Fréttatíminn - 12.11.2016, Qupperneq 14
14 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 12. nóvember 2016
Takið því rólega. Ég ætla ekki að skrifa um Trump. Við erum öll búin að Trumpa yfir okkur. Kjósendur hans
eru áhugaverðari. Eru þeir allir eins
og hann eða hafa þeir verið skildir
eftir í vegkantinum í sókn annarra
eftir lífsgæðum. Og finnst þeim þá
frekir og dónalegir kallar meira
spennandi en kerfiskallar og -kell-
ingar. Þótt Bandaríkin séu full af
fólki, öfgum, mótsögnum og einstak-
lega móttækileg fyrir alls konar vit-
leysu eru Trumparnir víða. Í Evrópu
spretta þeir eins og arfi í hægri-öfga-
samtökum sem beina spjótum sín-
um aðallega að innflytjendum og
múslimum.
En er einhver íslenskur Trump? Eða
erum við bara saklaus og góð?v
Popúlistabyltingin í heiminum er
drifin áfram af hinum ósýnilega
meirihluta sem er orðinn ringlað-
ur og vonsvikinn af misskiptingu
gæðanna. Bolurinn hefur tekið sér
alræðisvald og gefur skít í orðræðu
elítunnar sem er löngu búin að gefa
öllu venjulegu vinnandi fólki langt
nef. Í stað þess að krefjast þess að
auðæfum sé skipt á réttmætan hátt
og fulltrúar í stjórnmálunum séu
ekki bara þjónar forréttindastétt-
arinnar vill hinn dæmigerði hægri
sinnaði bolur henda ýmsum gælu-
verkefnum fyrir borð sem varða alla
framtíðina, þar má nefna loftslags-
málin og önnur umhverfismál og
jafnrétti kynjanna.
Popúlistar reyna að segja okkur að
auka megi lífsgæði venjulegs fólks
með því að draga úr ferðafrelsi, um-
burðarlyndi og mannréttindum.
Hættan er sú að frjálslyndara fólk sé
ýmist of hrokafullt til að ræða vand-
ann, of reitt til að taka afstöðu eða of
sundrað til að veita viðnám.
Umræðan hér heima býður upp á
ýmsa möguleika fyrir popúlista.
Sigmundur Davíð komst nærri
því að vera okkar Trump áður
en líkneski hans var velt af stalli.
Hann er sá „popúlisti“ sem hefur
höggvið næst því að sameina hægri
og vinstri óánægju á síðari tím-
um þegar hann lofaði að leiðrétta
skuldirnar. Þjóðfylkingin reyndi
að færa okkur hráa og ómengaða
þjóðernispólitík en frambjóðend-
ur ruku saman áður en að kosn-
ingum kom. Píratar hafa líka verið
svo elskulegir að fresta popúlista-
byltingunni hér á landi með því að
taka við stórum hluta óánægðra
kjósenda sem eru vinstra megin
við miðju en fyrirlíta stjórnmálael-
ítuna og nómenklatúruna í kring-
um hana.
„Trump er svona kall sem segir það
sem allir hinir eru að hugsa,“ sagði
bandarísk unglingsstúlka, ánægð
með sinn frambjóðanda. Og það
er vissulega rétt, hann langar að
menga meira, græða meiri pen-
inga, éta meira, rífa kjaft og hann
„grípur í píkuna“ á konum sem
hann langar í því þær eru hvort eð
er til í að gera allt fyrir svona ríka
kalla sem eru alltaf í sjónvarpinu.
Alveg frábær náungi.
Víða er hægt að sjá mikil skil milli
landsbyggðar og höfuðborgar
þegar kemur að fylgi við popúl-
ískar hugmyndir. Á Íslandi er líka
munur á skoðunum höfuðborgar
og landsbyggðar sem virðist mun
hægri sinnaðri.
Meirihluti þjóðarinnar kaus
breytingar og felldi ríkisstjórnina.
Hún hélt þó velli í öllum lands-
byggðarkjördæmunum og kannski
uppfylla þingmenn stjórnarflokk-
anna að einhverju leyti þarfir bols-
ins á landsbyggðinni.
Tökum sem dæmi Suðurkjördæmi.
Sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi
röðuðu þremur körlum fremst á
framboðslistann fyrir alþingiskosn-
ingar. Það hefði sumstaðar talist
dapurlegir mannasiðir með tilliti
til jafnrar stöðu kynjanna en ekki í
Suðurkjördæmi.
Nokkrar konur urðu reyndar
brjálaðar, þær gengu úr Sjálfstæðis-
flokknum og nærri því af göflunum.
En kallarnir létu ekki hagga sér.
Og hvað gerðist? Konurnar snið-
gengu ekki flokkinn, nýi hægri flokk-
urinn Viðreisn vann ekki stórsigur.
Sjálfstæðiskarlarnir þrír runnu ljúf-
lega inn, nánast undir húrrahrópum
kjósenda og flokkurinn vann sinn
stærsta sigur í kjördæminu frá ár-
inu 2007.
Í fyrsta sæti er „sjónvarpsstjarnan“
Páll Magnússon sem ver af mikl-
um móð hagsmuni stórfyrirtækja
í sjávarútvegi sem vilja ekki greiða
almenningi markaðsverð fyrir auð-
lindir hafsins.
Í öðru sæti er Ásmundur Friðriks-
son, fulltrúi hins hrædda, miðaldra,
hvíta karlmanns sem upplifir sig
eins og hann sé í útrýmingarhættu.
Frægt varð þegar hann vildi að lög-
regla réðist í að kanna bakgrunn
allra múslima eða „múslimista“. En
þrátt fyrir að fjölmiðlar hafi hamast
á þingmanninum virðist tiltækið
hafa aflað honum mikilla vinsælda
í Suðurkjördæmi.
Þriðji þingmaðurinn hefur eink-
um getið sér gott orð fyrir að hafa
lagt fram enn eitt frumvarpið um að
gefa áfengissölu frjálsa í verslunum.
Saman eru þessir þrír nýju þing-
menn ágætir fulltrúar fyrir mörg
þeirra gilda sem Trump stendur
fyrir.
Kannski segir hann það sem þeir
hugsa?
Og ef maður bregður fyrir sig
slagorðum af Austurvelli. Er þá, kall
nýrra tíma, Ásmundur Friðriksson
og Páll Magnússon, kall þjóðarinn-
ar?
Kjósendur í Suðurkjördæmi eru að
minnsta kosti stórhrifnir.
Trumpaðu það.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
KALL(AR)
NÝRRA
TÍMA
Ævintýri Bjarna Ben
9.999 kr.
AMSTERDAM f rá
T í m a b i l : n ó v e m b e r 2 0 1 6 - m a í 2 0 1 7
13.999 kr.
TORONTO f rá
T í m a b i l : d e s e m b e r 2 0 1 6 - m a í 2 0 1 7
13.999 kr.
MONTRÉAL f rá
T í m a b i l : d e s e m b e r 2 0 1 6 - m a í 2 0 1 7
7.999 kr.
BRISTOL f rá
T í m a b i l : d e s e m b e r 2 0 1 6 - j a n ú a r 2 0 1 7
9.999 kr.
KANARÍ f rá
T í m a b i l : n ó v e m b e r 2 0 1 6 - m a rs 2 0 1 7
7.999 kr.
BARCELONA f rá
T í m a b i l : f e b rú a r - m a rs 2 0 1 7
Við
fljúgum!
*Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.
Eftir stíf fundahöld tóku
putarnir fram reipin