Fréttatíminn - 12.11.2016, Blaðsíða 40
40 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 12. nóvember 2016
Dáleiðsla
opnar hugann
og bætir geð
Micheal Yapko
segir dáleiðslu
aðferð til að
drekka í sig nýj-
ar hugmyndir
og möguleika
og því geti hún
nýst vel í með-
ferð geðkvilla.
Dáleiðsla er mikilvægt og vannýtt úrræði í
heilbrigðisþjónustu, ekki síst hvað varðar
geðræn vandamál. Þetta er skoðun bandaríska
sálfræðingsins Michael D. Yapko sem hefur
heimsótt Ísland reglulega að undanförnu til að
þjálfa íslenska heilbrigðisstarfsmenn í klínískri
dáleiðslu.
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
Doktor Michael D. Yapko býr í Kali-
forníu og er klínískur sálfræðing-
ur og fjölskylduráðgjafi. Hann hef-
ur komið þó nokkuð oft til Íslands
til að kenna aðferðir við notkun
dáleiðslu í geðheilbrigðismálum
og er nú á leið til landsins til að
kenna framhaldsnámskeið hér á
landi á vegum Endurmenntun-
arstofnunar Háskóla Íslands. „Ég
hef fundið að það er mikil virkni
og áhugi í samfélagi fagfólks í geð-
heilbrigðismálum á Íslandi,“ segir
Yapko. „Áhuginn til að nýta þess-
ar aðferðir í meðhöndlun á kvíða,
þunglyndi og jafnvel sársauka, er
mikill og vaxandi, bæði á Íslandi
og víða annars staðar.
Í grunninn snúast aðferðirnar
um það að nýta mátt einbeitingar-
innar og gera sér grein fyrir því að
þegar fólk er einbeitt og rólegt þá
á það auðveldara með að læra og
taka á móti upplýsingum. Margt af „Ef ég segði við þig: „Ég
vil að þú verðir algjörlega
dofinn í vinstri hendi frá
olnboga og fram í fingur
eftir tíu sekúndur,“ þá er
ekki víst að þú getir það.
Dáleiðsla og aðferð sem
við köllum „innleiðingu“
getur hins vegar kallað
fram slíkan hæfileika.
því sem fram fer í meðferð á and-
legum kvillum snýst um að kenna
fólki nýjar aðferðir í hugsun sinni
og kalla fram ný sjónarhorn á
vandamálin. Dáleiðslan leggur í
raun til umhverfi sem gerir fólki
auðveldara að ná fram slíkri hugar-
farsbreytingu sem getur haft já-
kvæð áhrif í lífi þeirra.“
Ekkert eins og í bíó
Yapko segir að klínísk hugleiðsla
njóti oft ekki sannmælis og alls
konar ranghugmyndir, oft ættaðar
úr kvikmyndum og bókum, þvælist
fyrir þegar rætt sé um dáleiðslu og
gagnsemi hennar. „Þetta er ekkert
eins og í bíó eða einhver vitleysa
úr sjónvarpsþáttum,“ segir hann.
„Og þetta kemur sirkus ekkert við.
Klínískir sálfræðingar eru hins
vegar áhugasamir um ástand þar
sem fólk er opnara fyrir skilaboð-
um eða nær að blokka úti sársauka.
Þetta ástand erum við að reyna að
skilja og nýta.
Líf þitt og lífsgæði byggjast fyrst
og fremst á þeim ákvörðunum sem
þú tekur í lífinu. Margir taka hins
vegar mjög vondar ákvarðanir og
auka þar með á flækjustigið og
stressið í lífi sínu. Þetta er fólk sem
ekki ætlar sér að leggja til eigin
vandamál, en gerir það samt. Það
tekur vondar ákvarðanir byggðar
á áhrifavöldum sem koma málinu
ekki við eða tilheyra jafnvel for-
tíð þess. Sálfræðimeðferð snýst að
miklu leyti um að skoða ákvarðan-
ir fólks og áhrif þeirra á lífsgæði og
þar getur dáleiðsla oft hjálpað til.
