
annars hlakka til að nauðga dóttur
minni í rassinn og meiða hana. Ég
afhenti lögreglu bréfið en rannsókn
hjá rithandarsérfræðingi leiddi í
ljós að það voru yfirgnæfandi lík-
ur á því að hann hefði skrifað það.
Ég var sjálf misnotuð sem barn
og get ekki fyrirgefið sjálfri mér að
hafa ekki séð í gegnum manninn,“
segir Halldóra Eyfjörð. „En ég sá
það ekki og hann komst upp með
að misnota dóttur mína í tvígang,
annars vegar á aðfangadag, þegar
hann kom í heimsókn með pakka til
hennar og var með henni einn inni
í stofu meðan ég var að laga mat í
eldhúsinu. Hinsvegar þegar hann
tók að sér að gæta hennar meðan
ég fór út.“
Inni á gafli hjá barnafjölskyldum
Alls var maðurinn grunaður um
að hafa misnotað fjórar stúlkur á
þessum tíma, þrjár fimm og sex
ára gamlar og eina átta ára, en
hann gerði sér far um að vingast
við barnafjölskyldur. Hann fékk að
lokum fimmtán mánaða dóm. Fleiri
mál voru til rannsóknar en það
tókst ekki að sanna sök í þeim öll-
um. Meðal annars var hann kærð-
ur um svipað leyti fyrir að hafa
misnotað son fyrrverandi sambýl-
iskonu sinnar.
18 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 1. október 2016
Ákærði fór í bað með
stúlkunni og þvoði
og strauk henni um
kynfærin, auk þess sem
hann reyndi að setja
getnaðarlim sinn inn í
leggöng stúlkunnar.
Úr ákæru í héraðsdómi 1999
fljótlega varð ég algerlega dofin.
Það kom í hlut mannsins míns að
hringja í Dinna og segja honum frá
því að hann væri ekki velkomin í
afmæli dóttur minnar, daginn eftir.
Hann gerði það. Mér skildist að hon-
um hefði verið brugðið við símtalið
en verið fátalaður. Hann sagði þó að
það væri ekkert hæft í því að hann
hefði verið að misnota börn. Hann
hefði þó óvart rofið meyjarhaftið á
tveggja ára dóttur vinkonu sinnar,
þegar hann var skipta um bleyju.
Það voru síðustu samskipti okkar
við þennan mann eftir tveggja ára
vináttu,“ segir Sædís Hrönn.
Fór í sturtu og þvoði þvott
Það var Halldóra Eyfjörð sem hafði
samband við barnaverndarnefnd
og hratt málinu af stað. Hún var bú-
sett í Yrsufelli, einstæð móðir, fimm
ára stúlku. „Vinur minn kynnt-
ist konu frá Húsavík og fór að búa
með henni,“ segir Halldóra. „Hann
kynnti mig fyrir henni og við höfð-
um mikið samband á tímabili. Þau
voru að mála og gera upp íbúðina
og vinur hennar, sem var kallaður
Dinni, var mikið að hjálpa þeim.“
Halldóra segir að þegar hún fór
að mála íbúðina sína hafi hann
líka boðist til að hjálpa sér og sýnt
Halldóra Eyfjörð með dóttur
sinni Ástrósu. Hún segist sjálf
hafa verið misnotuð sem barn
og geti aldrei fyrirgefið sjálfri
sér að hafa ekki séð þetta fyrir.
Mynd | Hari
Halldóra Eyfjörð
með dóttur sinni,
um það leyti sem
níðingurinn lét til
skarar skríða.
dóttur sinni mikinn áhuga. „Hann
bjó einn í herbergi og var í útistöð-
um við barnsmóður sína sem leyfði
honum ekki að hitta soninn. Ég vor-
kenndi honum og fannst hann vera
óttalegt grey. Hann hafði hvorki
aðgang að sturtu né þvottavél. Ég
hafði ekki brjóst til þess að neita,
ef hann bað um að fá að fara í bað.
Eitt sunnudagskvöld í febrúar kom
hann og bað um að fá að fara í bað.
Ég sagði honum að ég hefði ver-
ið boðin í samkvæmi en ekki get-
að farið þar sem eldri dóttir mín,
fjórtán ára, hefði ekki nennt að
passa en hún bjó hjá föður sínum á
þessum tíma. Hann sagði lítið mál
að gæta stelpunnar, ég skyldi bara
drífa mig.“
Halldóra fór í samkvæmið og var
í burtu í þrjár klukkustundir. Sú
ákvörðun hefur plagað hana allar
„Það sem foreldrarnir
ungu vissu ekki, var að
þrettán árum áður en
leiðir þeirra og nýja vinar-
ins lágu saman var hann
dæmdur til fangelsisvistar
fyrir að hafa misnotað
gróflega þroskaskerta
litla telpu sem hafði verið
tíður gestur hjá móður
hans.“
Einfaldur og
stílhreinn
Vönduð íslensk framleiðsla síðan 1959.
Stáliðjan er gamalgróið íslenskt fyrirtæki
sem framleiðir vandaða vöru fyrir heimilið
og vinnustaðinn.
Stáliðjan ehf - Smiðjuvegi 5, 200 Kópavogi - Sími 564 5885 - www.stalidjan.is
Verð 27.900 kr.
Fjölbreytt litaúrval.