Fréttatíminn - 01.10.2016, Side 60
„Sixties“ flísar að koma aftur
Úrval parkets og flísa yfirgripsmikið í BYKO.
Unnið í samstarfi við BYKO
Harðparketið eru númer 1, 2 og 3. Þetta er orðið 65-75 % á móti viðarpar-ketinu,“ segir Júlíus Har-
aldsson, sölumaður í BYKO. „Harð-
parketið er ódýrari kostur og mun
einfaldara að leggja því borðin eru
minni og auðveldari í lagningu.
Venjulegt fólk getur bara klárað
þetta sjálft,“ segir Júlíus og bætir
við að það sé einnig harkan sem
fólk sækist eftir. „Það er þá alveg
sama hver ágangurinn er, háir hæl-
ar í partíum, sandur, hundar og dót
barnanna, það þarf ekki að hafa
neinar áhyggjur, ekkert ó, ó og æ,
æ þegar börnin eru að leika sér.“
Viðurinn er þó það eina sem
kemur til greina hjá ákveðnum
hópi fólks og þá er það frekar eldri
viðskiptavinir, að sögn Júlíus-
ar. „Við erum líka með mjög gott
úrval þar. Við tökum frá einum
aðila sem þjónustar okkur mjög
vel.“ Það nýjasta í viðarparketi hjá
BYKO er fiskibeinamynstur sem
hægt er að brjóta upp með lang-
fjölum og hanna þannig mynstrið
eftir smekk. „Grái tónninn er mjög
vinsæll í parketinu og margir gráir Júlíus Haraldsson „Harðparketið er ódýrari kostur og mun einfaldara að leggja.“
Fjölbreytt úrval Úrval flísa og harðparkets í BYKO er yfirgripsmikið og úrvalið eykst frá degi til dags.
tónar í boði. Þar á eftir kemur hinn
klassíski viðarlitur, það er alltaf
ákveðin íhaldssemi í gangi enda
vill fólk að útlitið standist tímans
tönn.“
Flísalögð hús að koma aftur
Úrval flísa í BYKO er yfirgripsmikið
og úrvalið eykst frá degi til dags.
„Við erum með mikið úrval flísa
sem hægt er að nota bæði inni
og úti. Þetta eru vandaðar flísar
í mörgum þykktum og stærðum.
Flísarnar sem við erum að setja
utan á hús eru mjög frostþolnar.
Við erum með kerfi úr flekum sem
sett er utan á húsin og flísunum
smellt á. Síðan er að færast í auk-
ana að líma flísarnar beint á húsin.
Þegar flísarnar eru settar á flekana
loftar meira um þær en ef þær eru
límdar er hægt að setja þær mjög
þétt,“ segir Júlíus. Flísuð hús hafa
verið í lægð um nokkurra ára skeið
en eru nú að koma aftur af krafti.
Fólk orðið kaldara
við val á flísum
Tískan í flísum innandyra hefur
líklega aldrei verið eins fjölbreytt
og nú. „Við erum að breyta til
með ýmsum áferðum og gerðum
á inniflísunum. Við erum með fjöl-
breytta flóru, það er kominn meiri
tónn í flísarnar og meiri áferð og
persónuleiki; ekki bara slétt grátt
og hvítt eins og hefur verið þó
að það sé líka tekið með.“ Í þessu
samhengi nefnir Júlíus „sixties“
flísarnar sem eru að koma afar
sterkar inn. „Fólk er að taka þær á
einn vegg eða eina rönd, kannski
bara eina flís. Sumir taka gráa og
hvíta tóna og svo kannski bara
eina öðruvísi flís á vegginn. Til
dæmis þar sem á stendur New
York eða Róm og svo er mynd
af borginni, svo það er auðvelt
að láta sig dreyma,“ segir Júlíus.
„Fólk er orðið kaldara og við höf-
um gaman af því. Einnig ráðleggj-
um við fólki með það hvernig það
getur lagt stærðir saman, notað
sama stíl af flísum í mismunandi
stærðum. Í bæklingnum, sem er
fáanlegur hérna hjá okkur, er sýnt
hvernig hægt er að gera þetta án
þess að það verði yfirdrifið. Það er
millivegurinn sem gildir, að útlitið
eldist vel án þess að vera alveg
hlutlaust.“
Birgjarnir sem BYKO skiptir við eru
með vönduðustu vöruna sem völ
er á miðað við verð og því er hægt
að ganga að gæðunum vísum.
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 201612 GÓLFEFNI