Fréttatíminn - 08.12.2016, Page 8
8 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 8. desember 2016
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Eftir að Þórhildur Ída Þórarinsdóttir greindist með krabbamein í öðru brjóstinu, kom í ljós að hún var með BRCA2
stökkbreytinguna, sem veldur
stóraukinni hættu á brjóstakrabba-
meini og krabbameini í eggjastokk-
um. Íslensk erfðagreining hefur
haft dulkóðaðar upplýsingar um
1250 íslenskar konur með genið og
boðist til að afhendar þær Lands-
spítalanum með því skilyrði að kon-
urnar verði látnar vita, en leyfi heil-
brigðisyfirvalda hefur ekki fengist.
„Fyrst var ég mjög hissa og spurði
mig ítrekað. Hvers vegna var ekki
haft samband. Þessar upplýsingar
eru til hjá Íslenskri erfðagrein-
ingu, afhverju megum við ekki fá
þær? Mér leið eins og við konurn-
ar hefðum klemmst á milli í ein-
hverri deilu,“ segir Þórhildur Ída.
Núna hafa bæði brjóstin verið tekin,
sem og legið og eggjastokkarnir, en
framundan er samt erfið lyfja- og
geislameðferð. „Ég var með þykkt
dökkt hár niður á bak. Ég er búin
að klippa það stutt, þá verður mér
minna brugðið þegar það fer að
detta af,“ segir hún.
Krabbamein í eitlum
Þórhildur Ída fór í skoðun og við-
tal hjá leitarmiðstöð Krabbameins-
félagsins árið 2013. Þá var hún með
verk í vinstra brjóstinu og einnig
hafði hún verið mjög rokkandi í
þyngd. Náinn ættingi hennar hafði
greinst með brjóstakrabbamein og
þurft að fara í brjóstnám og hún
spurði bæði lækna hjá Krabba-
meinsfélaginu og heimilislækni
hvort hún gæti fengið að láta skoða
hvort hún væri með BRCA2 stökk-
breytinguna í blóðinu. Henni var
tjáð að engin ástæða væri til þess í
hennar tilfelli. Hún tók málið ekki
upp aftur fyrr en hún greinist með
brjóstakrabbamein í október. Þá
bað hún um að þetta yrði skoðað.
„Skurðlæknirinn spurði mig
ítrek að, ertu alveg viss? Og hvað
ætlarðu að gera ef þú ert með
BRCA2, skiptir það máli núna,
þegar þú ert búin að greinast? En ég
gaf mig ekki og prófið var jákvætt,“
segir hún.
„Mér var sagt eftir brjóstnámið,
að nú yrði skoðað hvort það væri
krabbamein í eitlunum. Ef það
fyndist ekki væri ég sloppin. Það
voru fimm prósent líkur á krabba-
meini í eitlum en því miður reyndist
það vera. Lyf og geislar er því það
sem koma skal. Núna bíð ég eftir að
fara i viðtal 15. desember. Þá fæ ég
að vita hverjar lífslíkur mínar eru.
Ég er ekki viss hvernig mér líður í
þessu öllu, þetta er eins og að lenda
í loftárás og rykið er ekki sest.“
Sóar ekki tímanum
Þórhildur segist enn vera að átta
sig á stöðunni en ætli ekki að sóa
neinum tíma í vanlíðan. „Ég var að
skrifa meistararitgerð í jákvæðri
sálarfræði þegar ég fór í krabba-
meinsskoðunina. Maður er bara
summa þess sem hefur komið fyr-
ir. Og ég er talsvert sjóuð. Ég græði
ekkert á því að vera bitur, ég vil
frekar nota tímann til að gera eitt-
hvað fyrir mig og efla heilsuna eins
og ég get.“
Börnin mikilvægust
„Það var strax ákveðið að skera
burtu brjóstin en ég vildi taka
eggjastokkana með enda er tals-
verð áhætta á krabbameini þar ef
þú ert með BRCA2,“ segir Þórhild-
ur. „Þegar eggjastokkarnir höfðu
verið teknir fannst krabbamein í
öðrum þeirra svo það reyndist rétt
ákvörðun. Þá fannst læknunum
réttast að taka legið líka.“
Hún segist ekki geta svarað því
hvort hún hefði farið í fyrirbyggj-
andi brjóstnám ef hún hefði fengið
að fara í greiningu árið 2013. „En
það hefði breytt miklu fyrir mig, ég
hefði allavega farið í reglubundið
eftirlit tvisvar á ári og því líklega
greinst mun fyrr. Mig tekur sárt til
mannsins míns og barnanna. Þegar
svona áfall dynur yfir slær það
Á að
rökræða
okkur í hel?
„Og hver vill ekki slíkt
tækifæri sem getur gert
sér í hugarlund hvernig
það er að vera í mínum
sporum og eiga á hættu að
deyja frá manni og börn-
um. Og ef fólk er ekki með
stökkbreytinguna, getur
það bara opnað kampa-
vín og skálað fyrir lífinu.
Það er hrikalegt að vera í
þeirri stöðu að hafa viljað
vita, en ekki fengið það.“
Ef við vissum um 200 jarðsprengjur í jörðu
á Íslandi, yrði þá staðsetningunni haldið
leyndri ef einhver skyldi kjósa það að springa
í loft upp, frekar en að burðast með þessa
vitneskju,“ segir Þórhildur Ída Þórarinsdóttir,
53 ára kona sem greindist með krabbamein í
öðru brjóstinu 3. október.
Myndatexti
STÓRVERSLUN
SMÁRATORGI
VERÐDÆMI
DÖMU & HERRAFÖT
bolir 1.990,-
skyrtur 5.990,-
buxur 8.990,-
regnbuxur 2.990,-
softshellbuxur 8.990,-
fóðraðar buxur 6.990,-
snjóbuxur 9.990,-
flíspeysur 3.990,-
softshelljakkar 7.990,-
jakkar 5.990,-
warmloft jakkar 7.990,-
úlpur 14.990,-
fóðraðar kápur 13.990,-
BARNAFÖT
flíspeysur 3.490,-
softshelljakkar 6.990,-
softshellbuxur 6.990,-
snjóbuxur 9.990,-
fóðraðar buxur 6.990,-
regnbuxur 2.990,-
úlpur 9.990,-
fóðraðar kápur 9.990,-
OPIÐ
VIRKA DAGA 11–18
LAUGARDAGA 11–17
SUNNUDAGA 12–16