Fréttatíminn - 12.11.2016, Blaðsíða 13
| 13FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 12. nóvember 2016
Reykjavík
norður
20
Reykjavík
suður
23
Suðvestur
28
Norðaustur
32
Norðvestur
34
Suður
35
Ríkisstjórn
Sigmundar og Bjarna
Þingmannafjöldi ef allir kysu eins
kjósendur þessara kjördæma
sem áður tengdi ólík byggðarlög
saman, táknmyndir þjóðríkisins,
hélt ekki lengur. Umræðan ein-
kennist æ meir af harðnandi átök-
um milli viðhorfa sem fjarlægjast
sífellt hvort annað.
Svo virðist sem báðar fylkingar
stefni á sigur yfir hinni. Annars
vegar eru borgarbúar sem vilja
þröngva landsbyggðinni til að fallast
á sín lífsviðhorf. Hins vegar er lands-
byggðarfólk sem lítur svo á að borg-
arbúarnir hafi yfirgefið samkomulag
þjóðríkisins, gildi þess og varnir.
Þetta er auðvitað einföldun en
engu að síður lýsandi fyrir átökin í
stjórnmálum flestra landa á Vestur-
löndum. Borgirnar voru alltaf höf-
uðvígi vinstri manna og sósíalista.
Eftir því sem borgirnar eflast því
sterkari lit hefur vinstristefna tek-
ið af hagsmunum þeirra og stöðu.
Verkalýður í dreifðari byggðum
á æ erfiðara með að tengja við
framsetningu borgarfólks á mikil-
vægustu úrlausnarmálum. Þegar
borgarsósíalistarnir kynna mann-
réttindabaráttu sína heyrir lands-
byggðarfólkið litið annað en upp-
hafningu borgarviðhorfa og höfnun
á sínum eigin viðhorfum.
Á meðan borgarbúar vilja horfa
fram vill fólkið í dreifðari byggðum
horfa aftur, til heims sem er að láta
undan og brotna. Gerum Banda-
ríkin öflug á ný! er slagorðið sem
kveikir eld í brjóstum þess á meðan
fólkið í borgunum lítur á þetta sem
fráleita kröfu. Hvers vegna ættum
við að fara aftur?
Alternative für Deutschland fékk 24,4 prósent fylgi í kosningum í Saxony-An-
halt en aðeins 6,1 prósent í Hamborg. Hamborg er í miklum vexti, blómstrar
á tímum alþjóðavæðingar. Þar er landsframleiðsla á mann tvisvar og hálfu
sinnum meiri en í Saxony-Anhalt, sem er eitt af þeim svæðum Evrópu þar sem
stöðnun ríkir.
National Front í Frakklandi hefur mest fylgi í
Picardy-fylki og norðurhluta Frakklands, þar sem
ryðbelti hnignandi verksmiðja liggur. Þar er lands-
framleiðsla á mann aðeins helmingur af því sem er í
París og nágrenni.
Í Brexit-kosningunum naut brotthvarf úr Evrópusambandinu
meirihlutafylgis í Wales, öfugt við Skotland, Norður-Írland og
stærstu borgirnar. Stórir hlutar Wales misstu af iðnbyltingunni en
aðrir eru í sárum vegna samdráttar í iðnframleiðslu. Landsfram-
leiðsla í Wales er aðeins fjórðungur af því sem er í London.
Frá Mið- og Suður
Ameríku
Arial reg. 8 pt
Línubil 10Ylur og krydd frá Gvatemala.
Jólailmur, hlátrasköll og gott
kaffi.
Hátíðakaffi
kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bol
la
k
aff
itá
R
f
rá
bý
li
í b
ol
la
ka
ff
itá
r
f
rá
býli
í boll
a
hátíðí bæ