Fréttatíminn - 08.12.2016, Blaðsíða 14
14 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 8. desember 2016
blaðinu fært að auka enn þjón-
ustu sína við lesendur, fjölga
síðum og efnisþáttum, sem aft-
ur fjölgaði lesendum. Sem aftur
jók forskot blaðsins á keppinauta
sína.
Samkeppni áskriftarblaða á
auglýsingamarkaði færir því fyrr
en síðar stærsta blaðinu einstaka
stöðu og mikinn fjárhagslegan
styrk.
Einokun og fákeppni
Styrkur allra miðla á blómatíma
fjölmiðlunar á Vesturlöndum
byggði því á einokun eða fákeppn-
isstöðu við dreifingu frétta, efn-
is og auglýsinga. Þessi fyrirtæki
uxu upp í mikilvæga samfélags-
lega stöðu. Og flest þeirra mættu
þessari stöðu með því að axla þá
ábyrgð sem fólst í henni. Sumir að
miklu leyti, aðrir að nokkru leyti.
Þessi þróun verður síðar á Ís-
landi en annars staðar. Fyrst og
fremst vegna þess hversu seint
kviknar á almennum neytenda-
markaði á Íslandi. Fram að átt-
unda áratugnum var kaupmáttur
hér bæði almennt miklum mun
lægri en í nágrannalöndunum
og neytendavörur fábreytilegri.
Vildarfyrirtækjum stjórnmála-
f lokka var skammtaður bás á
markaði og þau fengu að fram-
leiða vörur sínar vernduð fyrir
samkeppni. Þegar aðlögunartími
íslensks iðnaðar vegna inngöngu
Íslands í EFTA á sjöunda áratugn-
um rann út á þeim áttunda jókst
hér samkeppni og auglýsingar og
önnur markaðssetning réði meiru
um markaðsstöðu fyrirtækja en
hvaða klíku þau tilheyrðu.
Áttundi áratugurinn gerði
Morgunblaðið að drottnandi
fjölmiðli á Íslandi. Og eftir því
sem markaðurinn færði blað-
inu sterkari stöðu því betur
vildi blaðið þjóna almenningi.
Þótt Mogginn hafi aldrei kastað
grímunni sem eindreginn stuðn-
ingsmiðill Sjálfstæðisflokksins
þá gerði blaðið margt til að
veita góða almannaþjónustu.
Þegar leið á níunda áratuginn
fór blaðið að nota slagorðið: Blað
allra landsmanna. Það var vissu-
lega hrokafullt en lýsir engu að
síður viðbrögðum blaðsins við
yfirburðastöðu sinni á markaði
og hvernig það vildi mæta þeirri
ábyrgð sem því fylgdi. Morgun-
blaðið var að ganga í gegnum
sömu umbreytingu og önnur öfl-
ug staðarblöð í okkar heimshluta,
blöð sem tóku að sér það hlutverk
að vera vettvangur alvarlegrar
samfélagsumræðu og taka með því
þátt í að móta og bæta samfélagið.
Dagblaðið markar nýjan tón
1975 stofna Sveinn R. Eyjólfsson og
Jónas Kristjánsson Dagblaðið, eft-
ir að Jónas hafði verið rekinn frá
Vísi. Vísir var einkahlutafélag eins
Árvakur, sem gaf út Morgunblaðið,
en engu að síður tengt Sjálfstæðis-
flokknum. Þorsteinn Pálsson, sem
síðar varð formaður flokksins, tók
við af Jónasi.
Þótt nefna megi nokkrar veik-
burða tilraunir áður, þá var stofn-
un Dagblaðsins fyrsta alvöru til-
raunin til að koma almennum
frjálsum fjölmiðli á legg á mark-
aðslegum forsendum. Enda hét út-
gáfufélagið Frjáls fjölmiðlun hf. og
leitaði til almennings um stofnfé.
Allir almennir fjölmiðlar á þessum
árum voru ýmist reknir af stjórn-
málaf lokkum, í nánum tengsl-
um við þá og undir verndarvæng
þeirra eða þá af ríkinu sjálfu með
yfirstjórn skipaðri af stjórnmála-
flokkunum.
Dagblaðið var rekið til 1981
þegar það sameinaðist Vísi, varð
DV og kom út í mörg ár þar á eft-
ir undir þeim formerkjum sem
Sveinn, Jónas og félagar höfðu
markað; óháður fjölmiðilinn sem
sótti styrk sinn og umboð út á
markaðinn.
DV varð síðar eitt af fyrstu
fórnarlömbum tæknibreytinga í
dreifingu fjölmiðlaefnis. Áður en
Fréttablaðið var stofnað 2001 og var ætlað að veita almannaþjónustu án áskriftartekna. Útgáfa þess var svar við fyrirsjáanlegu hruni áskriftarmódelsins.
stóru millistéttarblöðin fengu þung
högg, áskriftarblöð sem komu út á
morgnana, skrapp lausasala á dag-
blöðum saman og fjöldi síðdegis-
blaða lokaði.
Þótt módel Dagblaðsins hafi
virkað vel 1975 var það orðið ónýtt
árið 2000. Smáauglýsingar voru á
leið á Netið, lausasala á dagblöðum
hafði hrunið og síðdegið, þegar
fólk var við vinnu, varð vaxtartími
netmiðla.
