Fréttatíminn - 12.11.2016, Qupperneq 28
er írskur rokk-þjóðlaga músík-
ant og þekkist úr kvikmyndunum
Commitment og Once. Hann var á
tónleikaferðalagi með hljómsveit
sinni í Houston í nóvember 2009.
Moji var meðal áhorfenda og hann
heyrði í henni út í áhorfendahópn-
um. „Röddin mín getur verið ansi
hávær en Glenn heyrði í mér og kall-
aði mig upp á svið og við tókum lag-
ið saman. Þetta var örlagaríkt kvöld
að því leyti að það kviknaði í mér
þessi þrá að vinna við músik aftur.
Ég hafði lagt til hliðar draum um
óperusöng en þarna kviknaði eitt-
hvað innra með mér. Við sungum
saman „High hopes“ en ég þekkti
ekki lagið þá en söng samt á minn
hátt með honum. Nokkrum árum
síðar hitti ég aftur Glen á Írlandi
þar sem hann og Eddie Vedder hit-
uðu upp fyrir Springsteen tónleika.
Ég var í tveggja vikna fríi á Írlandi
árið 2013 og kynntist fullt af yndis-
legu fólki í gegnum Couchsurf-
ing sem er netsamfélag í kringum
heimagistingu. En eitt leiddi af öðru
og aftur fór Moji á svið með Glen en
núna á íþróttavelli í Írlandi sem tók
mörg þúsund manns. Hún tók tvö
lög, High hopes og Her mercy með
þeim Glen og Eddie Vedder.
„Í vinnunni heima þurfti ég oft að
standa fyrir framan hóp af mönnum
og útskýra stöðuna eða fara með er-
indi og leið alltaf illa, mér var líkam-
lega illt en þarna á sviðinu á íþrótta-
vellinum fyrir framan mörg þúsund
manns leið mér stórkostlega vel, eins
og í stofunni heima hjá mér. Ég vissi
hvað áhorfendur vildu heyra frá mér
og ég vissi að ég gat gefið þeim það
sem þeir vildu.“ Og þá var ég sann-
færð, þetta er það sem ég vil gera. Ég
þurfti bara að safna mér peningum,
sem tók mig tvö ár.
Frosti á Dillon
Eftir að hafa fengið sig lausa frá
starfinu í Houston flaug Moji til Ís-
lands á leið sinni til Parísar. „Ég kom
við á Dillon kvöldið áður en ég tók
flugið til Parísar. Þetta sama kvöld
hafði Frosti (Frosti Jón Runólfsson)
hlaupið í skarðið fyrir Andreu sem
er D.J. á Rokkbarnum. Um tvö leytið
um nóttina fór ég að spjalla við
Frosta sem endaði með því að við
fórum heim til hans að semja mús-
ík. Ég vissi ekkert um hann, hvort
hann ætti fjölskyldu eða neitt. Hann
spilaði fyrir mig hljóðrás eftir sig og
Bjarna (Bjarna M. Sigurðsson) sem
býr í sama húsi og hann. En Bjarni
nota bene vaknaði við hávaðann í
okkur. Ég hlustaði fyrst á eitt lag,
en það hentaði mér ekki og síðan
kom annað lag og ég gat sungið með
því. Ég sagði, við skulum taka þetta
upp og ég söng inn á. En þarna um
nóttina sömdum við „Broken Bird“
sem er lag númer þrjú á plötunni
okkar.“
Fimm lög á mánudegi
Ég flaug síðan til Parísar en Frosti
sendi mér póst og sagði: „Hæ, það
eru allir mjög ánægðir með upp-
tökuna okkar, ef þú kemur aftur til
landsins væri gaman að hittast og
spila meira saman.“ Þannig að á
bakaleiðinni til Bandaríkjanna hitti
ég Frosta og Bjarna. Ég afsakaði mig
við Bjarna en við höfðum haldið
fyrir honum og fjölskyldunni vöku
um nóttina sem við Frosti gerðum
Broken Bird. Bjarni gaf lítið út á það
en þakkaði mér fyrir að biðjast af-
sökunar. Við settumst síðan niður
og pöntuðum pítsu og hlustuðum
á músíkina þeirra Bjarna og Frosta
og ég söng og samdi og við tókum
upp. Við Bjarni vinnum dásamlega
vel saman, Bjarni er stórkostlegur
gítaristi og við sömdum saman al-
veg áreynslulaust. Eitt lagið varð
til þegar Bjarni var að stilla gítar-
inn sinn og þegar hann snerti svona
strengina, þá sá ég þessa Nevada
eyðimörk fyrir mér og þá varð til
saga og ég byrjaði að syngja, „Daddy
was a bad man, meener than the
devil,“ og út kom lagið Cut me down.
Ég held við höfum kannski breytt
tveim orðum í endanlegu útgáfunni.
„Yes, thank you“
Músíkin ykkar nær yfir alla ameríska
grasrótarmúsík, kántrí, blús,rokk,
fólk og röddin þín er svo mjúk og
blíð á köflum en svo sveiflar þú þér
yfir í eitthvað annað, og tekur Kate
Bush í nefið?
