Fréttatíminn - 12.11.2016, Side 44
44 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 12. nóvember 2016
Dönsurum troðið
í óþægilega hluti
Búningahönnuður
með samviskubit og
innblásin af Bauhaus.
„Ég lét dansarana fá allskyns hluti
til að vinna með eins og bala, sem
ég hugsaði að þau gætu notað sem
höfuðföt en fyrsta sem þau gerðu
var að setja hann á rassinn á sér.
Þannig að ég fór bara að framleiða
rosalega mikið magn af skrítnum
hlutum úr allskonar áttum. Allskon-
ar venjulegir hlutir, hlutir sem þú
áttar þig ekkert endilega á hvaðan
þau eru því ég er búin að breyta
þeim svo þeir eigi heima saman“
segir Þórdís Erla Zoëga myndlist-
armaður, sem sér um búninga- og
sviðshönnun í sýningunni Dada-
dans.
Fullkomið frelsi
Þórdís Erla lærði myndlist við Gerit
Rietveld Academy í Amsterdam
og lauk þar námi 2012. Hún hefur
búið hérlendis síðustu þrjú árin þar
sem hún hefur staðið að listrýminu
Kunstschlager. „Stelpurnar höfðu
samband við mig fyrir tveimur
mánuðum með þessa hugmynd
og ég fór strax á fullt. Ég hef aldrei
lent í mótbyr, ég hef bara skotið út
hugmyndum og allir mjög sáttir.
Ég hef haft fullkomið frelsi allan
tímann, mjög góð samvinna“, segir
Þórdís Erla en það voru höfundar
sýningarinnar og meðlimir Íslenska
dansflokksins, Inga Huld Hákonar-
dóttir og Rósa Ómarsdóttir, sem
sköpuðu sýninguna í tilefni 100
ára afmælis Dadaismans. „Eins og
flestir vita hefur Dadaisminn haft
gríðarleg áhrif á nútímalist. En það
hefur verið lítið fjallað um Dada-
isma þegar kemur að dansi. Það
voru nokkrar Dada kvendansarar
en í listasögunni er lítið fjallað um
konur þannig hann hefur eiginlega
bara horfið úr danssögunni.“
Innblásin af Bauhaus skólanum
Þórdís segir að Dadaismann hafi
áhrif á flest alla nútíma listamenn
og þar með talið sig:
„Ég man að í listasögu í Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti fannst
mér ótrúlega gaman að læra um
Dada, loksins var myndlistarsagan
skemmtileg. Fór allt úr þessum
þunglamalegu málverkum yfir í
eitthvað skemmtilegt sem kannski
talar meira til manns í dag.“
Þórdís er líka mjög innblásin af
Bauhaus skólanum í hönnun sinni
fyrir sýninguna og þá sérstaklega
af dansverkinu Das Triadische
eftir Oskar Schlemmer, kennara
við skólann. Verkið er þekkt fyrir
sín geómetrísku form og furðulega
búninga: „Ég var komin með sam-
viskubit því ég var alltaf að troða
dönsurunum í svo óþægilega hluti
en dansararnir höfðu bara viljann
til að prófa allt nýtt. Dansarar gætu
alveg eins verið myndlistarmenn,
þau eru svo ótrúlega frjó og ólíkt
mér þá hugsa þau svo mikið með
líkamanum. Ég hugsaði bara, vá,
ég hef tækifæri að gera eitthvað í
þessum stíl, ég verð bara að gera
það.“ | hdó
Geometríkst form
og innblástur frá
Bauhaus í bland við
nútíma-Dadaisma.
VERIÐ VELKOMIN Á OPNUN SÝNINGARINNAR
LAUGARDAGINN 12. NÓVEMBER KL. 15.00 · ALLIR VELKOMNIR!FRÍTT INN!
SÝNING UM BJÖRGVIN HALLDÓRSSON
HJALLAVEGUR 2 · 260 REYKJANESBÆR · ÍSLAND