Staða DV var líka alla tíð veik.
DV var næststærsta blaðið og fékk
alltaf mun minni sneið af aug-
lýsingamarkaði en ætla mætti af
lestri blaðsins. Þótt 50 prósent
landsmanna hafi lesið helgarblað
DV skilaði það ekki nema um
fjórðungu þeirra auglýsingatekna
sem Morgunblaðið fékk út á rúm-
lega 60 prósent lestur.
Einokun afnumin
Á eftir DV stofnaði Alþýðuflokk-
urinn tvívegis til blaðaútgáfu sem
átti að byggjast á markaðslegum
forsendum; Helgarpóstinn 1979
og Pressuna 1988. Á þessum árum
var Alþýðuflokkurinn farvegur
kröfunnar um kerfisbreytingar á
Íslandi, að Ísland yrði normalíser-
að og samfélagið mótað að því
sem tíðkaðist í nágrannalöndun-
um. Flokkurinn seldi bæði blöð-
in frá sér stuttu eftir útkomu og
þau urðu í nokkur ár farvegur fyr-
ir nýja tegund blaðamennsku, lík-
ari því sem þekktist í okkar heims-
hluta.
Það er síðan ekki fyrr en Sveinn
R. Eyjólfsson og Eyjólfur sonur
hans stofna Fréttablaðið 2001 sem
alvörutilraun er gerð til að koma á
fót dagblaði sem lýtur markaðsleg-
um forsendum; aflar tekna á opn-
um markaði gegn loforði um al-
mannaþjónustu og óháðar fréttir.
Í millitíðinni er einkaleyfi ríkis-
ins á útvarps- og sjónvarpsrekstri
afnumið og Bylgjan og Stöð 2 hefja
útsendingar 1986. Báðar stöðvar
ráku öflugar fréttastofur og reyndu
af metnaði að axla samfélagslega
ábyrgð sína með margháttaða
samfélagsumræðu. Þótt margar
útvarps- og sjónvarpsstöðvar hafi
verið stofnaðar eftir þetta er Bylgj-
an og Stöð 2 enn stærstu frjálsu
ljósvakamiðlarnir. Tilhneigingin
varð sú að eigendur Bylgjunnar og
Stöðvar 2 keyptu upp samkeppni
eða héldu úti stöðvum til að
hindra samkeppni.
Rekstur allra þessara miðla
gekk brösuglega. Helgarpósturinn
og Pressan fóru á hausinn þegar
kreppti að á auglýsingamarkaði
í reglulegum niðursveiflum á Ís-
landi. Stöð 2 lifði þessar sveiflur
af en varla þó. Segja má að Stöð
2 sé fyrirbrigði sem skilaði hagn-
aði þrjú ár af hverjum tíu, var við
núllið fjögur ár af hverjum tíu en
tapaði stórt þrjú ár af hverjum
tíu. Ef stöðin hefði verið í eigu
einhvers sem lagði til hliðar fé á
góðu árunum til að mæta þeim
slæmu hefði reksturinn kannski
gengið upp. Rekstur Bylgjunn-
ar var öruggari enda var staða
hennar á sínum markaði, út-
varpsmarkaði, sterkari en Stöðv-
ar 2 á sjónvarpsmarkaði.
Hrunið breytir öllu
Um og upp úr aldamótum hafði
umbreyting íslensks fjölmiðla-
markaðar frá f lokksdrifnum
blöðum yfir í markaðsdrifna
fjölmiðla gengið yfir ef Ríkisút-
varpið er undanskilið. Umbreytt
Morgunblað og Fréttablaðið voru
sterkust á dagblaðamarkaði,
Ríkissjónvarpið, Stöð 2 og Skjár
einn kepptu á sjónvarpsmarkaði,
Bylgjan og Ríkisútvarpið á út-
varpsmarkaði og mbl.is og visir.is
á netinu. Innan um og saman við
voru smærri aðilar. Sumir þessara
miðla voru í ágætum rekstri og
stóðu vel undir sér; Morgunblað-
ið, Fréttablaðið og Bylgjan. Önnur
lifðu á væntingunum um að geta
híft sig upp fyrir núllið.
Við Hrunið breyttist flest. Þá
höfðu tæknibreytingar og afnám
Dagblaðið var stofnað 1975 og markaði
tímamót; fyrsti fjölmiðilinn sem vildi
starfa á markaði og veita almenningi
frjálsa og óháða fréttaþjónustu.
Alþýðuflokkurinn var fyrir 35 árum farvegur kröfunnar um kerfisbreytingar og nýtt Ísland. Liður í því var að hleypa Helgarpóstinum af stokkunum 1979, blaði sem var í forystu nýrrar blaða-mennsku um tíma. Blaðið var síðan selt
einkaaðilum.
Eins og Alþýðuflokkurinn hafði stofnað
Helgarpóstinn á sínum tíma stofnaði
flokkurinn Pressuna 1988 til að ýta undir
frjálsa fjölmiðlun. Eins og með Helgar-
póstinn seldi flokkurinn Pressuna síðar meir.
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Úrval af lokuðum farangurskerrum
frá Ifor Williams
Sýningareintak á staðnum.