„Ég ímynda mér rödd mína sem
væri hún hljóðfæri, og ég er alltaf dá-
lítið öfundsjúk út í gítar og píanó þar
sem hægt er að spila hljóma, röddin
er aðeins ein nóta í einu. Þannig að
ég reyni að finna leið til þess að nota
röddina eins og hljóðfæri, ná út fyrir
takmörk hennar, upp fyrir og út fyr-
ir textann sem ég er að flytja.
En eftir að við sömdum fimm lög á
þessum mánudegi fór ég aftur á Kex
að hvíla mig og hlustaði á lögin aftur
og lagaði sitthvað. Á miðvikudegin-
um voru þau tilbúin til flutnings á
tónleikum sem við héldum á Dillon
daginn fyrir flugið mitt heim. Þegar
ég hlustaði á upptökurnar í flugvél-
inni og lenti á JFK þá lofaði ég mér að
ég skyldi alltaf vera opin og móttæki-
leg fyrir öllu því góða sem er í boði í
lífinu. „Yes thank you.“
Hlýri á Snaps
Natalie DJ Yamaho kemur inn á Snafs
og sest hjá Moji. Þær panta sér báðar
hlýra í hádegismat. Þegar þjónninn
er horfinn dæsir Natalie, „ég er með
svo miklar áhyggjur af kosningun-
um. Ég er jafnvel að hugsa um að
finna mér eyðieyju og flytja þangað
með hænu og gítarinn, í alvöru, ég
er stödd þar núna. Ef hann verður
kosinn þá fer ég ekki til Bandaríkj-
anna á næstunni, það er alveg bók-
að.“ „Ég bið fyrir kosningunum,“
segir Moji, „það getur allt gerst. Ég
á eftir að fylgjast með viðbrögð-
um fjölskyldu minnar á SnapChat í
kvöld, við erum 150 manns sem töl-
um saman á SnapChat og það eru
alltaf gífurleg viðbrögð þar við öllu
sem Trump segir og gerir,“ segir
Moji og hlær.
„Það er einn úr fjölskyldunni,
frændi minn, sem ætlar að kjósa
Trump og hann fékk þvílík við-
brögð frá hinum sem spurðu hann
hvort að hann elskaði ekki móður
sína? Hvernig getur þú kosið mann
sem fyrirlítur allt kvenfólk ef hann
hefur ekki kynferðislega ánægju af
því? Frændi minn varð alveg óður.
En Trump er vá og hann fyllir marga
með ótta um líf sitt í Bandaríkjun-
um, hann hótar að senda Mexíkana
til Mexíkó og Afríkumenn til Afr-
íku og þetta er sérstaklega ógnvekj-
andi fyrir börn sem hlusta á þennan
ósóma í honum. Sonur vinar míns
kom heim um daginn og sagði við
pabba sinn: Trump segir að við eig-
um að fara til Mexíkó en pabbi ég
þekki engann í Mexíkó! Það verður
hryllilegt ef maður sem er rasisti,
sexisti og borgar ekki skatta verður
forseti Bandaríkjanna.
Eftir hlýrann kveð ég Moji og
Natalie sem hafa undanfarið verið
önnum kafnar að spila á Airwaves í
sitt hvoru lagi, en þennan eftirmið-
dag, 8 nóvember, gafst þeim loks-
ins tími til þess að setjast niður fyrir
framan græjurnar og skiptast á mús-
ík og stilla sig saman. Vonandi kem-
ur eitthvað undurfagurt úr þeirri
samvinnu. En platan sem kom út
fyrir stuttu með Moji and the Midn-
ights Sons spratt meir og minna
fram fullkláruð á einum mánudegi
á síðasta ári. Falleg músík.
28 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 12. nóvember 2016
Moji kom til Íslands með opinn hug og
hjarta og uppskar samkvæmt því. Fyr-
ir stuttu kom út diskur hennar með
íslensku piltunum úr The Midnight
Sons.
Natalie DJ Yamaho sagðist ætla að flytja á eyðieyju ef Trump næði kjöri en Moji segir Trump endurspegla reiða fólkið.
„Það er einn úr fjöl-
skyldunni, frændi minn,
sem ætlar að kjósa Trump
og hann fékk þvílík
viðbrögð frá hinum sem
spurðu hann hvort að
hann elskaði ekki móður
sína? Hvernig getur þú
kosið mann sem fyrirlítur
allt kvenfólk ef hann
hefur ekki kynferðislega
ánægju af því?
9.999 kr.
PARÍS f rá
T í m a b i l : j a n ú a r - j ú n í 2 0 1 7
9.999 kr.
BERLÍN f rá
T í m a b i l : n ó v e m b e r 2 0 1 6 - m a í 2 0 1 7
7.999 kr.
BARCELONA f rá
T í m a b i l : f e b rú a r - m a rs 2 0 1 7
9.999 kr.
KANARÍ f rá
T í m a b i l : n ó v e m b e r 2 0 1 6 - m a rs 2 0 1 7
5.999 kr.
STOKKHÓLMUR f rá
T í m a b i l : j a n ú a r - a p r í l 2 0 1 7
9.999 kr.
DUBLIN f rá
T í m a b i l : j a n ú a r - m a í 2 0 1 7
Nú er
ferðalag!
*Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.