Þegar maður vill kenna einhverj-
um eitthvað nýtt er alltaf til bóta
að sá sem á að læra sé einbeittur
og afslappaður. Við þær aðstæður
er fólk opið fyrir nýjum hugmynd-
um. Það er nefnilega mýta að fólk
„detti út“ þegar það er dáleitt. Yf-
irleitt er það einmitt mjög vel ein-
beitt og opið fyrir umhverfi sínu.
Dáleiðslan er því aðferð til að
hjálpa fólki að drekka í sig nýjar
hugmyndir og möguleika og tengja
við hæfileika sem búa með hverj-
um og einum, án þess að fólk átti
sig á því.“
Og Yapko tekur dæmi: „Ef ég
segði við þig: „Ég vil að þú verð-
ir algjörlega dofinn í vinstri hendi
frá olnboga og fram í fingur eftir
tíu sekúndur,“ þá er ekki víst að
þú getir það. Dáleiðsla og aðferð
sem við köllum „innleiðingu“ get-
ur hins vegar kallað fram slíkan
hæfileika. Þá er athygli þín þrengd
svo að þú hugsir aðeins um það
sem ég er að leggja til. Ég legg síð-
an alveg það sama til og þá dofn-
ar handleggurinn upp. Þetta er
heillandi og við erum að reyna
að átta okkur á því hvernig þetta
gerist. Þegar við erum að fjalla
um geðheilbrigðismál hefur sýnt
sig að þeir sem eru dáleiddir eiga
auðveldara með að taka inn nýjar
hugmyndir og ný sjónarmið þegar
kemur að því að bæta líf þeirra.“
Einföld grundvallaratriði
Yapko segir fólk oft eiga erfitt með
að sjá grundvallarhugmyndina að
baki notkun dáleiðslu við geðræna
meðferð. „Í grunninn snýst þetta
um að skapa hugarástand sem
gagnast fólki til að gera það sem
það þarf að gera og hugsa um sig og
stöðu sína í veröldinni á jákvæðari
og uppbyggilegri hátt.“
Dáleiðsla getur, að mati Yapko,
hjálpað til við að losa um þrýsting
á ýmsar hliðar heilbrigðisþjón-
ustunnar. „Rannsóknir hafa sýnt
að dáleiðsla getur í einhverjum til-
vikum stytt sjúkrahúsvist, dregið
úr vandkvæðum eftir uppskurði
og dregið úr notkun á kvalastill-
andi lyfjum. Áhrifarík meðferð við
kvíða með notkun dáleiðslu fækkar
líka ferðum til læknis, sem að oft
koma einmitt til út af kvíðanum.“
Ennfremur segir Yapko að breið-
ur hópur víða um heim leggi stund
á dáleiðslu til að hjálpa fólki. „Sum-
ir þessara aðila búa ekki yfir neinni
akademískri þekkingu eða þjálfun,
en svo er líka menntað og metn-
aðarfullt fagfólk í geðheilbrigð-
ismálum sem er að opna augun
fyrir möguleika þessara aðferða.
Margir eru í Alþjóðasamtökum
um dáleiðslu, sem eiga sér langa
og merka sögu, halda heimsþing
og birta í fagtímariti nýjustu rann-
sóknir á þessu sviði. Hægt og ró-
lega byggist þekking upp þessu
sviði og mér finnst mikilvægt að
miðla henni.“
Ný sending frá
Mette Ditmer
Vorum að taka upp nýja sendingu frá Mette Ditmer.
Vandaðar vörur fyrir bæði svefnherbergið og baðherbergið.
Síðumúla 21 108 Reykjavík S. 537 5101 Opið virka daga 11-18 Laugaradaga 11-16 www.snuran.is
Glerbox með brass loki: 5.990 kr.
Sápu pumpa: 5.990 kr.
Butterfly rúmteppi frá: 9.900 kr.
Handklæði 35x55 cm 2 stk: 2.990 kr.
Butterfly púðar 40x60 cm: 6.490 kr.
Snyrtitöskur frá: 4.690 kr.