Fréttatíminn - 01.10.2016, Side 47
Cheers
Frábærir þættir með Ted Danson
sem einn flottasta karakter allra
tíma. Tengist líka æsku manns
sem er alltaf skemmtilegt. Mikil
nostalgía. Besta „cast“ sjónvarps-
þátta frá upphafi.
Simpsons
Sama og með Cheers, mikil nostal-
gía og þó ég horfi ekki lengur þá
kann ég gömlu þættina utan að.
Curb Your Entusiasm
Í stað Seinfeld þar sem ég byrjaði
á að komast inn í Curb áður en ég
datt algjörlega inn í Seinfeld.
Breaking Bad
Fullkomin þáttaröð með besta
leikara þáttaraðar allra tíma, Bryan
Cranston.
South Park
Þeir geta sett í samhengi það sem
er að gerast í heiminum á fyndinn
og fræðandi hátt. Svo „spot on“
með ádeiluna. Ég elska sérstak-
lega síðustu seríu sem snérist nær
eingöngu um það sem er að gerast
hjá hipsterum heimsins (þeir eru
að breytast í yupsters sem er sam-
blanda af yuppie og hipster, þ.e.
nú er komið dollaramerki í augu
hipstera heimsins). Líka þetta með
að við erum orðin svo pólítískt
rétthugsandi að það fer að verða
til ama meira en að bæta.
Last Week Tonight
with John Oliver
Einfaldlega snillingur. Það sama
gildir um hann og South Park, að
geta sett hlutina svo vel í sam-
hengi og útskýrt að maður fyllist
aðdáun.
Veep
Næst besta „cast“ í
þáttaröð frá upphafi.
Rosalega vel skrifað og
leikararnir hver öðrum
betri með Julia Lou-
is-Dreyfuss fremsta í
flokki.
Uppáhalds þættirnir
Bjarni Lárus Hall, tónlistar-
maður og ræktunarráðunautur.
Nostalgía, ádeilur og Breaking Bad
Heimilislegt spjall
með Hildi
N4
miðvikudag
kl. 20 Milli
himins og
jarðar
Séra Hildur
Eir Bolladótt-
ir fær til sín
góða gesti
og spjallar
um allt milli
himins og
jarðar.
Maðurinn sem átti
ekki að verða kóngur
RÚV laugardag kl. 22.00
Ræða konungs
Óskarsverðlaunamyndin King's
Speech byggir á atburðum í lífi
Georgs sjötta Bretlandskon-
ungs en hann var faðir Elísabet-
ar annarrar drottningar. Georg
átti aldrei að verða konungur
en þegar bróðir hans, erfingi
krúnunnar, hafnar henni lend-
ir ábyrgðin á Georg. Alvarlegur
talgalli konungsins setur strik í
reikninginn en hann einsetur sér
að ná tökum á röddinni svo hann
standi sig í embætti. Leikarar:
Colin Firth, Geoffrey Rush og Hel-
ena Bonham Carter.
30 ár frá frídeginum
Netflix Ferris Bueller’s
Day Off
Þrír áratugir eru nú liðnir síð-
an þessi frábæra kvikmynd var
frumsýnd og af því tilefni er hún
komin inn á Netflix. Matthew
Broderick leikur aðalhlutverkið,
menntaskólastrák sem skrópar í
skólanum og lendir í heilmiklum
ævintýrum.
Nostalgía og gott grín
Bjarni Lárus Hall heldur
enn mikið upp á Cheers
og Simpsons en horfir í
dag meira á Veep og South
Park.
V A N I L L U J A R Ð A R B E R J U M
& S K Y R K Ö K U
DÖKKU SÚKKULAÐI &
SÚKKULAÐIBITAKÖKU
S A L T K A R A M E L L U
& K E X K Ú L U M
S U Ð R Æ N N I
L Í M Ó N U
SÚKKULAÐI
& BÖNUNUM
M Y N T U &
S Ú K K U L A Ð I
P E K A N H N E T U M
& K A R A M E L L U
SÚKKULAÐI
…sjónvarp11 | amk… LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2016