Fréttatíminn - 12.11.2016, Qupperneq 16
16 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 12. nóvember 2016
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Á skrifstofu Sigurðar Helga Guð-
jónssonar hjá Húseigendafélaginu
er samíska fánanum flaggað og
myndir sem vísa í að formaður-
inn er af samískum uppruna.
Sigurður ólst upp í Hólmavík hjá
ömmu sinni, Berit Gunnhild,
sem var Sami frá Norður-Noregi.
Hún fæddist í Tana árið 1900 og
var uppi á þeim tíma sem norsk
Sigurður Helgi Guðjónsson var þrettán ára
þegar hann komst að því að hann væri kominn
af Sömum. Hann ólst upp hjá ömmu sinni,
sem hélt samískum rótum sínum leyndum
enda voru þeir álitnir þroskaskertir villimenn
þegar hún var ung. Sigurður og afkomendur
hans eru hinsvegar rífandi stoltir af því að
vera Samar.
Stoltir af því að vera Samar
stjórnvöld reyndu að siða Sama
til og gera þá líkari venjulegum
Norðmönnum. Norskuvæðingin
var stefna ríkisins kölluð en hún
miðaði að því að skikka Sama til
að læra norsku og láta af venjum
sínum og menningu. Fjölmörgum
mállýskum af tungumáli þeirra
var útrýmt því samkvæmt lögum
mátti ekki tala annað en norsku
í skólastofunum. „Þegar það var
innleitt þurfti amma að byrja að
læra norsku, komin á unglings-
aldur. Fram að því hafði hún bara
talað samísku. Hún varð fyrir
normalíseringunni og gerði aldrei
mikið úr því að vera Sami, enda
hefur því alltaf fylgt skömm,“ seg-
ir Sigurður.
Á þessum tíma, snemma á tutt-
ugustu öldinni, var viðhorf fólks
til Sama að þeir væru annars
flokks. „Amma mín talaði aldrei
um þetta. Ég vissi ekki fyrr en
ég var 12 ára að hún væri Sami,
og þar af leiðandi ég líka. Síðar á
lífsleiðinni fékk ég algjöra dellu
fyrir Sömum því mér fannst
menning þeirra svo mikil og
heillandi.“
Með fyrstu menntuðu Sömunum
Berit Gunnhild hélt til frá Norð-
ur-Noregi suður til Oslóar þar
sem hún lærði hjúkrunarfræði,
nokkuð sem var afar óvenjulegt
meðal samískra kvenna á þeim
tíma. „Hún var einn fyrsti Saminn
sem braust til mennta og þetta
var mjög óvenjulegt af konum á
þessum tíma. Hún ferðaðist mikið
og við störf sín sem hjúkrunar-
fræðingur kynntist hún Vilmundi
Jónssyni sem var héraðslæknir á
Ísafirði og síðar landlæknir á Ís-
landi. Hann bauð henni að koma
með sér til Íslands að vinna í eitt
ár. Þar vann hún á sjúkrahúsinu á
Ísafirði og kynntist afa mínum sem
var kaupmaður í bænum. Þau tóku
saman og settust að á Hólmavík.“
Sigurður ólst því upp með móð-
ursystkinum sínum og hafði litla
vitneskju um samísku ræturnar.
„Eftir að ég varð fullorðinn
rakst ég á rannsókn sem gerð var
á viðhorfi fólks til Sama og hög-
um þeirra sem höfðu afneitað
uppruna sínum. Það var sam-
merkt með þeim að þeir glímdu
við þunglyndi og ég sá að
Hverjir eru Samar?
Samarnir eru ævaforn þjóðflokkur sem býr í Sápmi, landsvæði
sem nær frá Noregi til Svíþjóðar, Finnlands og yfir á Kólaskaga í
Rússlandi. Þjóðflokkurinn telur um það bil hundrað þúsund og
langflestir þeirra, rúmur helmingur, búa í Norður-Noregi. Í mörg
hundruð ár voru Samar taldir annars flokks fólk í öllum þessum
löndum. Í lok nítjándu aldar voru þeir hafðir til sýnis í dýragörð-
um og vísindamenn reyndu að sýna fram á að þeir væru vits-
munalega afbrigðilegir.
Saga þeirra er að mörgu leyti svipuð annarra frumbyggja sem
hafa verið fótum troðnir af landnemum. Menningu þeirra og
lifnaðarháttum var reynt að útrýma með kerfisbundnum hætti
og tungumál þeirra var hreinlega bannað með lögum í skandin-
avískum skólastofum.
Á ljósmyndinni sést fulltrúi norska ríkisins taka höfuðmál af
Sömum en mælingin var liður í að sanna að Samar væru líkam-
lega og vitsmunalega afbrigðilegir.
Samar búa í Norður-Skandinavíu og lifa meðal annars af fiskveiðum og hreindýrarækt.
BÓK UM VON
OG ANDLEGAN BATA
BRÚ YFIR BOÐAFÖLLIN fjallar um þær aðferðir sem gerðu Steinunni Ósk kleift að
sigrast á æskuminningum sem mörkuðust af kynferðisofbeldi og erfiðum heimilis
aðstæðum. Í bókinni deilir Steinunn þeim aðferðum sem hafa hjálpað henni að
byggja upp brotna sjálfsmynd og finna þann styrk og þá gleði sem einkennir líf
hennar í dag. Bókin er uppgjör við erfiða fortíð og leiðarvísir að bjartari framtíð
sem vonandi getur orðið þolendum kynferðisafbrota hvatning til að skila skömminni
þangað sem hún á heima.
STEIN
U
N
N
Ó
SK
Brú yfir boðaföllin
BRÚ YFIR
BOÐAFÖLL
IN er fyrst
og fremst
bók um von
, andlegan b
ata og þær a
ðferðir sem
gerðu Stein
unni Ósk kl
eift að sigr
ast á æsku-
minningum
sem mörku
ðust af kyn
ferðisofbeld
i
og erfiðum
heimilisaðs
tæðum. Í b
ókinni deilir
Steinunn þ
eim aðferð
um sem ha
fa hjálpað
henni að b
yggja upp
brotna sjál
fsmynd og
finna þann
styrk og þ
á gleði sem
einkennir
líf hennar í
dag. Bókin
er uppgjör
við erfiða
fortíð og le
iðarvísir að
bjartari fr
amtíð sem
vonandi get
ur orðið þol
endum kynf
erðisafbrota
hvatning ti
l að skila s
kömminni
þangað sem
hún á heim
a.
9 789935
474353
ISBN 978
-9935-47
4-35-3