Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 12.11.2016, Blaðsíða 22

Fréttatíminn - 12.11.2016, Blaðsíða 22
22 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 12. nóvember 2016 Það er verst að skáldin skuli yfirgefa okk-ur einmitt þegar við þurfum mest á þeim að halda. En það er jú eðli skálda að vera áfram með okkur, jafnvel þó þau séu farin. Leonard Cohen tékkaði sig út úr heimi sem ekki er lengur hægt að skilja nema sem metafór fyrir eitthvað allt annað. Cohen er nú staddur á efstu hæð á sönglaga- turninum mikla á himnum og við fáum aldrei að vita hvað hann hefði sagt um veröld Donalds Trump. Og þó má einmitt vera að hann hafi varað okkur við. Leonard Cohen fæddist þann 21. september 1934 í borginni Montreal í Kanada. Þar ólst hann upp í hverfinu Westmount, sem er enskumælandi eyja í hinu frönskumælandi Québéc héraði, sem aftur er frönskumælandi eyja í hinu mikla enskumælandi úthafi sem er Norður-Ameríka. Þrátt fyrir að vera af gyðinga- ættum leit faðir hans, sem barðist í fyrri heimsstyrjöld, svo á að hann væri viktoríanskur séntilmaður og gaf syni sínum ljóðabækur eft- ir helstu skáld Englendinga, eins og Wordsworth og Byron. Cohen las enskar bókmenntir við McGill háskóla í heimaborginni og gaf út ljóðabók í klassískum stíl, en fyr- ir sunnan heilluðu Bandaríkin þar sem allt var að gerast. Cohen fór í framhaldsnám til New York og kynntist þar bítskáld- um á borð við Kerouac og Gins- berg, sem fannst hann hlægilega gamaldags. Kanadamaðurinn hélt aftur heim og gaf út fleiri ljóða- bækur og skáldsögur, en frum- legri, sem unnu til verðlauna. Í bókinni Flowers For Hitler talar hann mann sem er enskur í útliti en hafði amerískan metnað. Sjálfur hafði Cohen snert af slíkum og eft- ir að hafa heyrt í Dylan hélt hann aftur til New York, en í þetta sinn til að gerast söngvaskáld. Með hippum og í hernum Hann kom fram í fyrsta sinn á mót- mælatónleikum gegn Víetnam- Leonard Cohen og Ameríka Skáldið mikla er farið. En hvað hefði það sagt um heiminn sem það skilur eftir? Valur Gunnarsson valurgunnars@frettatiminn.is stríðinu og var svo feiminn að hann gekk af sviði en vinkona hans, Judy Collins, dró hann aftur fram. Hann samdi hið magnaða lag „Story of Isaac“ gegn stríðinu, þar sem eldri kynslóðinni er stillt upp sem Abraham að fórna syni sín- um fyrir einhverskonar málstað. Cohen var þó ekki friðarsinni með öllu. Árið 1973 gekk hann til liðs við afþreyingardeild ísraelska flug- hersins í Yom Kippur stríðinu og drakk koníak með Ariel Sharon í eyðimörkinni, en bauð við hryll- ingi stríðsins og hélt aftur heim. Cohen sló í gegn, en ekki í Am- eríku, heldur í Evrópu. Platan Various Positions, sú með „Hall- elujah“ á, var ekki einu sinni gef- in út þar í landi í fyrstu. En Cohen settist eigi að síður að þar í landi, og þegar kalda stríðinu lauk og flestir fylltust bjartsýni gaf hann út hina martraðarkenndu plötu Síðasti túrinn. Cohen átti óvænta endurkomu á svið árið 2008, en síðustu tónleik- ar hans voru haldnir 2013. FARARSTJÓRN: ÞORLEIFUR FRIÐRIKSSON BALÍ OG BANGKOK Þrískiptur ævintýraleiðangur TILBOÐSVERÐ 399.900 KR.* EF BÓKAÐ ER FYRIR 10. NÓVEMBER páska ferð Á Balí má stunda margs konar spennandi útiveru, svo sem köfun, brimbrettabrun, fjallaklifur, fljótasiglingar, kajakadól, skútusiglingar, hjólreiðar og stórfiskaveið- ar. Þar má kynnast dularfullri og seiðandi menningu eyjarskeggja, sjá dans barongskrímslanna, hlusta á bambus- -sílófóna, láta dáleiðast af mögnuðum hreyfingum legong-dansaranna, falla í djúpan trans með kecak-danshópi og jafnvel færa hindúaguðinum Visnú fórnir. Þessi ævintýraleiðangur er þrískiptur. Fimm dagar í menningarbænum Úbúd. Sex dagar í vellystingum í Sanúr, og að endingu verður dvalið tvo daga í Bangkok, höfuðborg Taílands. MANNLÍF, MENNING OG LJÚFIR DAGAR Á BALÍ 8.–23. APRÍL, 16 DAGAR 439.000 KR.* farvel.is farveltravel farvel_travel farvel@farvel.is415 0770 *Verð per mann í tvíbýli. Nánari upplýsingar á vefsíðu Farvel. Ármúli 40 // 108 Reykjavík // Sími 534 2727 // www.alparnir.is // e-mail: alparnir@alparnir.is lÍs en ku ALPARNIR s Full búð af vörum Salomon húfur, verð frá 2.995 kr.- Salomon lúffur, Verð 4.995 kr.- Salomon dömu peysa Verð 17.995 kr.- Salomon undirfatnaður síðerma bolur. Verð 11.995 kr.- Salomon undirfatnaður buxur. Verð 8.995 kr.- Salomon herra Softshell jakki Verð 24.995 kr.- Salomon herra Primaloft úlpa Verð 35.995 kr.- Salomon dömu Primaloft úlpur. Verð 25.995 kr.- Salomon Speedtrak Verð 14.995 kr.- Til fyrir konur og karla Salomon X-Scream Verð 19.995 kr.- Til fyrir konur og karla Salomon Shelter CS WP Verð 19.995 kr.- Til fyrir konur og karla T ILBOÐ OPNUNARTÍMI Virka daga 11-18 laugardaga 11-16 Ármúla 44 - Sími: 517 2040 - facebook.com/skomarkadurinn GÖNGUSKÓR TILBOÐ I Verð: 7.995.-Áður: 9.995.-

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.