Fréttatíminn - 12.11.2016, Qupperneq 20
20 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 12. nóvember 2016
hverfa
Lætur
jólagjafir
Guðný Þórarinsdóttir bókagerðarmaður er
grúskari af guðs náð og hefur sankað að sér
gersemum frá því hún var lítil stelpa.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Jólatré frá Ameríku
„Ég fékk þetta tré í jólagjöf frá afa og
ömmu þegar ég var eins árs. Ég var
mjög upptekin af því að skreyta það
þegar ég var lítil og þess vegna er það
kannski dálítið illa farið. Það rétt hangir
saman, elsku ræfillinn. Mér þykir af-
skaplega vænt um það og þetta er mitt
uppáhaldsjólaskraut, alltaf það fyrsta
sem ég tek fram fyrir jólin. Ég er hætt
að skreyta það en þó það sé svona
mikill ræfill þá þykir mér það alltaf
jafn fallegt. Afi var hæstaréttadóm-
ari og ferðaðist mikið til Ameríku og
hefur örugglega keypt tréð þar. Hann
keypti líka fullt af fínum kjólum á okk-
ur frænkurnar sem ég vildi að ég ætti í
dag. Æðislegir ballkjólar með sérpilsum
og glitrandi perlufestum, við höfðum
aldrei séð annað eins.“
Ævintýri í albúmum
„Þegar amma var ung setti hún öll sín kort í albúm.
Þetta var það langflottasta sem ég hafði séð þegar ég
var lítil og þegar ég fór í heimsókn þá bara sat ég dol-
fallin og lifði mig inn í öll ævintýrin. Þetta eru flest
útlensk jólakort en líka einhver póstkort. Þegar amma
dó komu þessi albúm í minn hlut og mér þykir alveg
óskaplega vænt um þau. Mér þykir ennþá gaman að
fletta í gegnum þau og hef meira að segja látið skanna
einhver þeirra inn og prentað út og selt sem jólakort.“
Að kafna
í drasli
„Við erum nokk-
ur saman með
flóamarkað
sem kallast
Portið og
þess vegna er
ég alltaf með full-
an bíl af dóti og drasli.
Þegar ég var svo sextug um
daginn teiknaði tengdasonur minn
þetta afmæliskort frá fjölskyldunni.
Þarna er ég alveg að kafna í drasli með
síðasta geirfuglinn og allt heila klabbið í
kringum mig. Maðurinn minn gerir oft
grín að því hvað ég er mikill safnari og
segir til dæmis að jólagjafirnar sem ég gefi
honum eigi það til að hverfa og endi svo á
internetinu,“ segir Guðný og skellihlær.
Listakonan í fjörunni
„Mér finnst þessi stytta alveg rosalega
flott en maðurinn minn erfði hana eftir
frænku sína sem var barnlaus. Styttan er
eftir Elísabetu Geirmundsdóttur sem bjó
í Eyjafirði og sá fjölskyldu sinni farborða með
því að búa til svona styttur. Hún var kölluð
listakonan í fjörunni en ég vissi ekkert um
þessa listakonu áður en við eignuðumst
styttuna og fannst mjög gaman að heyra
sögu hennar. Í dag eru verkin hennar orðin
mjög eftirsótt og það er víst farið að gera
eftirlíkingar af þeim en undir minni styttu
stendur einmitt: „Eftirlíkingar bannaðar“.
Eurovision 1989
„Dóttir mín, Guðrún Dalía, mál-
aði þessa mynd þegar hún var í
barnaskóla. Mér finnst hún svo
skemmtileg mynd en hún er af
Sverri Stormsker og Jóhönnu Linnet
í Söngvakeppni Sjónvarpsins árið
1989. Dóttir mín er einmitt píanó-
leikari í dag sem gerir þetta eigin-
lega ennþá skemmtilegra.“
Mynd | Rut
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
VERÐ FRÁ 255.000.- Í VIKU
MEXICO ALLT ÁRIÐ
PLAYA DEL CARMEN
Þú ferð þegar þú vilt eins lengi og þú vilt
Pálmatré, hvítar strendur og kristaltær sjór.
Karíbahafið eins langt og augað eygir. Þar má
auk þess sjá Maya pýramída, frumskóg, tær lón
og neðanjarðarhella, veitingahús, verslanir og
næturlíf. Þú finnur allt i Playa Del Carmen.
Er þetta aðeins hluti af því fjölmörgu í þessu
stórbrotna umhverfi sem heillar ferðamanninn.
Rétt utan við ströndina er svo næst stærsta
kóralrif heims með öllum sínum litaafbrigðum
og ótrúlegum fjölda fiska í öllum regnbogans
litum.
Við bjóðum uppá glæsilegt 4*hótel og allt
innifalið, yfir 40 atriði