Fréttatíminn - 12.11.2016, Side 18
18 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 12. nóvember 2016
Samar sveipaðir ævintýrablæ
Bjarni Sigurðarson,
betur þekktur sem
Bjarni í Mínus,
ólst upp við þá
trú að hann ætti
ævintýralegar
rætur. Hann deilir
hrifningu föður
síns af samískri
menningu og ber
stoltur hinn litríka
Samabúning
„Ég er mjög heillaður af Söm-
um og hef alist upp við sögur
af þeim í náttúrunni. Þær voru
sveipaðar ævintýrablæ. Við áttum
teiknimyndabók sem ég marglas
um lítinn Samastrák sem var rænt
af úlfum og farið með á einhvern
úlfafund undir norðurljósum. Svo
kom fjölskylda hans og bjargaði
honum, öll klædd í Samabúninga.
Ég man hvað mér þótti þetta flott.
Því var fastlogið að mér þegar ég
var krakki að ég væri varúlfur og
ég beið þess spenntur fram á full-
orðinsár,“ segir Bjarni.
Hann segist hins vegar hafa
kynnst því lítillega þegar hann bjó
í Noregi að Norðmenn væru ekki
hrifnir af Sömum. „Þeir voru ekki
beinlínis uppnumdir þegar ég var
að monta mig af uppruna mínum.
Þeim fannst Samarnir vera frekir
og íhaldssamir. Þeir urðu náttúru-
lega fyrir menningarlegu þjóðar-
morði hér á árum áður. En ég lít á
mig sem Sama og finnst ég þurfa
að gera það.“
Bjarni er hrifinn af Samatón-
list segist lengi hafa leitað að
samískri söngkonu til að starfa
með. Hann hefur áður tekið þátt í
samstarfi með samískri söngkonu
sem pabbi hans flutti til landsins
fyrir nokkrum árum. „Það birtast
miklar tilfinningar í tærri tónlist
þeirra, þar sem þeir eru einir í
norðrinu að syngja til víðáttu nátt-
úrunnar og mér finnst það mjög
heillandi.“
það hafði sannarlega átt við um
ömmu. Þó hún hafi verið rosalega
skemmtileg kona, lærði hún aldrei
almennilega íslensku og lokaði sig
af frá umheiminum.
Það var reyndar mjög gest-
kvæmt á heimilinu en af einhverj-
um ástæðum fór amma aldrei út.“
Sigurður fékk á fullorðinsárum
algjöra dellu fyrir Sömum eftir að
hann hitti samískan frænda sinn á
frumbyggjaráðstefnu í Alaska. Síð-
ar hefur hann sótt ættarmót í Tana
og heimsótt Samaland margoft.
Hann stofnaði meðal annars Vina-
félag Sama á Íslandi í slagtogi við
Einar Braga rithöfund sem meðal
annars flutti inn samíska lista-
menn til landsins.
Með SAMÍS beitti Sigurður sér
fyrir því að Samar fengju aðild að
Norðurlandaráði og að með því
yrði leiðrétt hið langvinna rang-
læti sem Samar höfðu verið beittir
á vettvangi norrænna þjóða.
„Samar eru einstök þjóð sem á
sér eigin sögu, tungu og menn-
ingu sem er eldri en nokkur þjóð
á Norðurlöndum. Þeir eru þjóð
án landamæra, þjóð sem ekki
var spurð þegar sterkari grann-
ar neyttu aflsmunar til að skipta
samísku landi milli sín og draga
landamæri að geðþótta um feng
sinn. Sú sérstaða Sama að búa í
þremur norrænum löndum veldur
því að þeir hugsa fremur en nokk-
ur önnur norræn þjóð á norræna
vísu. En launin eru útskúfun úr
norrænu samfélagi!,“ sagði Sig-
urður á einum af viðburðun-
um sem SAMÍS hélt til heiðurs
Sömum á Íslandi.
Bjarni ólst upp við ævintýralegar
frásagnir föður síns af lífi Samanna
í norðri. Mynd | Saga Sig
Þjóðsöngur Sama
Ortur af Isak Saba 1906.
Nyrst, á heimsins Norðurkollu,
nafnfrægt liggur Samalandið;
teygir sig um túndru’ og skóga,
tignarlegt og seyði blandið.
Hlíðar, ásar, hamraborgir,
himingeiminn víðan kyssa.
Vötn fram streyma, vindar þjóta,
við hin gráu nesin fyssa,
sem þar ganga’ í hafið út.
Vetrartíð með veðurkulda,
vefur lífið örmum sterkum.
Samísk þjóð, í sátt og friði,
sinnir glöð þar öllum verkum.
Stór er máni’ í stjörnugeri,
stórfellt norðurljósin braga.
Heið er nóttin, hreinar rymja,
heyrist rakin gömul saga
undir húð, við glóðareld.
Sigurður Helgi var orðinn
unglingur þegar hann
komst að því að hann
væri af samískum
ættum. Hér er hann
ásamt dóttursyni
sínum, Vígsteini
Frosta, í fullum
Samaskrúða.
Mynd | Saga Sig
HEILSURÚM
ÍSLENSK HÖNNUN OG FRAMLEIÐSLA
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Opið: Mán. - föst. kl. 09-18
Laugardaga kl. 11-15
innréttingar
danskar
í öll herbergi heimilisins
Fjölbreytt úrval aF hurðum,
Framhliðum, klæðningum og einingum,
geFa þér endalausa möguleika á
að setja saman þitt eigið rými.
sterkar og glæsilegar
AFSLÁTTUR
UM HELGINA-20%
BYKO Breidd 12.11. kl. 13-16
KYNNING