Fréttatíminn - 08.12.2016, Blaðsíða 6
73,7 milljarðar
kostnaður við
grunnskóla 2014
6 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 8. desember 2016
● Auka blóðflæði í
höfði;
● Slaka á vöðvum í
hnakka;
● Bæta öndun með
því að slaka á
axlasvæði;
● Samhæfa ósjálfráða
taugakerfið;
● Slaka á vöðvum í
efri hluta kviðar;
● Bæta virkni
meltingar kerfisins;
● Bæta blóðflæði í
nára.
ÖRVUN MEÐ SVÆÐANUDDS-
INNLEGGI MIÐAR AÐ ÞVÍ AÐ:
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
SLÖKUN OG VELLÍÐAN
F YRIR ALL AN LÍK AMANN
N ÝJ U N G Í B E T R A B A K I
BYLTING FYRIR
ÞREYTTA FÆTUR
7.900 K R.
Með fimmsvæða nuddinnleggi UNDRA heilsuinni
skónna nærðu slökun og vellíðan sem dregur úr
spennu og örvar blóðflæði. Skórnir
eru fallegir, hlýir og einstaklega
þægilegir. Fáanlegir í dökkgrárri eða
ljósri Merinoull.
Komdu og prófaðu!
UNDRI HEILSUINNISKÓR
B Y LT I N G A K E N N T
5 S VÆ Ð A N U D D I N N L E G G
Viðskipti Ráðgjafarfyrirtæki Guð-
finnu Bjarnadóttur, fyrrverandi
þingkonu Sjálfstæðisflokssins,
fékk 1,5 milljón króna fyrir vinnu
fyrir menntamálaráðuneytið í
lok síðasta árs og byrjun þessa og
samtals 17,2 á kjörtímabilinu.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Ráðgjafafyrirtæki Guðfinnu Bjarna-
dóttur, fyrrverandi þingkonu Sjálf-
stæðisflokksins, fékk greiddar 1,5
milljónir króna vegna vinnu fyrir
menntamálaráðuneytið í lok árs
2015 og byrjun árs 2016. Vinnan
var vegna undirbúnings á breyting-
um á innra skipulagi ráðuneytisins
samkvæmt svari frá menntamála-
ráðuneytinu. Menntamálaráðherra,
Illugi Gunnarsson, er fyrrverandi
samstarfsmaður Guðfinnu úr þing-
flokki Sjálfstæðisflokksins.
Í október á síðasta ári var greint
frá því að fyrirtækið, LC Ráðgjöf
ehf., hefði unnið fyrir menntamála-
ráðuneytið fyrir samtals 15,7 millj-
ónir króna án þess að verkin hefðu
verið boðin út. Menntamálaráðu-
neytið benti á að verkefnin hefðu
ekki verið útboðsskyld sökum þess
að upphæðirnar hefðu verið það
lágar. Í heildina fékk félag Guð-
finnu því 17,2 milljónir fyrir vinnu
fyrir menntamálaráðuneytið á kjör-
tímabilinu. Auk þess fékk félagið
14,6 milljónir frá atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytinu.
Út frá ársreikningi LC ráðgjafar
ehf. er ljóst að stór hluti vinnu fyr-
irtækisins var fyrir opinbera aðila
á síðasta ári en launatekjur til Guð-
finnu og eiginmanns hennar, Vil-
hjálms Kjartanssonar, námu rúm-
um sextán milljónum. Auk þess var
greiddur út 10 milljóna króna arður
til hluthafa. Hagnaður félagsins var
tæpar sjö milljónir króna.
Guðfinna vill ekki tjá sig um starf-
semi félagsins við Fréttatímann,
meðal annars svara þeirri spurn-
ingu hversu stór hluti af tekjum fé-
lagsins hafi komið frá opinberum
aðilum eins og ráðuneytum.
Guðfinna Bjarnadóttir sat
á þingi fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn á árunum 2007
og 2009 og hefur unnið
talsvert fyrir opinbera aðila á
síðustu árum, meðal annars
menntamálaráðuneytið.
Guðfinna gefur ekki upp hversu mikið
hún vann fyrir ráðuneytin
Þarf að bæta skipulag
og auka umræður
Skólamál Bæta þarf skipulag hjá
grunnskólum, tengslaleysi er á
milli stofnana, sveitarfélaga og rík-
is, og þörf er á hugarfarsbreytingu
um menntamál. Þetta segir Aðal-
heiður Steingrímsdóttur, varafor-
maður félags grunnskólakennara.
