Fréttatíminn - 01.10.2016, Síða 50
Það á að vera
auðvelt að
leggja nýtt gólf. Þess
vegna eru öll gólfin
okkar með einföldu
smellukerfi. Ítarlegar
leiðbeiningar fylgja
að sjálfsögðu alltaf.
Það getur hins vegar verið auðvelt
að gleyma þeirri staðreynd að það er
grunnurinn að öllu heildarútliti heimil-
isins. Nýtt gólf skapar fallegan grunn
fyrir húsgögnin og getur breytt litlausu
herbergi í líflega og notalega vistarveru.
Hjá IKEA fást gólfefni sem eru auðveld í
umhirðu og henta smekk hvers og eins
- auk þess að vera á góðu verði. Gólfin
henta í öll rými, nema þar sem er mikill
raki. Það er auðvelt að leggja þau og
heimilið verður eins og nýtt.
Birna M. Bogadóttir
Sölustjóri í IKEA
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 20162 GÓLFEFNI
Gólfið er grunnurinn
að heimilinu
Frábærar lausnir og gott verð
Unnið í samstarfi við IKEA
Hjá IKEA er frábært úr-val plastparkets sem hentar fyrir öll heimili. Parketið hefur stað-
ist alla staðla og er á frábæru
verði,“ segir Birna M. Bogadótt-
ir, sölustjóri í IKEA. Til að nefna
verðdæmi er til að mynda hægt
að fá plastparket með hlynsáferð
á 675 kr. fermetrinn sem er besta
verðið. Að sögn Birnu er ekk-
ert mál að finna út úr því hvaða
parket hentar hverjum og einum
best. „Við erum með myndrænar
upplýsingar í kaupleiðbeningum
og á öllum pakkningum hjá okkur
um hvaða parketi við mælum með
fyrir hvert rými eftir umgangi í
herberginu.“
Eins og áður sagði er boðið upp
á margar tegundir plastparkets,
þykktirnar eru þrjár og því hægt
að velja mismunandi gæðaflokk
auk þess sem hægt er að velja um
10 eða 25 ára ábyrgð. „Að auki
erum við með úrval parketlista til
að skilin milli gólfs og veggja séu
fallegri í tveimur þykktum eftir
því hversu hátt viðskiptavinurinn
vill hafa listann,“ segir Birna.
Birna segir flesta ráða við að
leggja IKEA parketið. „Það á að
vera auðvelt að leggja nýtt gólf.
Þess vegna eru öll gólfin okkar
með einföldu smellukerfi. Ítar-
legar leiðbeiningar fylgja að sjálf-
sögðu alltaf. Við mælum með að
það séu alltaf skilin eftir 8-10 mm
bil meðfram öllum veggjum og
þröskuldum til að koma til móts
við breytingar á hita og rakastigi.“
„Það er til dæmis að aukast til
muna að fólk sé að setja parket
á veggina og við sýnum einmitt
þannig lausn hjá okkur í verslun-
inni. Það kemur ótrúlega vel út,“
segir Birna.
Meðal þess sem er vinsælast
þessa dagana er hvíttuð eik og
fura en eikin er þó alltaf klassísk,
að sögn Birnu. Hægt er að nota
IKEA parket þar sem það er hiti
í gólfi. Umhirða parkets skiptir
máli fyrir endingu þess og líftíma.
„Gott er að hafa í huga að nota
alltaf filttappa undir öll húsgögn
til að vernda gólf og síðan er góð
hugmynd að setja mottu við inn-
gang til að koma í veg fyrir að
sandur og smásteinar berist inn,“
segir Birna.
Gólfið eitt það mikilvægasta
á heimilinu