Fréttatíminn - 12.11.2016, Blaðsíða 23
| 23FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 12. nóvember 2016
The Future sem nú er mikið deilt í
netheimum í ljósi nýjustu tíðinda.
„Geturðu ekki glaðst yfir neinu?“
spurði vinkona hans, Jennifer
Warnes, hann af því tilefni.
Þegar Cohen varð sextugur yfir-
gaf hann hina gullfallegu leikkonu
Rebekku De Mornay og gekk í
klaustur á Baldy fjalli í Kaliforníu
og virtist hafa sagt skilið við heim-
inn. Snemma í október 2001 birtist
hann þó aftur með nýja plötu, Ten
New Songs, og í laginu „Land of
Plenty“ vonast hann til þess að ljós-
ið í landi allsnægtanna muni lýsa á
sannleikann einhvern daginn.
Lagið var tekið upp fyrir at-
burðina 11. september, en á næstu
plötu á eftir brást hann við þeim
beint með laginu „On That Day.“
Þar syngur hann um þá sem særðu
New York og öfunda hana vegna
gulls hennar og þræla. Afstaðan er
því tvíbent til þessarar nútíma Ba-
bylonsborgar. En þannig var það
alltaf.
Blóm fyrir Trump
Cohen kom í heiminn í heimskrepp-
unni miklu, ári eftir að Hitler tók
völd. Hann var tíu ára þegar seinni
heimsstyrjöldinni lauk og orti síð-
ar um gleðina sem því fylgdi. En
hann og vinir hans litu síðar á eft-
irstríðsárin sem glatað tækifæri,
samheldni stríðsáranna var rofin,
konurnar sendar aftur í eldhúsið
og kaup og sala komu í stað hinn-
ar nýju Eden sem menn höfðu
barist fyrir. Og ofan á öllu trónuðu
Bandaríkin.
Hann heillaðist af kántrítónlist
og af rokkinu, þó hann hafi verið
ári eldri en Elvis. Hann upplifði
mótmæli gegn Víetnam og enda-
lok hippatímans, sem hann þó var
aldrei fyllilega hluti af. Þó hann
hafi komið fram á hátíðum á borð
við Isle of Wight rak faðir hans
herrafataverslun og honum leið
aldrei nógu vel í lörfum, ekki einu
sinni frægum bláum regnjökkum.
Hann var hvað vinsælastur und-
ir lok Reagan tímans þegar hann
steig aftur fram, nú sem snyrtileg-
ur og vitur eldri maður, kom til Ís-
lands og hitti sjálfan Hrafn Gunn-
laugsson. En ekki trúði hann á
þetta tímabil heldur, og söng um
að hinir fátæku yrðu áfram fátæk-
ir en aðeins hinir ríku yrðu ríkir.
Mestur spámaður gerðist hann
við upphaf 10. áratugarins, þegar
frjálshyggjumenn spáðu því að nú
væri sögunni lokið en hann söng
um framtíð þar sem hinn gamli
vestræni sáttmáli yrði rofinn,
einkalífið sprengt í tætlur, eldar
loga á götunum en hvíti maðurinn
dansandi, konu sem hangir á hvolfi
og öll lélegu skáldin sem reyna að
hljóma eins og Charlie Manson.
Hvað hefði Cohen sagt um þá
veröld sem hann skildi við, veröld
Donalds Trump? Kannski einmitt
þetta. Og þó sá hann það góða í
Bandaríkjunum, sem hann kallaði
vöggu þess best og hins versta. Eða
eins og hann orti í örkvæði í sinni
síðustu ljóðabók:
„Eitt að lokum. Þið munið sakna
Bandaríkjanna þegar þau eru horf-
in.“
Og við munum sakna þín, Le-
onard.
Hæsta fjallið. Fékk
aldrei Nóbelinn en
veitir hér hinum
virtu Asturias verð-
launum viðtöku.
Kvennamaður
deyr. Cohen á
fyrri hápunkti
sínum, í kring-
um 1970.
Cohen sló í gegn, en
ekki í Ameríku, held-
ur í Evrópu. Platan
Various Positions,
sú með „Hallelujah“
á, var ekki einu sinni
gefin út þar í landi í
fyrstu.
Myndir | Getty
Doddi - Bók sannleikans!
Hressandi, spennandi og sjúklega fyndin unglingabók
eftir verðlaunahöfundana Hildi Knútsdóttur
og Þórdísi Gísladóttur.
Elín Elísabet Einarsdóttir myndskreytti.
Ný íslensk
barnabók!
WWW.BOKABEITAN.IS
HJÁ ÖLLUM BETRI BÓKSÖLUM
Að heiman er einstök kynslóðarsaga frá Íslandi
ferðmennsku og eftirhruns.Yfirvegaður, meitlaður og
ísmeygilega ljóðrænn stíll Arngunnar Árna dóttur gerir
þessa skáldsögu að einni eftir tektar verðustu frumraun
íslenskra bókmennta á þessari öld.
„Skemmtileg bók
um óróleikann og
sársaukann í hjartanu
í byrjun 21. aldar.“
Jórunn Sigurðardóttir / Orð um bækur
partuspress.com | Bókaforlagið Partus