Að auki er grunnskólakerfið hér
á landi mun dýrara en í saman-
burðarlöndum OECD.
Valur Grettisson
Valur@frettatiminn.is
„Það vantar upp á það að aðilar tengi
sig saman, að sveitarfélög, foreldrar,
ríki og kennarar, tali betur saman. Þá
er ekki síst þörf á að hlusta á fagfólk-
ið,“ segir Aðalheiður sem finnst of al-
gengt að kennarar fái skipun að ofan
og þurfi að fylgja óljósum leiðbein-
ingum í starfi. Þá sé lítið um raun-
verulegt samráð á milli kennara og
stofnana.
„Að því leytinu til er vont skipulag,
og við þurfum að bæta okkur þar.“
Heildarútgjöld Íslands til mennta-
mála, sem hlutfall af öllum útgjöldum
þess, er langtum meiri á Íslandi en í
öðrum OECD löndum, eða 122 stig
samkvæmt skýrslu OECD, Education
at glance. Meðaltal OECD er 98 stig
og tekur til áranna 2005 til 2013.
Þau lönd sem komast næst okkur í
heildarútgjöldum eru Slóvakía, Kór-
ea og Ísrael. Norðmenn komast næst
okkur af samanburðarþjóðunum, en
þó munar rúmlega tuttugu stigum
samkvæmt mælingum OECD. Þess
ber þó að geta að þarna inni er með-
al annars kostnaður vegna húsnæð-
is. Um 80% af kostnaði við rekstur
grunnskóla eru laun kennara.
„Þegar maður horfir á rekstrar-
kostnaðinn, þá erum við dreifbýlt
land,“ svarar Aðalheiður Steingríms-
dóttir, varaformaður félags grunn-
skólakennara, spurð hvernig það
geti verið að Íslendingar leggi meira
fé en aðrar þjóðir í grunnskólakerfið
en uppskeri mun verr. Þess ber þó að
geta að ekki er endilega samræmi á
milli fjármuna sem er veitt í mennta-
kerfi og námsárangurs.
„Það er samt engum blöðum um
það að fletta, að þegar sveitarfélög-
in tóku við skólunum árið 1996, þá
fylgdu ekki nægir fjármunir með, og
mörg sveitarfélög berjast í bökkum
með reksturinn,“ segir Aðalheiður.
Heildarútgjöld árið 2014 vegna
grunnskóla námu samtals 73,7 millj-
örðum og á föstu verðlagi hafa út-
gjöld á hvern grunnskólanemanda
hækkað úr 1,1 milljón króna árið
2002 í rúmlega 1,4 milljónir króna
árið 2014. Þetta þykir veruleg hækk-
un sé tekið mið af rannsókn Vífils og
Sveins. Í hruninu var samdrátturinn
2,4%, sem var minna en búist var við
að sögn Vífils.
Aðspurð hvort íslenska grunn-
skólakerfið sé einfaldlega illa
skipulagt, svarar Aðalheiður: „Það
hefur verið einblínt mikið á að bæta
aðstöðu en minna hugsað um að
skoða innra starf, aðstæður kennara
og þeirra kjör.“
Hún segir að ennfremur þurfi að
fara í greiningu á því hvernig sé verið
að nýta þessa fjármuni.
Forstjóri Menntastofnunar, Arnór
Guðmundsson, segir mikið fjármagn
fara í skólana. „En það er eins og fók-
usinn á menntun og kennslu vanti,“
svarar hann spurður um hærri kostn-
að vegna grunnskólanema. „Það
vantar fjármagn á rétta staði,“ bætir
hann við.
488
482
473
2015
Niðurstaða íslenskra nema í PISA könnun OECD
Læsi á stærðfræði
Læsi á náttúruvísindi
Lesskilningur
2000
520
510
500
490
480
470
490
OECD meðaltal
PI
SA
s
tig
2003 2006 2009 2012
Íslendingar eru undir meðaltali í öllum
fögunum sem voru prófuð í Pisa-
könnuninni.
Ár
Kostnaður á nemanda
215772174321970
23935
27377 *Samanlagður kostnaður á nemendur í grunnskóla í um-
reiknuðum dollurum til þess að
ná fram meðaltali.
Fimmtán ára skólabörn tóku Pisa-könnunina á síðasta ári, og koma verr út en samanburðarlöndin. Könnunin er fram-
kvæmd á þriggja ára fresti.
Ís
la
nd
Sv
íþ
jó
ð
D
an
m
ör
k
Fi
nn
la
nd
N
or
eg
ur