Fréttatíminn - 08.12.2016, Síða 18
18 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 8. desember 2016
Við styrjaldarlok, vorið 1945,
undirrituðu fulltrúar þýska hersins,
Wehrmacht, uppgjafaryfirlýsingu
sem færði bandamönnum og Sov-
étríkjunum öll völd yfir því sem
áður var landsvæði Þýska ríkis-
ins. Fulltrúar hersins geta þó ekki
skuldbundið ríki, þjóðréttarlega.
Þar sem engin starfhæf eða viður-
kennd stjórnvöld voru lengur til
staðar litu sigurvegarar stríðsins
ekki á það sem fyrirstöðu. Reichs-
borgarar segja hins vegar, í krafti
þessa, að ríkið hafi aldrei gefist upp,
aðeins herinn.
Og hér komum við að mörkum
hins frumspekilega. Reichsborgar-
ar vísa til úrskurðar stjórnlagadóm-
stóls Vestur-Þýskalands um gildi
sáttmálans við Austur-Þýskaland,
1973. Þar segir að Þýska ríkið hafi
lifað af stríðslokin, og sé enn til, þó
svo að „vegna skorts á skipulagi,
einkum skorts á stofnanavædd-
um innviðum“ sé athafnageta þess
engin. Þar sem ríkið hefur ekki liðið
undir lok, geti Sambandslýðveldið
ekki verið arftaki
þess.
Þ e t t a n o t a
Reichsborgarar
sem sönnun á mál-
stað sínum – en
sleppa seinni hluta
setningarinnar, sem
heldur áfram: Sam-
bandslýðveldið er
ekki arftaki Þýska ríkis-
ins „heldur samt því, þó
að landfræðilega nái það
aðeins til hluta þess.“
Sambandslýðveldið ehf
Í reynd var formleg staða
Vestur-Þýskalands sem ríkis
háð mörgum vafaatriðum,
sem hægri-öfgahreyfingar
beittu til áróðurs fyrstu
áratugina eftir stríð. Upphafleg
stjórnarskrá Sambandslýðveldisins
var háð samþykki bandamanna,
fullveldi landsins takmarkað og
bundið skilyrðum. Frá endursam-
einingunni árið 1990 er fullveldi
Sambandslýðveldisins aftur á móti
afdráttarlaust og möguleg vafamál
almennt talin úr sögunni.
Þegar lagarök þrýtur eiga Reichs-
borgarar þó heilt vopnabúr af upp-
nefnum að grípa til. Fremst þeirra
er BRD GmbH!
– Sambandslýð-
veldið ehf! Að
þetta svonefnda
lýðveldi sé í eðli
sínu aðeins fyr-
irtæki, stofnað til
að arðræna íbúa
landsins. Þaðan er
stutt í fasísk stef: ef
Þýskaland er fyrir-
tæki, hverjir stýra því
þá? Nú, gyðingar …
Yst til hægri í hreyf-
ingunni lágu nýnasista-
samtök in Deutsches
Kolleg, Þýska sambandið.
Helfararafneitun, gyðinga-
hatur, Þýskaland skuli rísa
af hnjánum í hinu fjórða
ríki – allt það. Félagið var
stofnað árið 1994. Þekktasti for-
Adrian Ursache sendir aðdáendum og stuðningsmönnum myndir
af sjúkrahúsinu, eftir skotbardaga við lögreglu.
Skjaldarmerki
ríkisins Ur sem
Adrian Ursache
stofnaði á
heimili sínu.
Adrian Ursache,
Herra Þýskaland
1998, með konu sinni
þegar allt lék í lyndi.
sprakki þess var lögfræðingurinn
Horst Mahler, áður þekktur sem
stofnmeðlimur Rauðu herdeild-
anna, með þeim Baader og Mein-
hof. Fyrir þá starfsemi var hann
dæmdur í fangelsi árið 1975, en var
fyrir tilstilli verjanda síns, Gerhards
Schröder, síðar kanslara, sleppt úr
haldi eftir að hafa afplánað tvo
þriðju hluta dóms síns, árið 1980.
Bylgjan
Mahler hóf lögfræðistörf að nýju
átta árum síðar og steig loks fram
sem nýnasisti árið 1997. Stjórnvöld
leystu Deutsches Kolleg upp árið
2003. Mahler var síðast fangelsaður
árið 2009, fyrir hatursorðræðu og
fleiri sakir, og situr inni síðan þá. Til
að taka af öll tvímæli heilsar hann
blaðamönnum með Hitlerskveðju –
það er ekki flókið að staðsetja hann
hugmyndafræðilega. Í öðrum tilfell-
um krefst það meiri vinnu.
Í þessari kíkótísku hliðarveröld
er Thomas Mann, hómópati frá
Bonn og „aðili að ríkisstjórn frírík-
isins Prússlands“, sem á 25 ára af-
mæli endursameinaðs Þýskalands
haustið 2014, leiddi 200 manna
„áhlaup á Reichstag“ eins og skipu-
leggjendur nefndu mótmæli sín við
þinghúsið. Mann er meðal þeirra
sem krefjast fullveldis sambands-
landanna, hvers fyrir sig, sem hann
segir hafa verið stýrt sem nýlend-
um – frá og með valdatíð nasista.
Og meðal þess sem Adrian Ursache,
Herra Þýskaland, hrópaði til lög-
reglumanna frá ríki sínu, var: „Nas-
istar! Fasistar!“
Stjórnmálafræðingar benda á að
í afneitun á réttmæti sambandslýð-
veldisins liggi ekki aðeins þræðir
milli Reichsborgara og nýnasista,
heldur einnig nokkurs hluta Peg-
ida hreyfingarinnar, sem mótmælt
hefur innflytjendum og móttöku
f lóttafólks, og popúlista-f lokks-
ins AfD, sem nýtur vaxandi fylg-
is. Því sé ekki hægt að afgreiða
reichsborgara sem sérvitra einfara
– uppgangur þeirra sé jaðarfyrir-
bæri í, en þó hluti af, umfangsmeiri
öfga-hægribylgju.
volundarhus.is · Sími 864-2400
GARÐHÚS 14,5 m²
www.volundarhus.is
Vel valið fyrir húsið þitt
RÝMINGARSALA
20% aukaafsláttur af öllum
GARÐHÚSUM
á meðan byrgðir endast
V
H
/1
6-
05
GARÐHÚS 4,7m²
44 mm bjálki / Tvöföld nótun
GARÐHÚS 4,4m²
GARÐHÚS 9,9 m² án gólfs
GARÐHÚS 9,7m²
50% afsláttur
af flutningi á
GARÐHÚSUM og
GESTAHÚSUM
á allar þjónustu-
stöðvar Flytjanda.
GESTAHÚS og
GARÐHÚS
sérhönnuð fyrir
íslenskar aðstæður
Sjá fleiri
GESTAHÚS og
GARÐHÚS á tilboði
á heimasíðunni
volundarhus.is
· Allt á að seljast
· Fyrstur kemur fyrstur fær
· Ekki missa af þessu
Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu
okkar volundarhus.is
og í síma 864-2400.